Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 20

Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 20
angi vorið 1877. Tók hann jörðina til ábúðar og hafði jafnframt fjárhald kirkjunnar á hendi, en áður hafði faðir minn haft það í nokkur ár. Ræddi hann nú þetta mál við Vilhjálm, sem tók því mjög hlýlega og taldi, að ekki mundi standa á samþykki föður síns. Varð það svo úr, að vorið 1879 var hljóðfærið keypt. Var það orgel er verið hafði í Akureyrarkirkju, en þótti nú of lítið þar. Það var gengið út frá því, að Sigtryggur tæki að sér að leika á orgelið. Gekkst hann þá fyrir því, eins og áður er getið, að söng- félag var stofnað í sókninni síðla vetrar 1879. Hélt það þá þegar nokkrar söngæfingar undir stjórn hans. Var jafnframt fyrirhugað, að orgelið vrði í fyrsta sinn notað við fermingarguðsþjónustu á hvítasunnudag. Smíðaði Vilhjálmur loft í kirkjuna fyrir hljóðfærið og söngflokkinn. Reyndist það þó brátt of lítið og var síðar stækk- að. Kostnaðurinn við loftið var greiddur með hlutaveltufé. Hljóðfæri voru þá mjög óvíða komin í sveitakirkjur. Vakti þessi nýjung því talsverða athygli og hlaut misjafna dóma. Það var eink- um yngri kynslóðin, sem studdi hana. Sumum hinna eldri, einkum þeim, sem tekið höfðu þátt í kirkjusöngnum, var lítið gefið um ný- breytnina. Töldu þeir, að vel hefði mátt una við það sem var, fannst sínu starfi nú lokið, vildu gjarna draga sig í hlé og láta öll þessi um- brot afskiptalaus. Söngfélagið starfaði undir aðalstjórn Sigtryggs til haustsins 1888, en þá byrjaði hann nám í lærðaskólanum. Söngæfingar voru árlega allmargar, einkum að vetrinum. Erfitt var að fá húsrúm fyrir fund- ina, og hvergi hljóðfæri til aðstoðar nema í kirkjunni. Var hún því aðal fundastaðurinn fyrstu árin, enda þá æfð því nær eingöngu sálma- lög. Æfingar voru jafnan á sunnudögum. Við dalbúarnir áttum lengra að sækja en aðrir og urðum því að leggja af stað snemma dags. Æf- ingarnar stóðu oftast fram í rökkur í ofnlausri kirkjunni. Oft kom- um við seint heim, stundum bæði svöng og þreytt. Faðir minn var alltaf í félaginu og sótti flesta fundi þess, enda var hann árlega kosinn félagsstjóri. Á æfingunum var æfður raddasöng- ur, veitt tilsögn í söngfræði og lögð áhersla á, að félagsmenn yrðu færir um að læra lög og raddir eftir nótum. Þegar efni leyfðu, voru keypt nokkur langspil og nótnabækur, en allt var þetta af skornum skammti. Höfðu félagsmenn þetta að láni til skiptis og tókst heima- lærdómurinn vonum betur. 20 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.