Vilji - 01.10.1927, Blaðsíða 16
14
V I L J I
og- jeg höfum nokkur vor farið í slík ferðalög. Við höf-
um farið fótgangandi um ýmsar sveitir landsins og haft
með okkur tjald og allar nauðsynjar. Höfum við eldað
allan okkar mat sjálfir og getað gert það með ótrúlega
litlum tilkostnaði. Verð jeg að segja, að aldrei hefi jeg
verið hraustari andlega og líkamlega, færari í allan sjó
og hæfari til að lifa lífinu sem einmitt eftir þessar ferðir.
Það er einkennilegt til þess að hugsa, að í þessum
bæ er fjöldi manna, sem árlega eyðir offjár í ,,kaffi-
húsaslangur“, kvikmyndahúsin, dansleiki, tóbak, áfengi
og aðrar nautnir, en sjaldan eða aldrei hafa komið út
fyrir landsteinana. Þessir menn eru einkum búðarþjón-
ar, skrifstofumenn og lögfræðingar. Það er áreiðanlega
ekki ofmælt, að ef þessir menn spöruðu sjer þennan
óþarfa, myndu þeir, fyrir fje það, sem þeir nú eyða í
hann, geta brugðið sjer að minsta kosti annað-hvort ár
til einhvers af nágrannalöndunum.
Að mínu áliti er fátt skemtilegra en að ferðast
meðal annarlegra þjóða. Það er heldur ekkert eins
þroskandi og hæfara til þess,- að víkka andlegan sjón-
deildarhring manna.
Það er einkennileg staðreynd, að maður tekur miklu
betur eftir ýmsum smáatriðum, þegar maður er á ferða-
lagi, en ella. Það getur verið ýmislegt það í bæ þeim,
sem maður er fæddur og uppalinn í, sem maður tekur
aldrei eftir, en gangi maður í gegn um borg, sem mað-
ur er ókunnugur í, tekur maður eftir öllum sköpuðum
hlut.
Jeg held að menn geri sjer yfirleitt ekki grein fyr-
ir því. hvað ferðalög eru ákaflega þroskandi. Það er
ekkert eins gott til þess að vekja latan heila og gefa
mönnum víðsýnni hugmyndir um menn og málefni. —
Það getur að vísu líka verið ákaflega mentandi að lesa
ferðabækur, en það nálgast þó bersýnilega ekki neitt
það, að ferðast sjálfur, því að við lesturinn er maður þó
altaf undir áhrifum höfundarins.
Ahnars gera menn, þá er þeir ferðast í framandi
löndum, meira að því að skoða löndin sjálf og það, sem
þar er að sjá, en að skoða íbúana sjálfa. En þetta er, að
mínu áliti, röng aðferð. Vilji maður hafa sem mest gagn