Morgunblaðið - 04.11.2009, Síða 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
ÞESSI kattliðuga stúlka lék listir
sínar á sýningu fjölleikahóps á
markaði í útjaðri Jammú-borgar á
Indlandi við mikinn fögnuð við-
staddra í gær. Stúlkan er aðeins sex
ára að aldri og heitir Gudia.
Reuters
LÍTIL OG LIÐAMJÚK
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins fögnuðu í
gær úrskurði stjórnlagadómstóls Tékklands
um að Lissabon-sáttmálinn stangaðist ekki á
við stjórnarskrá landsins.
Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, kvaðst ekki telja að frekari tafir
yrðu á því að Lissabon-sáttmálinn tæki gildi.
Vaclav Klaus, forseti Tékklands, var sá eini
sem gat hindrað gildistöku sáttmálans en for-
setinn hafði gefið til kynna að hann hygðist
fullgilda sáttmálann ef dómstóllinn legði bless-
un sína yfir hann.
Sáttmálinn hefur nú verið staðfestur í öllum
aðildarlöndum ESB. Þing Tékklands sam-
þykkti sáttmálann en hópur þingmanna taldi
hann stangast á við stjórnskrána og skaut mál-
inu til stjórnlagadómstólsins.
Vaclav Klaus hafði lagst gegn Lissabon-sátt-
málanum og lýsti honum sem ógn við fullveldi
Tékklands. Klaus lét af andstöðu sinni við sátt-
málann þegar hann náði samkomulagi við leið-
toga ESB um að Tékkland fengi undanþágu
sem tryggði að Evrópudómstóllinn gæti ekki
hnekkt úrskurðum tékkneskra dómstóla um
eignir Súdeta-Þjóðverja, þ.e. þýskumælandi
íbúa héraðanna Bæheims og Mæris, sem voru
hraktir frá Tékkóslóvakíu eftir síðari heims-
styrjöldina og sviptir eignum sínum.
Breska dagblaðið The Daily Telegraph sagði
í gær að David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokks-
ins, ætlaði að skýra frá því í vikunni að hann
hygðist ekki efna til þjóðaratkvæðagreiðslu
um Lissabon-sáttmálann ef flokkurinn kemst
til valda í þingkosningum á næsta ári eins og
búist er við. Blaðið segir líklegt að andstæð-
ingar aukins samruna ESB saki Cameron um
að hafa svikið loforð sem hann gaf í grein sem
birt var í dagblaðinu The Sun fyrir tveimur ár-
um. „Núna legg ég fram þessa ófrávíkjanlegu
tryggingu: Ef ég verð forsætisráðherra mun
stjórn Íhaldsflokksins efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvern þann samning sem þessar
viðræður leiða af sér,“ skrifaði Cameron.
bogi@mbl.is
Samræmist stjórnarskránni
Vaclav Klaus, forseti Tékklands, staðfesti í gær Lissabon-sáttmálann eftir að stjórnlagadómstóll
landsins komst að þeirri niðurstöðu að sáttmálinn stangaðist ekki á við stjórnarskrá Tékklands
» David Cameron sagður hafa ákveðið að efna ekki til þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Bretlandi um Lissabon-sáttmálann
» Sakaður um að hafa svikið tveggja ára gamalt loforð sitt
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
EFTIR tíu vikna þjark og ringul-
reið hefur niðurstaða loks fengist í
deilunum um forsetakosningarnar í
Afganistan 20. ágúst sem einkennd-
ust af stórfelldum svikum. Nið-
urstaðan er að hætt hefur verið við
aðra umferð, sem Hamid Karzai
forseti hafði verið neyddur til að
samþykkja. Hann hefur nú verið
lýstur sigurvegari forsetakosning-
anna, þrátt fyrir öll kosningasvikin,
og ráðamenn ríkja heims keppast
við að óska honum til hamingju og
lýsa honum sem lögmætum forseta
Afganistans.
Önnur umferðin átti að fara fram
á laugardaginn kemur en ákveðið
var að hætta við hana í fyrradag
eftir að helsti keppinautur Karzais,
Abdullah Abdullah, fyrrverandi
utanríkisráðherra landsins, ákvað
að draga framboð sitt til baka.
Þegar ljóst var að Karzai yrði einn
í framboði fór Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
til Afganistans og lagði fast að yfir-
kjörstjórn landsins að hætta við
síðari umferðina. Aðeins hálfum
mánuði áður voru embættismenn
SÞ í fylkingarbrjósti erlendra
sendimanna sem knúðu Karzai til
að fallast á aðra umferð þótt hann
hefði neitað öllum ásökunum um
kosningasvik og haldið því fram að
hann væri réttkjörinn forseti Afg-
anistans.
Nasrullah Stanikzai, lektor í lög-
um og stjórnmálafræði við Kabúl-
háskóla, segir að eftirmál kosning-
anna 20. ágúst einkennist af
glappaskotum og hringlandahætti
af hálfu Sameinuðu þjóðanna og
ráðamanna á Vesturlöndum. „Þetta
eru mestu mistök alþjóða-
samfélagsins á síðustu átta árum,“
hefur fréttastofan AFP eftir Stan-
ikzai. „Það var engin samhæfing
milli Bandaríkjanna og Evrópu-
landa. Og engin góð samhæfing
milli þeirra og afgönsku stjórn-
arinnar.“
Karzai niðurlægður
Haroun Mir, forstöðumaður afg-
anskrar hugveitu á sviði stjórn-
mála, tók í sama streng. Hann
sagði að Kai Eide, sendimanni SÞ í
Afganistan, hefðu orðið á mörg
mistök, m.a. með því að reyna að
„hylma yfir“ kosningasvik stuðn-
ingsmanna Karzais.
Afganskir fréttaskýrendur segja
að Karzai hafi verið niðurlægður
þegar hann var neyddur til að fall-
ast á aðra umferð kosninganna.
Hann tilkynnti þá ákvörðun sína á
blaðamannafundi með Eide og
bandaríska öldungadeildarþing-
manninum John Kerry og sá fund-
ur þótti staðfesta grunsemdir
margra Afgana um að forsetinn
væri handbendi vestrænna ríkja.
Mistök á mistök ofan
Viðbrögð SÞ og leiðtoga Vesturlanda við kosningasvikunum
í Afganistan þóttu einkennast af miklum hringlandahætti
Hamid Karzai hefur nú verið lýst-
ur réttkjörinn forseti Afganist-
ans og leiðtogar Vesturlanda
styðja þá niðurstöðu þrátt fyrir
stórfelld kosningasvik stuðn-
ingsmanna forsetans.
Leiðtogar Vesturlanda setja nokk-
ur skilyrði fyrir áframhaldandi
stuðningi við Hamid Karzai for-
seta, m.a. að stjórn hans taki meiri
þátt í aðgerðum til að koma á friði
í landinu og að mynduð verði sterk
ríkisstjórn sem njóti víðtæks
stuðnings.
Embættismenn í Bandaríkjunum
og fleiri löndum hafa einnig krafist
þess að stjórn Karzais skeri upp
herör gegn spillingu í stjórnkerf-
inu og fíkniefnaviðskiptum. Þeir
vilja að spilltir embættismenn
verði handteknir en talið er ólík-
legt að þeim verði að þeirri ósk
sinni.
Á meðal Afgana sem vestræn
stjórnvöld vilja að verði sóttir til
saka er bróðir Karzais, Ahmed Wali
Karzai, sem er grunaður um aðild
að ólöglegum ópíumviðskiptum.
Einn helsti bandamaður Karzais,
Muhammad Qasim Fahim varafor-
seti, hefur einnig verið bendlaður
við fíkniefnasmygl.
Karzai hét því í gær að skera
upp herör gegn spillingu í landinu
á blaðamannafundi sem hann hélt
með Fahim varaforseta.
Bróðir Karzais bendlaður fíkniefnasölu
Reuters
Réttkjörinn? Karzai hét herferð gegn spillingu á blaðamannafundi í gær.
www.noatun.is
GRILLAÐUR
KJÚKLINGUR
KR./STK.
998
VERÐ
FRÁBÆRT
Ódýrt,
fljótlegt
og gott!