Vilji - 01.10.1927, Side 18
16
VILJI
Þó að þetta sje aðallega rit æskulýðsins, munum
vjer jafnframt birta greinar og kvæði eftir ýmsa merka
menn og konur, sem sjá það góða í fari æskunnar ekki
síður en hið illa.
Vjer höfðum ákveðið að fjölrita ritið, hafa það
24 bls. að stærð í broti líkt og ,,Iðunn“.
Fyrir tilstilli ýmsra góðra manna breyttum vjer
ritinu, að okkar áliti til stórkostlegra bóta. Er það nú
prentað og þess vegna mun skemtilegra aflestrar og
tilþrifameira. Verður ritið fyrst um sinn 16 bls. í broti
líkt og ,,Skírnir“. Hefir það inni að halda meira les-
mál, en þótt það hefði verið fjölritað og 24 bls. Að
svo mæltu vonum vjer að breyting þessi falli mönn-
um í geð. Biðjum vjer lesendur ,,Vilja“ að taka vægt
á yfirsjónum vorum og því, sem miður kann að takast.
Vonum vjer fastlega, að vilji verði kærkominn gestur
inn á hvert heimili og ekki síst til æskunnar.
Reykjavík, 7. okt. 1927.
Pjetur Johnson. Pjetur Ólafsson.
Sigurður Halldórsson.
Ritstjórar:
Pjetur Johnson (sími 130), Pjetur Ólafsson (sími 455),
Sigurður Halldórsson (sími 512).
_ - —— ,
Afgreiðslu ritsins annast Sig. Halldórsson, Laufásveg 46.
ísafoldarprentsmiðja h.f.