Skinfaxi - 01.05.2011, Page 39
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39
Ungmennafélag Selfoss hélt upp á 75 ára
afmæli sitt þann 1. júní síðastliðinn. Af því
tilefni var boðið til afmælisveislu í hátíð-
arsal Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Björn Ingi Gíslason var veislustjóri kvölds-
ins og hóf hann dagskrána á að fá gesti til að
syngja Fyrr var oft í koti kátt. Að því loknu
fluttu ávörp þeir Grímur Hergeirsson, formað-
ur Umf. Selfoss, og Kristinn M. Bárðarson, for-
maður afmælisnefndarinnar.
Formaður UMFÍ, Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, ávarpaði samkomuna og veitti tveimur
Selfyssingum starfsmerki UMFÍ, þeim Guð-
mundi Tryggva Ólafssyni, stjórnarmanni og
þjálfara júdódeildar, og Ófeigi Ágústi Leifssyni,
formanni taekwondodeildar. Sigríður Jóns-
dóttir, frá framkvæmdastjórn ÍSÍ sæmdi tvo
Selfyssinga gullmerki ÍSÍ, þá Helga S. Haralds-
son, formann frjálsíþróttadeildar, og Svan
Ingvarsson, sem unnið hefur ötult starf fyrir
sunddeild Selfoss og fatlaða íþróttamenn á
Suðurlandi. Hallur Halldórsson, fyrrverandi
formaður handknattleiksdeildar, og Olga
Bjarnadóttir, fimleikaþjálfari, voru sæmd
silfurmerki ÍSÍ. Þá fékk fimleikadeildin endur-
nýjun sem fyrirmyndardeild ÍSÍ. Guðríður
Aadnegard, formaður HSK, sæmdi Helga S.
Haraldsson silfurmerki HSK. Grímur Arnarson,
formaður Íþrótta- og tómstundarnefndar
Árborgar, færði samkomunni kveðju frá
Sveitarfélaginu Árborg og afhenti formanni
félagsins blómvönd og peningagjöf. Gylfi
Orrason, varaformaður KSÍ, sæmdi þá Anton
Hartmannsson, Svein Jónsson og Jón Stein-
dór Sveinsson silfurmerki KSÍ.
Vésteinn Hafsteinsson var síðasti gestur-
inn til þess að ávarpa samkomuna. Hann
þakkaði boðið í veisluna og minntist uppeld-
isins í ungmennafélaginu á Selfossi. Að því
loknu færði hann frjálsíþróttadeildinni hálfa
milljón króna að gjöf í tilefni afmælisins. „Það
er það minnsta sem ég get gert til að þakka
fyrir mig,“ sagði Vésteinn.
Formlegri dagskrá lauk á því að nokkrir
félagar voru sæmdir gull- og silfurmerkjum
Umf. Selfoss. Fjórtán félagar fengu silfur-
merki og fjórir gullmerki, þau Einar Jónsson,
Elínborg Gunnarsdóttir, Gísli J. Jónsson og
Sveinn R. Sveinsson, en sá síðastnefndi hefur
keppt í kringlukasti undir merkjum Selfoss
óslitið í 62 ár. Að lokum var gestum boðið í
glæsilegt kaffihlaðborð þar sem gamlar
sögur voru rifjaðar upp.
Í tilefni afmælisins var ráðist í sérstaka
hátíðarútgáfu á riti félagsins, Braga. Var blað-
Ungmennafélag Selfoss 75 ára
Handhafar gull- og
silfurmerkja Umf.
Selfoss ásamt
formanni félagsins
(lengst til hægri).
Á myndina vantar
Olgu Bjarnadóttur.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Örn Guðnason, ritari UMFÍ,
afhentu Ófeigi Á. Leifssyni og Guðmundi Tr. Ólafssyni starfsmerki UMFÍ.
Afmælisnefnd ásamt formanni og framkvæmdastjóra félagsins og nokkr-
um dyggum stuðningsmönnum.
ið 100 síður að stærð og innihélt fjölbreytt
efni frá fyrri tímum allt til dagsins í dag. Sér-
stakar kynningar voru á átta deildum félags-
ins, og tveimur nefndum sem starfa innan
þess. Blaðinu var dreift í öll hús í sveitar-
félaginu og á alla helstu opinbera staði á
Suðurlandi.
Daginn eftir afmælishófið var haldin önn-
ur fjölmenn afmælisveisla á íþróttavallar-
svæðinu við Engjaveg. Dagskráin hófst um
klukkan ellefu með leikjum og ýmsu sprelli.
Þar gátu ungir sem aldnir m.a. tekið þátt í
fótbolta, frjálsum og fimleikum. Einnig sýndu
taekwondoiðkendur og þjálfarar ýmsar
æfingar og spörk sem hægt var að spreyta
sig á. Á eftir var öllum boðið upp á grillaðar
pylsur og kókómjólk.
Frá afmælisveislunni á íþróttavallarsvæðinu við Engjaveg. Þar fengu krakkarnir m.a. pylsur og kókómjólk
og að auki var afhentur diskur frá Tækniskóla KSÍ.
MJÓLKURVÖRUR
Í SÉRFLOKKI
Frá taekwondo-
sýningu á íþrótta-
vellinum á Selfossi.