Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2011, Side 34

Skinfaxi - 01.05.2011, Side 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Úr hreyfingunni Ársþing Héraðssambands Strandamanna, HSS: Aðalbjörg Óskarsdóttir og Rósmundur Númason fengu starfsmerki UMFÍ 64. ársþing Héraðssam- bands Strandamanna var haldið í Kaffi Norðurfirði 7. maí sl. Sæmundur Runólfs- son, framkvæmdastjóri UMFÍ, sótti þingið og veitti þeim Aðalbjörgu Óskars- dóttur og Rósmundi Númasyni starfs- merki UMFÍ. Guðmundur Haukur Sigurðs- son, formaður USVH og formaður undir- búningsnefndar fyrir Landsmót UMFÍ 50+, sótti einnig þingið og kynnti mótið fyrir þinggestum. Þingið var vel sótt og umræður góðar. Engar breytingar urðu á stjórn sambands- ins. Á þinginu var sett á laggirnar svokallað landsmótsráð sem mun m.a. koma að und- irbúningi þátttakenda HSS á fyrsta Lands- móti UMFÍ 50+ í sumar og eins að 14. Ung- lingalandsmóti UMFÍ á Egilsstöðum. Á ársþinginu var tilkynnt um úrslit í kjöri á Íþróttamanni ársins 2010. Að þessu sinni var það Hadda Borg Björnsdóttir sem hlaut afgerandi kosningu. Formaður HSS, Vignir Örn Pálsson, afhenti Höddu veglegan farandbikar við þetta tækifæri, en Hadda Borg er fædd 1993. Hún náði frábærum árangri í hástökki árið 2010. Hún vann m.a. til gullverðlauna á Unglingalandsmótinu og í sínum aldursflokki á Meistaramóti Íslands með því að stökkva yfir 1,61 metra á báðum mótunum. Þá varð hún í þriðja sæti á Reykjavíkurleikunum í upphafi árs 2011, auk þess að vinna sigur í mörgum greinum á Héraðsmóti HSS í Sævangi. Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, ásamt Aðalbjörgu Óskarsdóttur og Rósmundi Númasyni, sem fengu afhent starfsmerki UMFÍ á ársþingi HSS. Hadda Borg Björnsdóttir, íþróttamaður ársins hjá HSS, ásamt Vigni Erni Pálssyni, formanni HSS. Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga, HSV: Jón Páll endurkjörinn formaður HSV Jón Páll Hreins- son var einróma endurkjörinn for- maður Héraðs- sambands Vestfirðinga á ársþingi sam- bandsins 10. maí sl. Ásdís Pálsdóttir var sæmd silfurmerki HSV en hún hefur verið meðal drifkrafta í starfi blakfélagsins Skells. Gunnar Gunnarsson í varastjórn UMFÍ sat ársþingið. Í skýrslu stjórnar lýsti Jón Páll áhyggjum sínum af framtíð sjálfboðaliðavinnu en hann segir sífellt færast í vöxt að menn vilji fá greitt fyrir alla vinnu sína. Slíkt komi verulega niður á félagsstarfi. Þrettán til- lögur voru afgreiddar á þinginu. Á vegum HSV hefur verið unnið upplýs- ingarit fyrir formenn og stjórnir félaga með helstu upplýsingum sem þeir þurfa á að halda. Ritið er sérstaklega ætlað nýjum stjórnarmönnum, til að hjálpa þeim að komast inn í starfið. Þá hafa verið teknir upp reglulegir formannafundir til að flýta fyrir upplýsingastreymi frá héraðssam- bandinu til aðildarfélaganna. Þrír slíkir voru haldnir á seinasta starfsári. Jón Páll Hreinsson var endurkjörinn formaður HSV. Auk hans voru kjörin í aðal- stjórn Maron Pétursson og Erla Jónsdóttir, til tveggja ára. Mynd til vinstri: Ásdís Pálsdóttir var sæmd silfurmerki HSV en með henni á myndinni er Jón Páll Hreinsson, formaður HSV. Mynd til hægri: Hluti þingfulltrúa á ársþinginu.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.