Vilji - 01.10.1927, Page 11

Vilji - 01.10.1927, Page 11
VIL JI 9 Hjátrú og afleiðingar hennar. Frá því er sögur hefjast, hefir hjátrúin átt djúpar rætur í hugum þjóðanna. Ríkust hefir hún jafnan verið hjá þeim mönnum, sem einangraðir hafa lifað frá um- heiminum og menningunni. Hinar stórmerkilegu íslensku þjóðsögur eiga kyn sitt að rekja til hinnar forn-íslensku alþýðu, sem bæði var fróð um marga hluti og látlaus í frásögn. Þjóð- sögurnar eru afkvæmi hjátrúarinnar og mentunar- skortsins. Um langan aldur var það mestu erfiðleikum bund- ið að fá alþýðumenn upp til sveita, er mikið kunnu af fræðum þessum, til að leysa frá skjóðunni og miðla almenningi af andlegum nægtabrunni sínum, —- þjóð- sögunum. Margir álitu það skömm og hneisu að kunna þær, og jafnvel sumir þeirra fræðimanna, er mest áhrif höfðu á alþýðu landsins, drógu engar dulur á, að þeim þætti það hin mesta óvirða. Einkum var það Konr. Maurer, sem innrætti fslend- ingum virðingu fyrir þessum brunni djúprar speki og þekkingar. Það var honum hið mesta kappsmál, að þær legðust ekki í gröfina með þeim mönnum, er þær kunnu. Fyrir fáeinum áratugum gerðist atvik í Ameríku, sem gaf hjátrú sjómanna byr undir báða vængi. Á skipi einu, sem sigldi um Erievatn, duttu með stuttu millibili tveir hásetar niður úr reiðanum og hrygg- brotnuðu. Þegar skútan kom til borgarinnar Buffalo, ljetu skipverjar skrá sig af henni, allir nema einn auk skipstjórans. Með mestu erfiðleikum gátu þeir loks fengið nýja skipverja. Komu flestir þeirra ölvaðir á skipsfjöl, enda voru þeir af allra lægstu stjettum mannfjelagsins. Alt í einu benti einn þeirra upp í reiðann og

x

Vilji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.