Morgunblaðið - 04.11.2009, Síða 28
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
FRAMHALDSSKÓLANEMUM er boðið upp á nám-
skeiðið KrÚtt og KvikYndi í Listasafni Reykjavíkur nú
um miðjan nóvember. Stjórnendur námskeiðsins eru
myndlistamennirnir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Davíð
Örn Halldórsson.
Á námskeiðinu verður unnið út frá sýningu jap-
anska listamannsins Yoshitomo Nara, Innpökkuð
herbergi, og sýningu Egils Sæbjörnssonar, Stað-
arandi og frásögn.
„Þetta verður sett upp eins og verkstæði,
fyrir aldurshópinn 16 til 20 ára, og byggir
meðal annars á sjálfsmyndapælingunum hans
Yoshitoma Nara, hugmyndinni um það sem er
á mörkum þess að vera það fallegt að það er ljótt,“ segir Lóa
Hlín, spurð út í námskeiðið. „Þátttakendur mega nota hvaða
miðil sem er en við munum m.a. vinna með rýmið, boli, bíl,
bækur og annað sem við komum höndum yfir. Þetta er list
byggð á poppkúltúr, því sem er í kringum mann. Annars för-
um við ekkert að hefta fólk í sinni sköpun. Við ætlum samt
að reyna að fá þetta unga fólk til að hugsa út fyrir ramm-
an og skoða myndlist öðruvísi,“ segir Lóa Hlín.
Það var listasafnið sem fékk Lóu Hlín og Davíð til
liðs við sig en þau hafa áður unnið með unglingum
og krökkum við listsköpun.
Aðeins tuttugu nemendur komast að á nám-
skeiðinu og er skráning hafin á netfanginu fra-
edsludeild@reykjavik.is. Nánari upplýsingar má
finna á heimasíðu listasafnsins, www.listasafn-
reykjavikur.is.
KrÚtt og kvikYndi fyrir skapandi ungmenni
Kennarar Davíð Örn og Lóa Hlín .
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Tónlistarkonan Lára Rúnars-
dóttir fagnar nýútkominni breið-
skífu sinni, Surprise, með tón-
leikum á Batteríinu, Hafnarstræti
1-3, í kvöld. Húsið opnað kl. 21 og
kostar bara þúsundkall inn.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins
gaf plötunni 3,5 stjörnur og sagði
plötuna þá bestu sem Lára hefði
sent frá sér en Surprise er þriðja
sólóplatan hennar.
„Hér áður fyrr hlustaði ég mikið
á Nick Cave, Tom Waits, Stinu Nor-
denstam og álíka. Frekar drama-
tískur pakki! Það hafði auðvitað
áhrif á tónlistina. Svo fór ég að
hlusta minna á þannig tónlist …
kannski af því að ég sjálf varð
minna dramatísk,“ sagði Lára m.a.
í viðtali við blaðamann á dögunum
vegna plötunnar. Spurð að því
hvort nýfætt barn hennar hefði haft
áhrif á plötuna svaraði Lára: „Þessi
hreina lífsgleði sem fylgir nýfæddu
barni leikur um plötuna, það er
ekki vafi.“
Lára með útgáfu-
tónleika í Batteríinu
Fólk
Platan Vinalög, samstarfsverk-
efni söngvaranna Friðriks Ómars
og Jógvans Hansen, hefur heldur
betur slegið í gegn, er mest selda
plata Íslands aðra vikuna í röð og
þar að auki mest selda platan í Fær-
eyjum. Þá er færeysk útgáfa lags-
ins „Þú komst við hjartað í mér“,
„Tú Nart við Hjartað á Mær“ vin-
sælasta lagið í Færeyjum í flutningi
Jógvans en hann er Færeyingur.
Þeir Friðrik Ómar og Jógvan halda
tónleika í Salnum í Kópavogi föstu-
daginn 13. nóvember kl. 20.30.
Miðasala er hafin á tónleikana og
vonandi að föstudagurinn 13. verði
til gæfu fyrir félagana.
Vinalög á toppnum á
Íslandi og í Færeyjum
Fólk virðist ekki ætla að spara
við sig jólatónleikana í ár þrátt fyr-
ir þrengri fjárhag en áður. Miða-
sala gengur mjög vel á Jólagesti
Björgvins Halldórssonar og ekki er
hún síðri á Frostrósir.
Almenn miðasala hófst á Frost-
rósir í gærmorgun og strax var sett
miðasölumet. Á aðeins klukkutíma
höfðu selst alls yfir 10.000 miðar
um allt land, þar af uppselt á
tvenna tónleika í Laugardalshöll og
nánast uppselt á Akureyri. Einnig
var orðið uppselt á klukkustund á
þremur stöðum um landið, þ.e.
Eskifirði, Egilsstöðum og í Varma-
hlíð. Strax er farið að skoða auka-
tónleika á Egilsstöðum, Eskifirði og
í Reykjavík þann 13. desember.
Jólahjóla hvað...?
Íslendingar jólatón-
leikaóðir enn og aftur
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Snædrottningin er heitið á vetrarlínuhattahönnuðarins íslensk-tyrkneskaÖzden Dóru. Sýning verður opnuð hérá landi í dag á línunni sem er sú fyrsta
sem Dóra, eins og hún er kölluð á Íslandi, sendir
frá sér.
Dóra er búsett í London og lærði hattahönn-
un þar, meðal annars hjá Rose Cory sem var
hattameistari bresku drottningarmóðurinnar og
Kirsten Scott sem er fyrrverandi hattahönn-
uður Karl Lagerfeld, Chanel og Fendi.
„Ég hafði alltaf mikinn áhuga á öllu sem
tengdist sviðsbúningum og tísku, ég hafði líka
lært myndlist og tónlist. Einn daginn ákvað ég
að læra einhverja hönnun og valdi bara hattana.
Það var eiginlega tilviljun en ég lenti þar á réttri
hillu,“ segir Dóra spurð af hverju hún hafi farið
út í hattahönnun.
„Ég byrjaði á því að fara í tíma til Rose Cory
og þaðan fór ég í fimm mánaða verknám. Ég
ákvað þá að fullnuma mig í þessu og fór í hatta-
hönnunardeildina í Kensington and Chelsea
College. Kirsten Scott stofnaði hana en hún er
mjög eftirsótt og stórt nafn í hattahönnun.“
Ekki er langt síðan Dóra útskrifaðist en síðan
þá hefur hún verið að vinna fyrir aðra hönnuði
og við að setja upp eigið merki.
Uppruninn innblástur
Dóra segir innblásturinn að línunni aðallega
koma frá upprunalöndum sínum, Íslandi og
Tyrklandi. „Ég nota sögur og mína menningar-
heima, allt sem tengist Íslandi og Tyrklandi. Ég
safna miklu af myndum t.d. af náttúru, hlutum
og arkitektúr og teikna út frá þeim og prófa mig
svo áfram út frá teikningunum,“ segir Dóra.
Er línan innblásin af ævintýrinu um Snæ-
drottninguna, eins og nafnið gefur til kynna?
„Já, það byrjaði þannig. Mér fannst sagan
skemmtileg þegar ég var krakki. Ég las hana
hér á Íslandi þegar ég var lítil og fannst að Snæ-
drottningin væri íslensk og því er línan innblásin
héðan og gerð úr íslensku hráefni,“ segir Dóra. Í
hattana og hárskrautið notar hún m.a lopa, fisk-
roð, refaskinn og kanínuullarþófa. „Íslenska
náttúran er eftirminnileg og hún er rómantísk
og það hefur áhrif,“ segir Dóra sem flutti héðan
þegar hún var tíu ára, fyrir 22 árum síðan.
„Ég leita líka mikið í tyrknesku ræturnar sem
eru mjög ólíkar þeim íslensku. Ísland er hrátt og
rómantísk, náttúran falleg en um leið yfirþyrm-
andi. En í Tyrklandi leita ég frekar til silkiefn-
anna og fáguninnar. Það er gaman að reyna að
blanda þessu saman. En Tyrkland verður mér
kannski frekar innblástur í sumarlínur.“
Höfuðskraut sem skúlptúrar
Snædrottningin samanstendur af höttum og
hárskrauti. Dóra segist ekki gera mikið af
hversdagslegum höttum, þetta séu frekar kok-
teilhattar fyrir partíið eða brúðkaupið.
„Draumurinn hjá mér er að hanna beint á við-
skiptavininn. Að konur geti komið til mín og
sagt mér hvernig kjól þær ætli að klæðast við
hvaða tilefni og ég bý til hatt sem passar við
klæðnaðinn. Það er mikið um það í London að
konur láti gera séstaka hatta fyrir sig fyrir sér-
stök tilefni, t.d. giftingar, partí og veðreiðar.
Hattaheimurinn í London er í raun og veru
frekar lítill og hefðin löng. Sumir eru bara að
hanna fyrir einkakúnna, aðrir tískuheiminn og
enn aðrir eru í hversdagshöttunum. Ég er að-
eins að prófa mig áfram núna og sjá hvað hentar
mér,“ segir Dóra sem gengur þó lítið með hatta
sjálf. „Nei, mig vantar tækifæri til þess, fer ekki
nóg í partí,“ segir Dóra og hlær. „Annars býr sá
draumur líka í mér að nota hattahönnunina í
listrænar innsetningar. Ég væri til í að sjá eitt-
hvað af hönnun minni sem skúlptúra alveg eins
og höfuðskraut og vinna bæði með tísku og list.“
Hönnun Dóru hefur verið samþykkt til sölu
hjá Fenwick á Bond Street í London og hún á nú
í samstarfi við Steinunni Sigurðardóttur fata-
hönnuð. Það er einmitt í verslun Steinunnar í
Bankastræti sem Dóra opnar sýningu í dag á
línu sinni og verður sýningin uppi út nóvember.
„Á sama tíma er ég að sýna í Amsterdam, í
Hot Ice galleríinu en það er með íslenska hönn-
unardaga. Síðan er ég bara að fara að hanna
næstu línu, fyrir næsta ár,“ segir Dóra að lok-
um.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dóra Lærði hattahönnun í London og þá m.a. hjá Kirsten Scott sem er fyrrverandi hattahönnuður Karl Lagerfeld, Chanel og Fendi.
Uppruninn innblástur
Hattahönnuðurinn Özden Dóra opnar sýningu á handgerðum höttum og
hárskrauti í dag hjá Steinunni Lærði hjá virtustu hattahönnuðum Bretlands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hattadýrð Fjórir hatta Dóru sem verða meðal annarra
á sýningunni sem opnuð verður í dag í verslun fatahönn-
uðarins Steinunnar að Bankastræti 9. Sýningin mun
standa út mánuðinn. Dóra segir að sér hafi fundist Snæ-
drottningin vera íslensk og því sé línan með íslenskum
innblæstri og gerð úr íslensku hráefni.