Skinfaxi - 01.05.2011, Side 36
36 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Úr hreyfingunni
Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar, UÍF:
Nýtt merki sambandsins kynnt
Annað ársþing Ungmenna- og íþrótta-
sambands Fjallabyggðar, UÍF, var haldið í
Íþróttamiðstöðinni að Hóli þann 12. maí
sl. Á þingið mættu 33 þingfulltrúar auk
stjórnar UÍF.
Björg Jakobsdóttir, varaformaður UMFÍ,
ávarpaði þingið og veitti þeim Jóni Kon-
ráðssyni og Þórarni Hannessyni starfs-
merki UMFÍ fyrir mikið og óeigingjarnt
starf innan ungmennafélagshreyfingar-
innar undanfarna áratugi.
Þingið hófst síðan á því að Guðný Helga-
dóttir, formaður UÍF, bað fundargesti að
rísa úr sætum og minnast Freys Sigurðs-
sonar sem vann ómetanlegt starf fyrir
íþróttahreyfinguna á Siglufirði meðan
hans naut við.
Síðan var komið að því að draga að
húni fána með nýju merki sambandsins
og gera grein fyrir úrslitum í samkeppni
um merki félagsins. Gengu allir fundar-
gestir út á pall og fylgdust með því þegar
hinn nýi fáni var dreginn upp. Alls barst
31 tillaga í samkeppnina frá 11 aðilum.
Dómnefnd var sammála um að tillaga
Jóns Ingibergs Jónsteinssonar bæri af og
varð hún fyrir valinu. Þess má geta að Jón
er barnabarn Jóns Þorsteinssonar, skíða-
kappa frá Siglufirði, og ánafnaði hann
Skíðaminjasafninu á Siglufirði verðlauna-
féð, sem var 30.000 kr., til minningar um
afa sinn.
Þá hófust hefðbundin aðalfundarstörf.
Formaður fór yfir hið mikla starf sem unn-
ið hefur verið á árinu. Reikningar hins nýja
félags eru í góðu horfi og voru samþykktir
samhljóða. Nokkrar minniháttar lagabreyt-
ingar voru samþykktar. Loks voru kosnir
þrír nýir aðilar í stjórn og Guðný Helga-
dóttir var endurkjörinn formaður.
Efri mynd: Fáni með nýju merki UÍF blaktir við
hún, ásamt fánum UMFÍ og ÍSÍ.
Neðri mynd: Frá afhendingu starfsmerkja UMFÍ.
Til vinstri er Guðný Helgadóttir, formaður UÍF, sem
tók við starfsmerkinu fyrir hönd Jóns Konráðsson-
ar, Þórarinn Hannesson í miðjunni og Björg Jakobs-
dóttir, varaformaður UMFÍ, sem afhenti starfs-
merkin, er lengst til hægri.
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA