Organistablaðið - 01.11.1969, Qupperneq 4
höfðu }>au haldið tónleika víðsvegar
hér á landi. Eftir að þau settust að í
Keykjavík kenndi hún bæði söng og
píanóleik og kom einnig oft fram á
tónleikum hæði sem einsöngvari og
píanóleikari, lék hún t. d. undir hjá
mörgum listamönnum íslenzkum og er-
lendum, sem hér voru á ferð, og þótti
mjög snjail undirleikari. Var hún því
um langt árabil í hópi þeirra, sem settu
svip á tónlistarlíf höfuðborgarinnar.
Frú Valborg missti mann sinn 10. mai
1939. Síðustu árin bjó hún í Kaup-
mannahöfn, en börn hennar eru bú-
sett í Danmörku, Elsa söngkona í
Kaupmh. en Einar fiðluleikari í Ár-
ósum.
Valborg Einarsson
Frú Valborg Einarsson, ekkja próf.
Sigfúsar Einarssonar dómkirkjuorg-
anleikara og tónskálds, andaðist í
Reykjavik 24. júlí síðastl. Valborg
Inger Elisabeth var dönsk að ætt, og
var faðir hennar Alfred Hellemann,
verkfræðingur. Hún var fædd i Fre-
derikshavn 2. maí 1883. Snemma komu
í Ijós miklir tónlistarhæfileikar hjá
henni og lærði hún píanóleik á barns-
aldri. — Framhaldsnám i pianóleik
stundaði hún hjá Albert Orth, sem
var kennari við kgl. tónlistarháskól-
ann í Kauph. og organisti við Ileilags-
anda kirkjuna, en hann hafði numið
hjá hinum fræga norska píanóleikara
Edmund Neupert. Söngnám stundaði
hún hjá Sophie Keller, en faðir henn-
ar var tónskáldið Ilenrik Rung. Árið
1906 giftist hún Sigfúsi Einarssyrii.
Höfðu þau þá farið í tónleikaferð um
Noreg og fengið góða dóma. Einnig
Margrét Gísladóttir
Frú Margrét Gísladóttir á Hæli var
fyrsti kennari minn í organleik. Get
é.r kki hugsað mér betri og skemmti-
4 ORGANISTABLAÐIÐ