Organistablaðið - 01.09.1991, Side 23
24., 25. og 26. apríl voru sýningar á sjónleiknum „Skrúðsbóndinn" eft-
ir Björgvin í leikgerð Jóns St. Kristjánssonar, (en þessi uppfærsla var liður
í listaviku Akureyrarkirkju sem sagt varfrá í síðasta blaði) í umsjá Leikfé-
lags Akureyrar og félaga úr Kór Akureyrarkirkju. Leikstjóri var Jón St. Krist-
jánsson og tónlistarstjóri var Björn Steinar Sólbergsson. Sýningarnar fóru
fram í Akureyrarkirkju.
Sunnudaginn 26. maí kl. 17.00 var einsöngur og upplestur í Minjasafn-
inu á Akureyri. Þráinn Karlsson leikari, las valda kafla úr Minningum eftir
Björgvin Guðmundsson. Þuríður Baldursdóttir alt og Örn Viðar Birgisson
tenór, sungu einsönglslög eftir Björgvin.
Sunnudaginn 2. júní kl. 17.00 fluttu, blandaður kór, Kammerhljómsveit
Akureyrar og einsöngvararnir, Hólmfríður Benediktsdóttir sópran, Þuríður
Baldursdóttir alt, Jón Helgi Þórarinsson baríton, Örn Viðar Birgisson tenór,
Þorgeir Andrésson tenór og Stefán Arngrímsson bassi, óratoríuna
„Strengleika“ við Ijóð Guðmundar Guðmundssonar, í hljómsveitarútsetn-
ingu stjórnandans, Roars Kvam, í íþróttaskemmunni á Akureyri, og var
þetta frumflutningur þessarrar útsetningar og fyrsta sinn sem þetta mikla
tónverk Björgvins er flutt í heild sinni.
Unnið af JÓS úr upþlýsingum frá Jóhanni Baldvinssyni.
Laus staða:
við Árbæjarkirkju í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Við óskum að ráða nú þegar organista við Árbæjar-
kirkju. Skriflegum umsóknum með upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist til formanns sóknarnefnd-
ar, Jóhanns Björnssonar, Þykkvabæ 15,110 Reykjavík,
og gefur hann einnig nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er tilj£5. september n.k.
SÓKNARNEFND.
ORGANISTABLAÐIÐ 23