Vilji - 01.10.1927, Blaðsíða 3
1. tölubl.
Reykjavík, október 1927
1. árg.
Fylgt úr hlaði.
Æskan er undirbúningstími fullorðinsáranna. Að
vísu hefir hún sitt gildi einnig út af fyrir sig, sem sjálf-
stæður þáttur lifsins, en samhengi lífsins gerir það, að
hún verður að mjög miklu leyti að skoðast sem undir-
búningstími. Það er því að nokkru leyti unt, að ráða
framtíðina af þrám og tilraunum æskumanna. Fyrir
hugsandi menn er það þess vegna jafnan fróðlegt, aö
veita slíku athygli.
Það heyrist oft sagt nú á tímum, að unga fólkið
hirði ekki um annað en skemtanir, og nokkuð mun vera
hæft í því. Þykir mörgum að vonum, sem það spái
engu góðu um framtíð ungmennanna. Má það vví þykja
gleðiefni, er það verður augljóst, að ekki eru þeir allir
með sama markinu brendir, og að þrár sumra leita
hærra en svo, að „böll og bíó“ fullnægi þeim.
Jeg lít þannig á þetta rit, sem nú byrjar tilveru
sína, að það bendi á, að þeir, sem að því standa, finni
hjá sjer þörf á að beina huga sínum að öðrum við-
fangsefnum en þeim, sem efst eru á baugi hjá öllum
þorra ungra manna, — að þá langi til að reyna væng-
ina, áður en þeir hefja sig til flugs fyrir fult og alt út
í bláa heiðríkju ókominna manndómsára. Og jeg vil
óska þeim gæfu og gengis í þeh’ri tilraun. Heiminum
er nú einu sinni svo háttað, að
•frnm \riaa aVöp
og þó að gott geti verið að líta við og við um öxl á far-