Morgunblaðið - 04.11.2009, Síða 31
ar á brútal ljóðagerð. Tökum fyrstu
setningarnar í titillaginu sem dæmi:
Disease spreading death –
Entire population dies –
Dead before you’re born –
Massive suicide.
Best að fara ekki lengra út í þá
sálma í borgaralegum fjölmiðli.
Bjartsýni og almennur hressleiki
hafa svo sem aldrei verið að sliga
Slayer. Menn sprikla ekki beinlínis
af hamingju.
Fyrir vikið hefur margur viljaðdraga sveitina í myrkustu
dilka mannlífsins og borið henni
allskonar óhróður á brýn, svo sem
þrælslega hlýðni við kölska. Félag-
arnir hafa ávallt vísað þeim ásök-
unum til föðurhúsanna enda þótt
guðsmenn séu þeir litlir.
Einnig má nefna meint daður við
nasisma. Vissulega fjallar eitt fræg-
ast lag Slayer, Angel of Death, svo
sem nafnið gefur til kynna, um dr.
Josef Mengele og tilraunir hans í
fangabúðum nasista, en þeir veg-
endur hafa eigi að síður aldrei
gengist við samúð með málstað nas-
ismans. Viðurkenna aðeins að hafa
áhuga á hugmyndafræðinni. Yfir-
burðir hins aríska kynstofns rista
heldur ekki dýpra en svo að Tom
Araya er ættaður frá Chile og Dave
Lombardo frá Kúbu. Adolf gamli
hefði aldrei djammað með þeim.
orri@mbl.is
Ímars árið 1977 var kvikmyndaleikstjórinnRoman Polanski, þá 44 ára, handtekinnfyrir að hafa svívirt 13 ára stúlku, Sam-önthu Geimer, á heimili Jacks Nicholson í
Hollywood. Hann var sakaður um að hafa gefið
henni vín og róandi lyf og nauðgað henni. Lög-
maður Geimer fór síðar fram á að ákærunni yrði
breytt í samræði við ólögráða einstakling og að
stúlkunni yrði haldið utan við málið til að reyna að
verja hana fyrir ágangi fjölmiðla og álaginu sem
fylgir réttarhöldum. Polanski gekkst við þessum
sakar-giftum.
Þessir málavextir eru útgangspunktur heim-
ildamyndarinnar Roman Polanski: eftirlýstur og
þráður sem frumsýnd var hérlendis um helgina.
Myndin neitar því ekki að glæpsamlegt ósiðlegt
athæfi hafi átt sér stað en Polanski verður í raun
að fórnarlambi fremur en geranda í meðförum
Zenovich. Hún færir sökina af einfeldningslega
nautnaseggnum Polanski yfir á útséða dómarann
Rittenband sem stýrði málfærslumönnum og öðr-
um réttarstarfsmönnum eins og peðum í mik-
ilmennskutafli sínu með athygli fjölmiðla og við
sköpun stjörnuímyndar sinnar. Rittenband er
gerður að erkifjanda og sá málflutningur verður
stundum hjákátlegur. Það er til dæmis algjörlega
óháð sekt Polanski að dómarinn hafi átt tvær frill-
ur utan hjónabands. Vissulega var þetta dómsmál
einn skrípaleikur og verðugt efni í heimilda-mynd
en það þýðir ekki að Polanski hafi átt að sleppa
með skrekkinn – hann flúði dómsúrskurð til
Frakklands og hefur lifað og starfað þar síðan.
Heimildamyndin er tæknilega framúrskarandi
og frásögnin er skýr. Það er flott að sjá hvernig
gömlu myndefni, bæði fréttaumfjöllun, gömlum
viðtölum og efni og tónlist úr myndum leikstjór-
ans er fléttað snurðulaust inn í frásögnina í bland
við textaspjöld og ný viðtöl við breiðan hóp fólks
sem tengdist málinu eða Polanski persónulega. Þó
að ekki sé lögð blessun yfir glæpinn er slagsíða í
umfjölluninni því að helst til mikil samúð er sýnd
með Polanski en engu að síður er dregin upp
einkar lífleg og áhugaverð nærmynd af honum.
Myndin er spennandi og heldur athygli áhorf-
andans enda tekur hún á eldfimu og umdeildu
efni. En hún er strax orðin pínulítið úrelt þar sem
hún var kláruð áður en Polanski var handtekinn í
Sviss, í september síðastliðnum. Þangað var hann
kominn til að taka við verðlaunum fyrir fram-
úrskarandi ævistarf sitt í þágu kvikmynda en
hann hefur alla tíð notið mikillar virðingar kvik-
myndaakademíunnar sem virðist hafa horft
framhjá sekt hans.
KVIKMYND
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
Leikstjórn: Marina Zenovich. Handrit: Joe Bini, P.G.
Morgan, Marina Zenovich. Heimildamynd. 99 mín.
Bandríkin, 2008.
Roman Polanski: eftirlýstur og þráður / Roman
Polanski: Wanted and Desired
bbbmn
Regnboginn
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Sýnd kl. 8 og 10:15
Sýnd með ísl. tali kl. 6
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHH
„Teikningarnar og tölvu-
grafíkin ber vott um
hugmyndaauðgi og er afar
vönduð, sannkallað konfekt
fyrir augað.”
-S.V., MBL
„9 er allt að því framandi
verk í fábreytilegri
kvikmyndaflórunni, mynd
sem skilur við mann dálítið
sleginn út af laginu og
jákvæðan”
-S.V., MBL
Sýnd kl. 6, 8 og 10
4 PÖR FARA SAMAN Í
FERÐALAG TIL HITABELTISEYJU
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SUMIR DAGAR...
NÝ ÍSLENSK
GAMANMYND
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI
REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
HHH
„Tímamótamynd!”
– Erpur Eyvindarson, DV
HHH
– Sæbjörn Valdimarsson, Mbl
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í REGNBOGANUM
Bíómynd fyrir
alla krakka
HHHH
„ALVEG ÓGEÐSLEGA FYNDIN“
– ÞÞ, DV
HHHH
„ZOMBIELAND ER KLIKKUГ
T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„ AÐDÁENDUR VERÐA EKKI
SVIKNIR.“
V.J.V, Fréttablaðið
HHH
D.Ö.J., kvikmyndir.com
HHH
-S.V., MBL
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
HHHH
ÓHT, Rás 2
HHHH
– H.S., MBL
HVAÐ GÆTI
MÖGULEGA FARIÐ
ÚRSKEIÐIS?
Sýnd kl. 6, 8 og 10
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HHHHH
„Þetta er alvöru
tær snilld.”
A.K., Útvarpi Sögu
HHHHH
„Æðisleg. Þetta er
það besta síðan
Sódóma Reykjavík“
A.G., Bylgjan
26.000 MANNS!
BÚÐU ÞIG UNDIR
MATRÖÐ SEM ÞÚ
GLEYMIR SEINT
SUMIR DAGAR...
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
This is It kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Jóhannes kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
This is It kl. 5:30 Lúxus 9 kl. 4 B.i.10 ára
Zombieland kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára
Friðþjófur forvitni (ísl. tal) kl. 3:40 LEYFÐ
POLANSKI gekk fyrst í hjónaband 1959 með
Barböru Lass en það var skammvinnt og
endaði með skilnaði 1961. Polanski kynntist
síðar stóru ástinni, leikkonunni Sharon Tate,
við kvikmyndatökur. Þau gengu í það heil-
aga 1968 og fjölmiðlar böðuðu þau sviðsljósi.
Sharon var svo myrt á hrottalegan hátt af
Manson-genginu árið síðar, þá ófrísk að
barni þeirra Polanskis. Polanski var eyði-
lagður og leitaði huggunar í faðmi fagurra
fljóða sem voru sum hver helst til ung.
Kvennabósinn táldró meðal annars hina
kornungu Samönthu Geimer og var sóttur til
saka fyrir það en hann átti einnig í sambandi
við Natössju Kinski, þá 15 ára, en það virðist
hafa komið minna við kaun almennings. Árið
1989 kvæntist Polanski svo núverandi eig-
inkonu sinni, Emmanuelle Seigner, og eiga
þau saman tvö börn.
Ástarlíf Polanskis
Eftirsóttur „Myndin neitar ekki að glæpsamlegt
ósiðlegt athæfi hafi átt sér stað en Polanski verð-
ur í raun að fórnarlambi fremur en geranda.“
Lofsamaður barnaníðingur!