Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2011, Page 17

Skinfaxi - 01.05.2011, Page 17
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 17 Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð til 1. nóvember 2004, við samein- ingu Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Þéttbýlið Egilsstaðir og Fellabær styður sterk byggð í dreif- býlinu með blómleg landbúnaðar- svæði og smærri þjónustukjarna á Hallormsstað, Eiðum og Brúarási. Sveitarfélagið er mjög víðfeðmt og er nú það landmesta á Íslandi. Stærð þess er 8.884 ferkílómetrar. Sveitarfélagið afmarkast af Jökulsá á Fjöllum í vestri að Biskupshálsi um Möðrudalsheiði og Háreksstaðaheiði, norður Smjörfjöll og Hellisheiði norð- ur í Kollumúla í Héraðsflóa. Að austan- verðu afmarkast það frá Bótarhnjúkum sem eru á mörkum Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og Djúpavogshrepps, þaðan um Breiðdalsheiði og Austur- fjöll í Skriðdal yfir á Fagradal um Gagn- heiði og um Austurfjöllin í Gripdeild í Héraðsflóa. Miðkjarna Fljótsdalshéraðs mynda þéttbýlin Egilsstaðir og Fellabær sem greiðar samgöngur á landi og í lofti hafa gert að virkum vegamótum og þar hefur því vaxið upp ýmiss konar starfsemi, bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila. Um miðbæ Egils- staða liggja helstu krossgötur Austur- lands og umferðarmestu gatnamót þjóðvega í fjórðungnum. Flestir íbúa Fljótsdalshéraðs starfa við þjónustu og opinbera starfsemi og á Egilsstöðum og í Fellabæ hefur þróast mikil samgöngu-, verslunar- og þjónustumiðstöð sveitarfélagsins og alls Mið-Austurlands. Alþjóðaflugvöllurinn á Egilsstöðum gegnir mikilvægu hlutverki, meðal annars vegna ferðaþjónustu á svæð- inu en í sveitarfélaginu eru einnig nokkur hótel, gisti- og veitingastaðir. Landbúnaður er stundaður í dreifð- um byggðum hins víðfeðma sveitar- félags þannig að sauðfjárbúskapur er stundaður á um 90 jörðum og mjólk- urframleiðsla á tæplega 20 búum og þá fer skógrækt fram á um 85 jörðum um þessar mundir. Á sviði heilbrigðisþjónustu eru til staðar í sveitarfélaginu heilsugæslustöð, dvalarheimili aldraðra og sjúkrahús, tannlæknastofa og einnig dýraspítali. Skólastarf hefur sett svip sinn á samfélagið árum saman og má þar nefna skólasetrin að Eiðum og Hús- stjórnarskólann á Hallormsstað. Menntaskólinn á Egilsstöðum hefur starfað frá 1979 en þar eru nemendur á fimmta hundrað alls. Skrifstofa Þekk- ingarnets Austurlands er í sveitarfélag- inu og Vísindagarðurinn ehf. var stofn- aður 2007. Í sveitarfélaginu eru starfræktir fjór- ir leikskólar með um tvö hundruð og fimmtíu börnum. Grunnskólastarf fer fram á fjórum stöðum en nemendur þeirra eru vel á sjötta hundraðið. Tón- list er kennd á fjórum stöðum á vegum þriggja tónlistarskóla. Sveitarfélagið rekur jafnframt bókasöfn og minjasafn, íþróttamiðstöð og íþróttahús, frjáls- íþróttavöll og knattspyrnuvelli, sund- laug, félagsmiðstöðvar, félagsheimili og þjónustumiðstöð. Hitaveita Egilsstaða og Fella sér þéttbýlinu fyrir heitu og köldu vatni. Stjórnsýsla sveitarfélagsins var endur- skipulögð við sameiningu sveitar- félaga árið 2004 með það að mark- miði að ná fram meiri skilvirkni í ein- stökum málaflokkum. Stjórnsýslan einkennist nú af svo kölluðu flötu skipulagi þar sem undir bæjarstjóra vinna 7 deildarstjórar sem hver um sig sinnir ákveðnum málaflokkum með viðkomandi fagnefnd. Lögð er áhersla á stöðuga þróun stjórnsýslunnar og eru sérstök verk- efni í gangi á því sviði. Þróunarstarf og uppbygging einkennir raunar allt starf sveitarfélagsins um þessar mundir og á öllum sviðum. Í sveitar- félaginu er ellefu manna bæjarstjórn. Frá Egilsstöðum, þar sem 14. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið um verslunarmannahelgina. Saga sveitarfélagsins N Ý P R E N T eh f. Leirhús Grétu Gallerí Gallerí og vinnustofa SUMAROPNUN 15. júní - 20. ágúst mánudaga - föstudaga frá kl. 13-18 laugardaga frá kl. 13-16 VETRAROPNUN 21. ágúst - 14. júní föstudaga frá kl. 13-18 Litla Ósi Húnaþingi vestra Sími 451 2482 og 897 2432

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.