Saga - 1980, Page 350
RITFREGNIR
og c
ooo
dögum fámenniskjördæma. Frambjóðendur virðast hafa vitað um
flesta, eða þóst vita, hvort þeir væru framsóknarmenn eða sjálf-
stæðismenn. Nokkrir reyndu að fara dult með skoðanir sínar, og þó
hefur Steingrímur oftast einhvern grun um þær. Það hefur sýnilega
ekkert verið til sparað að þefa uppi hvað menn kusu. Öfrelsi kjós-
enda kem,ur vel fram í sögunni af Jóni Jónssyni frá Hamri, þegar
hann kom að kjósa árið 1933. Frambjóðandinn Steingrimur Stein-
þórsson sat inni í kjörstofunni og fylgdist með (bls. 232):
Þegar Jón gamli var búinn að kjósa og var að bjástra við að
láta seðilinn í kjörkassann, skotraði karl til mín augunum hvað
eftir annað, vesaldar- og skömmustulega. Þá var eins og að
mér hvíslað: Nú hefur karlhelvítið svikið þig, en kosið
Sjálfstæðið. Ég gekk út á eftir Jóni gamla og tók hann tali-
Að lokum sagði ég, að ég vissi að hann hefði ekki kosið mig
nú eins og síðast. Kai*l ætlaði fyrst að neita, en hvarf frá
því og viðurkenndi það.
Ekki verður séð að höfundi finnist neitt athugavert við skoðana-
njósnir og skoðanakúgun kosningabaráttunnar. Fyrir honum virðist
þetta vera spennandi leikur. Þess vegna verður hann blessunarlega
opinskár og hispurslaus um þessa hluti.
Útgefendur segjast hafa stillt sig um að lagfæra málfar bókar-
innar til þess að halda sem best máleinkennum höfundar. Ekki ber
að finna að því, örlitlir hnökrar og ósamræmi í málfari eru ekki til
neinna lýta. Þeim mun furðulegra er að útgefendur hafa útbíað frá-
sögn Steingríms með millifyrirsögnum sem klippa hana sífellt i
sundur, víða tveim eða þrem sinnum á blaðsíðu. Meiri þörf hefði ver-
ið á að gera ritinu annað til góða, til dæmis hefði kort af Skaga-
firði, a.m.k. Hjaltadal og nágrenni, komið sér vel. Verri prófarka-
lestur hef ég séð á bókum frá Erni og Örlygi, og eru prentvillur þo
býsna margar.
Gunnar Karlsson.
Tryggvi Emilsson: FÁTÆKT FÖLK, BARÁTTAN
UM BRAUÐIÐ og FYRIR SUNNAN. Æviminningar
I—III. Mál og menning, Reykjavík 1976, 1977 og 1979,
Á síðasta ári kom út þriðja og síðasta bindi æviminninga
Tryggva Emilssonar og ber það heitið Fyrir sunnan. Er þá lokið út-
gáfu þeirrar ævisögu sem hvað mesta athygli hefur vakið hér á landi
síðustu áratugi. Fyrri bindi æviminninganna, Fátækt fólk og BaT'
áttan um brauöið, hlutu frábærar viðtökur gagnrýnenda og almenn-