Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2011, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.05.2011, Blaðsíða 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands UÍA hefur séð um framkvæmd á tveimur Landsmótum UMFÍ, 1968 og 2001. Unglinga- landsmót UMFÍ á Egilsstöðum er fyrsta Ung- lingalandsmótið sem ÚÍA heldur. 13. Landsmót UMFÍ 1968 Hið fyrra var 13. Landsmót UMFÍ sem fór fram á Eiðum dagana 13.–14. júlí 1968. Kvöld- dagskrá var á laugardeginum og hátíðar- dagskrá á sunnudeginum. Keppt var í tólf frjálsíþróttagreinum karla og sjö kvenna- greinum, tíu sundgreinum, níu starfsíþrótta- greinum, glímu, knattspyrnu og í handknatt- leik kvenna. HSK vann stigakeppni mótsins, hlaut 258,5 stig. Stigahæstir af einstaklingum voru Guðmunda Guðmundsdóttir HSK (sund) og Davíð Valgarðsson UMFK (sund), hlutu 17 stig hvort. Keppendur á mótinu voru 438 og 238 heimamenn sýndu þjóðdansa, fimleika og sögulegt leikrit. Mótsgestir voru 7000. 23. Landsmót UMFÍ 2001 UÍA sá síðar um framkvæmd 23. Lands- móts UMFÍ sem fram fór dagana 12.–15. júlí 2001. Mótið var haldið við frábærar aðstæð- ur á Egilsstöðum og í nágrenninu. Landsmót- UÍA hefur séð um framkvæmd á tveimur Landsmótum UMFÍ Frá setningu 23. Landsmóts UMFÍ á Egilsstöðum 2001. ið var mjög fjölskylduvænt og var fjölþætt dagskrá í boði alla dagana. Í Tjarnargarðin- um, sem er í næsta nágrenni við íþróttaleik- vanginn, gátu gestir af yngri kynslóðinni fundið ýmislegt við sitt hæfi sem og öll fjöl- skyldan. Keppendur voru 1160 frá öllum sam- bandsaðilum UMFÍ. Setning mótsins fór fram í afar fallegu veðri 13. júlí þar sem m.a. forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ávarp- aði mótsgesti. Fjöldi þeirra var um 12000. Keppt var í sautján greinum til stiga en þær voru eftirtaldar: badminton, blak, borðtennis, bridds, fimleikar, frjálsar íþróttir, glíma, golf, handknattleikur, hestaíþróttir, íþróttir fatlaðra, knattspyrna, körfuknattleikur, skák, skotfimi, starfsíþróttir og sund. Á Landsmótinu var í fyrsta skipti keppt til stiga í badminton, íþrótt- um fatlaðra og skotfimi. Sýningargreinar voru: Egilsstaðamaraþon, hjólreiðar, íþróttir aldraðra, kraftajötnagreinar, siglingar, torfæruakstur og æskuhlaup. Á Landsmótinu var alþjóðleg stangarstökkskeppni þar sem Vala Flosadótt- ir og Þórey Edda Elísdóttir öttu kappi við tvær bandarískar stúlkur og eina sænska. Mikil stemning myndaðist á keppninni og hvöttu áhorfendur ákaft sínar stúlkur. Stigahæsta sambandið var HSK með 1899,5 stig. Næst komu UMSK með 1699 stig og UÍA með 1469 stig. Stigahæst á mótinu voru Guðrún Bára Skúladóttir HSK, Sunna Gestsdóttir UMSS og Jón Arnar Magnússon UMSK sem öll kepptu í frjálsíþróttum og fengu 30 stig. Sundfólkið Íris Edda Heimisdóttir, Keflavík, og Jón Oddur Sigurðsson, UMFN, voru einnig með 30 stig sem var hámarksárangur. Á mót- inu var nýtt framtíðarmerki Landsmótanna afhjúpað og hefur það verið notað síðan.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.