Organistablaðið - 01.12.1969, Síða 11
sóknarnefndar, Alexander Stefánsson,
óvarp og sagði meðal annars:
„Opnast nú nýir möguleikar til þess
að fá flutt hér orgelverk og kórverk
og nota þá miklu möguleika sem þessi
nýja kirkja okkar gefur á þessu sviði
til menningar og yndisauka fyrir íbúa
Ólafsvíkur. Ég vil hér með i nafni
sóknarnefndar og fyrir liönd alls safn-
aSarins flytja Ilalldóri Jónssyni, börn-
um hans og fjölskyldum sérstakar al-
úSar þakkir fyrir þessa miklu og sér-
stæSu gjöf, sem á sér fáar hliSstæSur
hér á landi. Þessi gjöf lýsir hlýhug og
ræktarsemi viS kirkju okkar og heima-
byggS og er um leiS sérstaklega verð-
ug minningargjöf um ágætustu konu,
sem elskaSi þorpiS sitt, þar sem hún
átti heima allt sitt líf og ól upp þrek-
mikla Ólafsvikinga, sem sett hafa svip
sinn á Ólafsvík. Megi þessi glæsilega
minningargjöf ávallt bera uppi minn-
ingu um góða eiginkonu og móður.
Um leið og þetta fagra, glæsilega
orgel er nú tekið i notkun vil ég óska
þess að það verSi kirkjulífi og menn-
ingarlífi í Ólafsvík til blessunar um
alla framtíð.“
Organisti Ólafsvíkurkirkju er frú
Björg Finnbogadóttir. Spilaði hún á
orgelið við vígsluathöfnina.
Orgel Strandarkirkju í Selvogi
Orgelið er keypt hjá E. F. Walcker & Co. orgelverksmiðju
Ludwigsburg í Vestur-Þýzkalandi. Það er með 1 hljómborði
með tengdu fótspili og svellskáp.
Tónsvið er C-f'" með sérstiili fyrir diskant og bassa
Itnditir:
Gedeckt 8’
Prlnzipal 4’
Rohrflöte 4’
Oktave 2’
Quinte 1%'
Mlxtur 2—3 föld
I svellskáp.
Handstýröur
traktúr.
Stærö:
Hæð 184 cm.
Breidd 142 cm.
I’ykkt með bekk
175 cm.
Framhald á bts. 12.
ORGANISTABLAÐIÐ 11