Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2011, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.05.2011, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Vorfundur Ungmennafélags Íslands var haldinn á Ísafirði helgina 27.–28. maí sl. Um 40 fulltrúar sambandsaðila sóttu fundinn. Fyrri daginn komu fulltrúar saman en þá fór fram kynning á starfsemi Evrópu unga fólksins. Það var Hjörtur Ágústsson, starfsmaður Evrópu unga fólks- ins, sem sá um kynninguna sem hafði mikið upplýsingagildi. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formað- ur Ungmennafélags Íslands, opnaði vor- fundinn laugardagsmorguninn og bauð fulltrúa velkomna til fundarins. Hún hvatti þá áfram í starfinu og hrósaði þeim fyrir gott og kröftugt starf. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, fór yfir starfsemi hreyfingar- innar. Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ, var með kynningu á viðburðastjórn- un, en Ómar Bragi er framkvæmdastjóri Unglingalandsmóta UMFÍ. Hann sagði frá undirbúningi og framkvæmd móta á veg- Vorfundur UMFÍ var haldinn á Ísafirði um UMFÍ. Helgi Gunnarsson, fjármála- stjóri UMFÍ, ræddi í erindi sínu um styrktar- umsóknir, fjáraflanir og áætlanir. Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir frá Reykjavíkur- borg var síðan með námskeið sem fjallaði um mannauð í félagsstarfi. Námskeiðið var afar gagnlegt og fræðandi og mun eflaust nýtast fulltrúum í starfi sínu þegar til lengri tíma lætur. Samhliða vorfundinum var haldinn stjórnarfundur UMFÍ.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.