Organistablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 43
þulur, Iver Holter, fram á völlinn og var honum tekið með miklum
fögnuði af söngmönnum og áheyrendum. Staðnæmdist hann fyrir
framan „herinn“ — við hliðina á söngstjórapallinum, því að honum
mun ekki hafa litizt á að ráðast þar til uppgöngu, enda var pallur-
inn hár nokkuð. Hentu menn gaman að, en þó græskulaust. „Hern-
um“ stjórnaði hann síðan röggsamlega, eins og ungur væri.“ —
(Helstu tónverk I.H.: Sinfonía í F-dúr; Donna Júlía, opera; Götz v.
Berlichingen, leikhústónverk; strokkvartett í G-dúr; fiðlukonsert;
fiðlurómansa; karlakórslög; kantötur).
Per Steenberg (1870—1947)
þessi stórlærði maður í kontra-
púnkti og kirkjusöng varð læri-
faðir margra norskra organleik-
ara í þeim fræðum. Kóralbók
P. S. kom út 1947, hafði hann
nýlokið við handritið er hann
lést. Asbjörn Hernes prestur,
Rolf Karlsen, sem þá var organ-
leikari við Róa-kirkju, en er nú
dómkirkjuorganleikari í Osló, og
dómkirkjuorganleikararnir Lud-
vig Nielsen og Arild Sandvold
sáu um útgáfuna en bókin er
gefin út af Harald Lycke & Co.
í Drammen og er sú útgáfa fög-
ur. (Helstu tónverk P.S.: Kirkjukantata; kantata við kirkjuvígslu;
4 kirkekor f. gudstjenesten; Fúga yfir sálmalagið „Vakna, Síons verð-
ir kalla"; Fedrelandshymne; Adagio religioso; prelúdíur, fúgur o. fl.
f. orgel).
P. H.
ORGANISTABLAÐIÐ 43