Morgunblaðið - 04.11.2009, Side 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
✝ Eygló V. Hjaltal-ín fæddist í Bro-
key á Breiðafírði 15.
júní 1909. Hún lést í
Reykjavík 28. októ-
ber 2009. Foreldrar
heinnar voru Vigfús
Jónsson Hjaltalín,
bóndi í Brokey, f. 4.
október 1862, d. 3.
júlí 1952, og kona
hans Kristjana Guð-
björg Kristjánsdóttir
Hjaltalín frá Gunn-
arsstöðum í Hörðu-
dal í Dalasýslu, f. 10.
september 1874, d. 17. febrúar
1968. Systkini Eyglóar voru Jón
Bergur, f. 8. júlí 1895, d. 17. apríl
1994, Guðbjörg Kristín, f. 16. des-
ember 1896, d. 21. október 1993,
búfræðingur og bóndi, f. 1872, d.
1942, og kona hans Sigrún Eiríks-
dóttir, f. 1885, d. 1970. Þau fluttu
1913 til Manitoba í Kanada og var
Hirti komið í fóstur hjá föð-
ursystur sinni Steinunni H.
Bjarnason og manni hennar
Brynjólfi H. Bjarnason, kaup-
manni í Reykjavík.
Synir Eyglóar og Hjartar eru 1)
Vigfús, f. 12. september 1937, 2)
Sigursteinn, f. 21. nóvember 1940,
kvæntur Jytte Hjartarson, f.
Thyre, og eiga þau 4 börn, 3)
Pálmi Guðberg, f. 21. ágúst 1944,
og 4) Guðmundur Brynjólfur, f.
11. febrúar 1947, kvæntur Björgu
D. Snorradóttur og eiga þau 4
börn.
Eygló útskrifaðist úr kenn-
araskólanum 1932 og kenndi svo
vestur í Dölum og í Mosfellssveit,
en eftir að hún stofnaði heimili
sinnti hún því eingöngu og hætti
kennslu. Hún var bókelsk, listræn,
góð hannyrðakona, hafði yndi af
góðri tónlist og lék sjálf á orgel
(harmonium), hafði gott auga fyrir
Ijósmyndun, ferðaðist mikið, eink-
um um Ísland, og seinast í viku-
ferð um landið í sumar 100 ára
gömul. Hún var mjög rausnarleg
og fékk þennan myndarskap í arf
úr föðurhúsum. Þau hjón Eygló og
Hjörtur voru mjög trúuð og mjög
samhent enda bæði listræn og
hög. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu
þau í Vesturbæ Reykjavíkur, en
1944 keyptu þau nýtt einbýlishús
á Hrísateigi 27 í Reykjavík og þar
var heimili hennar síðan.
Útför Eyglóar fer fram frá
Fossvogskirkju í Reykjavík, í dag,
4. nóvember, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Hildur Halldóra, f.
20. maí 1898, d. 22.
desember 1985, Lára
Málfríður, f. 19. jan-
úar 1900, d. 13. maí
1992, Jósefína Lilja,
f. 27. maí 1903, d. 12.
nóvember 1998, Vil-
hjálmur Óskar, f. 31.
desember 1905, d.
16. maí 2000, og
Laufev, f. 25. maí
1915, d. 21. apríl
1939.
Eygló giftist 6.
júní 1936 Hirti E.
Guðmundssyni, lögreglumanni og
síðar forstjóra Kirkjugarða
Reykjavíkur, f. 26. febrúar 1913,
d. 18. desember 1975. Foreldrar
hans voru Guðmundur Hjartarson,
Eygló er dáin. Nú hefur hún síð-
ust systkinanna frá Brokey, barna
Kristjönu og Vigfúsar Hjaltalíns,
kvatt þennan heim. Það eru marg-
ar minningarnar sem ég á um
Eygló og hennar fjölskyldu. Sú
elsta er sennilega frá árinu 1944
þegar mamma, systir Eyglóar, fór
með mig tveggja ára kút til
Reykjavíkur til að fá eitthvað inn í
skóna mína því að ég var með flat-
fætur. Við gistum á Hringbraut-
inni þar sem Eygló bjó þá ásamt
Hirti Guðmundssyni, manni sínum,
sem var í lögreglunni. Frá seinni
tímum hrannast minningarnar
upp. Mörgum sinnum komu Eygló
og fjölskylda til foreldra minna:
Það var alltaf jafn gaman þegar
þau komu. Hjörtur var maður kát-
ur og ræðinn og hafði frá mörgu
að segja en Eygló var gædd þeim
hæverska vingjarnleik sem vekur
virðingu og hlýhug. Ég var oftar
en einu sinni viðstaddur þegar
systurnar úr Brokey komu saman
og voru þá málin stundum rædd af
mikilli tilfinningu og sýndist
gjarna sitt hverjum. Eygló var
alltaf rólegi póllinn í hópnum sem
miðlaði málum og lét skynsemina
ráða.
Ég kom æði oft á Hrísateiginn
þar sem þau hjónin byggðu mynd-
arlegt hús. Eftir að ég óx úr grasi
átti ég þar oft athvarf á leiðinni
burt af landinu og til baka. Gest-
risnin var mikil og alltaf fannst
pláss fyrir næturgest þótt rýmið
væri ekki mikið miðað við stærð
fjölskyldunnar. Það var alltaf sami
hógværi virðuleikinn sem ein-
kenndi heimili Eyglóar og Hjartar.
Þau hjónin og synir þeirra voru
skemmtilegir gestgjafar sem gátu
rætt um alla heima og geima en
sýndu gestum sínum áhuga og at-
hygli. Það var alltaf gaman að
koma á Hrísateiginn.
Það er sárt að sjá á eftir konu
eins og Eygló. En allt hefur sinn
tíma og líf hennar var nú orðið yfir
100 ár. Það mátti búast við ferð-
inni miklu. Það var ótrúlegt hvað
henni entist heilsa og hugur. Hún
naut raunar mikillar umhyggju
sona sinna.
Eygló var af langlífri fjölskyldu.
Foreldrar hennar og systkini náðu
öll mjög háum aldri að yngstu
systurinni undanskilinni. Eygló
varð þó elst.
Orðstír hennar mun lifa meðal
þeirra sem hana þekktu.
Reynir Vilhjálmsson
frá Narfeyri.
Eygló V. Hjaltalín
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN JÓNSSON,
Boðahlein 15,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
27. október.
Útförin fer fram frá Garðakirkju á Garðaholti
fimmtudaginn 5. nóvember kl. 13.00.
Björg Bjarndís Sigurðardóttir,
Soffía Margrét Jónsdóttir,
Guðmundur Jón Jónsson, Hjördís Alexandersdóttir,
Marín Jónsdóttir,
Gunnar Jónsson,
Steinar Skarphéðinn Jónsson, Sigrún Gissurardóttir,
Rósa Ingibjörg Jónsdóttir, Oddgeir Björnsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
VILHELM SIGURÐUR ANNASSON
skipstjóri,
Norðurbakka 23,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 6. nóvember kl. 13.00.
Særún Axelsdóttir,
G. Margrét Vilhelmsdóttir, Jörgen Fröik,
Guðný Anna Vilhelmsdóttir, Trausti Magnússon,
Sjöfn Vilhelmsdóttir,
Jónas Hlíðar Vilhelmsson, Bylgja Hilmarsdóttir
og barnabörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN LOFTSDÓTTIR
frá Vilborgarstöðum,
Vestmannaeyjum,
Blöndubakka 12,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 16. október, verður jarðsungin
frá Breiðholtskirkju föstudaginn 6. nóvember
kl. 13.00.
Loftur Harðarson,
Friðrik Harðarson, Guðrún Sveinsdóttir,
Ágústa Harðardóttir, Jón Snorri Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát föður okkar, tengda-
föður og afa,
ÞORSTEINS R. HELGASONAR
frá Borgarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Droplaugar-
staða.
Helgi S. Þorsteinsson, María Björk Wendel,
Jakob Schweitz Þorsteinsson, Erla Ruth Harðardóttir,
Þorsteinn Schweitz Þorsteinsson, Tove Larsdotter
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður,
JÓHANN ÞÓRIR ALFONSSON,
sem andaðist sunnudaginn 25. október,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn
6. nóvember kl. 13.00.
Þeir sem vilja minnast hans láti Parkinsonsamtökin
á Íslandi njóta þess.
Margrét Vigfúsdóttir Alfonsson.
✝
Elskulegur bróðir minn og mágur,
PÉTUR ANDERSEN
frá Hásteinsvegi 27,
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja sunnu-
daginn 1. nóvember.
Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 7. nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Jóhanna Andersen, Óskar Þórarinsson.
✝
Okkar ástkæra
LÁRA STEFÁNSDÓTTIR
frá Hallgeirsstöðum,
Lagarási 19,
Egilsstöðum,
andaðist föstudaginn 30. október.
Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju föstudaginn
6. nóvember kl. 14.00.
Jarðsett verður í Sleðbrjótskirkjugarði.
Stefanía Hrafnkelsdóttir,
Elis Jökull Hrafnkelsson, Gerður Bjarnadóttir,
Einar Orri Hrafnkelsson, Valgerður Valdimarsdóttir,
Dvalinn Hrafnkelsson,
Ásta Haralda Hrafnkelsdóttir, Guðjón Þórarinsson,
Haraldur Hrafnkelsson, Guðrún Margrét Tryggvadóttir,
Auðbjörg Halldís Hrafnkelsdóttir, Ásmundur Þórarinsson,
Eiríkur Helgi Hrafnkelsson, Kristín Rögnvaldsdóttir,
Þórarinn Valgeir Hrafnkelsson, Helga Jóhannsdóttir,
Alda Hrafnkelsdóttir, Jónas Þór Jóhannsson,
Benedikt Hrafnkelsson, Helga Jónsdóttir,
Björgvin Ómar Hrafnkelsson, Ásta Þorláksdóttir,
Hulda Hrafnkelsdóttir, Eiríkur Skjaldarson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir mín, frænka og amma,
GUÐRÍÐUR ÁSTA BJÖRNSDÓTTIR
frá Haukatungu,
áður til heimilis að
Barðavogi 11,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
2. nóvember.
Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13.00.
Ásgrímur Ágústsson,
Valgarð S. Halldórsson,
Unnur Halldórsdóttir,
Valgerður Solveig Pálsdóttir
og barnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN BOGASON
frá Flatey á Breiðafirði,
Sæbólsbraut 32,
Kópavogi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum
þriðjudaginn 20. október, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 6. nóvember kl. 15.00.
Herdís Jónsdóttir, Halldór Snorri Gunnarsson,
Sigurborg Inga Jónsdóttir, Einar Hafsteinsson,
Bogi Jónsson, Narumon Sawangjaitham,
Sigurbjörg Jónsdóttir, Jón Líndal,
Berglind Jónsdóttir, Ari Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.