Skinfaxi - 01.05.2011, Page 42
42 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Akureyri
Raftákn ehf., Glerárgötu 34
Tannlæknastofa Ragnheiðar Hansdóttur,
Kaupangi v/Mýrarveg
Grenivík
Brattás ehf., Ægissíðu 11
Ólafsfjörður
Árni Helgason ehf., Hlíðarvegi 54
Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar, Ólafsvegi 4
Húsavík
Jarðverk ehf., Þingeyjarsveit, Birkimel
Laugar
Framhaldsskólinn á Laugum, Laugum
Reykjadal
Sparisjóður Suður- Þingeyinga,
Kjarna Laugum
Mývatn
Eldá ehf., Helluhrauni 15
Jarðböðin við Mývatn
Vopnafjörður
Vopnafjarðarhreppur, Hamrahlíð 15
Egilsstaðir
Birta ehf., Egilsstöðum og Reyðarfirði,
Miðvangi 2-4
Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf.
Miðvangi 2-4
G. Ármannsson ehf., Ártröð 12
Héraðsprent ehf., Miðvangi 1
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf.,
Einhleypingi 1
Miðás hf. (Brúnás innréttingar), Miðási 9
PV-pípulagnir ehf., Nátthaga
Ylur hf., Miðási 43-45
Seyðisfjörður
Gullberg hf., Langatanga 5
Seyðisfjarðarkaupstaður, Hafnargötu 44
Reyðarfjörður
Á.S. bókhald ehf., Austurvegi 20
Verkstjórafélag Austurlands,
Austurvegi 20
Eskifjörður
Eskja hf., Strandgötu 39
Neskaupstaður
Rafgeisli Tómas R. Zoëga ehf.,
Hafnarbraut 10
Síldarvinnslan hf, útgerð, Hafnarbraut 6
Fáskrúðsfjörður
Loðnuvinnslan hf., Skólavegi 59
Stöðvarfjörður
Steinasafn Petru, Sunnuhlíð
Höfn í Hornafirði
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellsýslu,
Nýheimum
Mikael ehf., Norðurbraut 7
Skinney – Þinganes hf., Krossey
Tjaldsvæðið Höfn í Hornafirði,
Vogabraut 4
Selfoss
AB-skálinn ehf., Gagnheiði 11
Árvirkinn ehf., Eyravegi 32
Búnaðarfélag Grafningshrepps
Villingavatni
Flóahreppur, Þingborg
Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi for-
maður og heiðursfélagi Ungmennafélags
Íslands, varð áttræður þann 28. apríl sl.
Hafsteinn fagnaði þessum tímamótum
með ættingjum og vinum á Hótel Geysi
í Haukadal 30. apríl sl. Ellefu ræður voru
haldnar í afmælishófinu þar sem farið
var yfir feril Hafsteins sem er langur og
farsæll.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, voru meðal gesta og
ávarpaði Helga Guðrún afmælisbarnið.
Hafsteinn var formaður UMFÍ á árunum
1969–1979 og 2009 var hann sæmdur
heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir framlag til félags- og íþróttamála.
Ungmennafélagshreyfingin óskar Haf-
steini Þorvaldssyni innilega til hamingju á
þessum tímamótum.
Hafsteinn Þorvaldsson með
afmælishóf á Hótel Geysi
Hafsteinn Þorvaldsson og
Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, formaður UMFÍ,
í afmælishófinu á Hótel
Geysi.
Hafsteinn tók að sjálfsögðu lagið með félögum
sínum þeim Jóhannesi Sigmundssyni (t.v.) og
Karli Gunnlaugssyni (t.h). Lengst til hægri er
Engilbert Olgerissyni, framkvæmdastjóri HSK.
Aðalfundur Íslenskrar getspár var hald-
inn á Grand Hótel Reykjavík 2. maí sl.
Íslensk getspá á 25 ára starfsafmæli á
þessu ári og verður tímamótanna minnst
síðar á árinu. Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar getspár, sagði
almenna ánægju með reksturinn 2010
og fyrirtækið væri þakklátt fyrir stuðn-
ing þjóðarinnar í þessum leik.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir
eignaraðila á þessum síðustu og verstu
tímum að Lottóið gangi vel. Þá skiptir
ekki síður miklu máli að góðir og háir
vinningar fara til fólksins í landinu en á
síðasta ári greiddum við 1,2 milljarða út í
vinninga. Framtíðin er áframhaldandi
barátta á íslenskum happdrættismarkaði
og við þurfum að halda vel á spilunum,
bæði Getspá og Getraunir, gagnvart
fólkinu sem er að versla við okkur. Við
þurfum því á öllum stuðningi íþrótta-
og ungmennafélagshreyfingarinnar og
öryrkja að halda við okkar leik og okkar
starf. Við erum þakklát fyrir stuðning
þjóðarinnar,“ sagði Stefán Konráðsson.
Stjórn Íslenskrar getspár er skipuð
eftirtöldum: Lárus Blöndal, formaður,
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, varafor-
maður og Þóra Þórarinsdóttir, ritari.
Meðstjórnendur eru Gunnar Bragason
og Vífill Oddsson.
Aðalfundur Íslenskrar getspár:
Þakklát fyrir stuðning þjóðarinnar