Skinfaxi - 01.05.2011, Qupperneq 11
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11
„Það er í mörg horn
að líta í undirbún-
ingi fyrir Unglinga-
landsmót. Heilt
yfir hefur þetta
gengið mjög vel
og allir tilbúnir að
leggja sitt af mörk-
um. Þetta er mjög
spennandi verkefni
og við erum full tilhlökkunar yfir að taka á
móti keppendum og gestum. Öll aðstaðan
hér á mótssvæðinu er til fyrirmyndar og við
búum að glæsilegri aðstöðu sem byggð var
upp hér í tengslum við Landsmótið sem við
héldum 2001. Við erum að betrumbæta hana
aðeins en hér er stórt íþróttahús og fjölnota-
hús í Fellabæ sem við getum notað. Til viðbót-
ar er kominn nýr fótboltavöllur með gervi-
grasi í Fellabæ en þeim megin verðum við
með keppni í fótbolta. Það er líka verið að
leggja lokahönd á viðbótarvelli,“ sagði Björn
Ármann Ólafsson, formaður unglingalands-
mótsnefndar fyrir mótið á Egilsstöðum, í
samtali við Skinfaxa.
Björn Ármann sagði lykilatriði í undirbún-
ingi mótsins vera sú reynsla sem ungmenna-
félagshreyfingin býr yfir í því að halda svona
mót. Líka hjálpaði við framkvæmdina sú
reynsla sem starfsmenn byggju yfir. Það er
ekki verið að finna upp hjólið í þessum efnum.
„Öll keppnin er miðsvæðis og því stuttar
vegalengdir að fara fyrir keppendur og gesti.
Mótokrosskeppnin fer fram rétt norðan við
Egilsstaði og hestaíþróttirnar verða á Iðavöll-
um. Tjaldsvæðin eru mitt í byggðarlaginu og
miðpunktur verður líka í Tjarnargarðinum þar
sem mikið verður um að vera fyrir 11 ára og
yngri. Aðstaðan öll getur ekki verið betri og
mönnun í störf sjálfboðaliða hefur gengið
vel. Það eru allir tilbúnir að leggjast á eitt.
Kynningarbæklingur var líka sendur út á
hvert heimili á ÚÍA-svæðinu en sjálfboðalið-
ar munu koma af öllu svæði okkar á Austur-
landi,“ sagði Björn Ármann.
Björn Ármann sagði ennfremur að fátt
hefði komið sér á óvart í undirbúningnum
nema þá hve allir væru jákvæðir í garð móts-
ins og hvað allt starfið hefði gengið vel. Það
hefði líka skipt miklu máli hvað styrktaraðilar
hefðu tekið jákvætt í að styrkja mótið. Ung-
lingalandsmótið hefði skapað sér jákvæða
ímynd sem létti að sjálfsögðu undir allt.
„Það er mikill hugur í heimamönnum að
gera þetta vel og taka vel á móti keppendum
og gestum. Það er mikilvægt fyrir byggðar-
lagið að taka svona mót að sér en kynningar-
gildið er mikið og þá sérstaklega til lengri
tíma litið. Sveitarfélagið sótti fast á að fara í
þetta verkefni og við höfum ennfremur átt
gott samband við Egilsstaðabýli og Egils-
staðabónda vegna tjaldsvæða. Framlag
þeirra hvað það varðar gríðarlega er mikil-
vægt. Við finnum bara fyrir jákvæðni alls
staðar í því sem mótinu viðkemur,“ sagði
Björn Ármann.
– Hvað er Unglingalandsmótið í huga þínum?
„Það hefur mikið forvarnagildi og ekki síst
sjá foreldrar þarna tækifæri til að fara með
börnunum sínum og treysta um leið fjöl-
skylduböndin. Mótin eru að verða miðpunkt-
ur í því að fara og gera eitthvað gott og
skemmtilegt saman. Foreldrar líta orðið á
mótin sem góðan kost fyrir fjölskylduna og
um leið ferðalag ársins. Mótin eru vímuefna-
lausar samkomur sem borið hafa gríðarlega
góðan árangur. Við trúum því og treystum
að ekki færri en tíu þúsund manns sæki mót-
ið að þessu sinni auk annarra ferðamanna
sem verða á svæðinu á þessum tíma,“ sagði
Björn Ármann.
Björn Ármann sagðist vera fullur tilhlökk-
unar og sagðist vona að veðurguðirnir yrðu
hagstæðir eins og venjulega. „Það verður
gaman að vera hér á mótinu og njóta þess
að vera í faðmi fjölskyldunnar með Héraðs-
búum sem hlakka til að taka á móti öllu því
fólki sem sækir mótið,“ sagði Björn Ármann
Ólafsson, formaður unglingalandsmóts-
nefndar, í samtalinu við Skinfaxa.
MÓTIN ERU MIÐPUNKTUR Í
ÞVÍ AÐ GERA EITTHVAÐ GOTT
OG SKEMMTILEGT SAMAN
Björn Ármann Ólafsson, formaður unglingalandsmótsnefndar 2011
Björn Ármann Ólafs-
son, formaður ung-
lingalandsmóts-
nefndar UMFÍ 2011.
F
M
BS