Vilji - 01.10.1927, Qupperneq 15

Vilji - 01.10.1927, Qupperneq 15
VI L J I 13 Um að ferðast. Það hefir löngum vakið undrun mína, hvað Islend- ingar og þó einkum yngri kynslóðin, gera lítið að því að ferðast, — við sem eigum þó land, sem er öllum öðrum löndum ríkara að náttúrufegurð og merkilegum sögustöðum. Því að um það verður varla deilt, að á Is- landi gefur að líta sjerkennilegra og margvíslegra lands- lag, en nokkurs staðar annars staðar í heiminum. Eink- um eru það þó hin dásamlegu litbrigði himinsins um sumartímann og þá einkum á kvöldin, sem hvergi eiga sinn líka, og munu í framtíðinni eiga mestan þátt í að seiða útlenda ferðamenn hingað til landsins. — Það er einkennilegt til þess að hugsa, að útlendingar skuli leggja á sig erfiði og eyða stórfje í að koma hingað til að njóta náttúrufegurðarinnar, en að íslendingar, sem þó hafa margfalt meira tækifæri til þess, skuli ekki ferðast meir um landið, en raun er á. Hjer í Reykjavík eru að vísu margir ungir menn, sem nota hvert tækifæri, 'sem gefst, til þess að skoða náttúruna og njóta sveitaloftsins, en yfirleitt virðist mjer allur þorrinn sneyddur þeim næmleik tilfinningar- innar, sem þarf til þess að geta notið sjerkennilegrar náttúrufegurðar. Eða hvað, veldur því, að t. d. menta- skólapiltar gera svo lítið að því, að ferðast um landið? — Fjárskortur, svarar einhver. — Vitleysa, segi jeg. — Það getur enginn talið mjer trú um, að þeir, sem hafa efni á að eyða eins miklum tíma og fje í ljelegar skemtanir, eins og allur þorri mentaskólapilta gerir á veturna, hafi ekki efni á að verja svo sem hálfsmánað- artíma á vorin í að fara um sveitir landsins. Hversu holl áhrif myndi það hafa, ef skólapiltar temdu sjer, að verja svo sem hálfum mánuði á vori hverju í að skoða landið. Það má gera með nauðalitlum tilkostnaði, með því móti að ferðast fótgangandi nokkr- ir í hóp og sofa í tjaldi á nóttunni. — Jeg tala hjer af eigin reynslu. Með þessu móti má ferðast um öll hjeruð landsins á fáum árum. Á því er enginn efi, að slíkt útilíf hefir ómetanlega góð áhrif bæði á sál og líkama. Nokkrir fjelagar mínir

x

Vilji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.