Morgunblaðið - 25.11.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.11.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is lagningu 1998 ehf. ekki ráð fyrir neinum af- skriftum á skuldum félagsins. Felur það í sér að rekstur Haga verður að standa undir skuldum og vaxtakostnaði bæði Haga og móðurfélagsins. Vissulega er hugsanlegt að í tilboðinu felist að eigendur 1998 ehf. leggi meira fé í reksturinn en þá sjö milljarða sem rætt hefur verið um eða að þeir greiði skuldir félagsins upp með öðrum hætti, en engar upplýsingar liggja fyrir um það. Rekstrarhagnaður Haga fyrir skatta, fjár- magnsliði og afskriftir (EBITDA) var um tveir milljarðar árið 2007 og þrír milljarðar 2008. Hagnaður Haga var um 420 milljónir árið 2007 og 530 milljónir árið 2008. Vaxtaberandi skuldir Haga árið 2008 námu um þrettán milljörðum króna, eða ríflega fjór- föld EBITDA félagsins á tímabilinu og 24-fald- ur hagnaður félagsins. Þegar skuldir 1998 ehf. eru teknar með í reikninginn jafnast þær á við tvítugfalda EBITDA og 113-faldan hagnað. Rétt er að ítreka að ekki hefur komið í ljós hvað nákvæmlega felst í tilboðinu og einnig að skilyrði lána Haga og 1998 ehf. eru óþekkt. Af tölunum má hins vegar ljóst vera að afar langan tíma mun taka fyrir Haga að greiða niður eigin skuldir og móðurfélagsins eins og þær standa nú. Undanfarna daga hefur ítrekað verið reynt að ná í Finn Sveinbjörnsson, forstjóra Arion, Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Sigurjón Pálsson, stjórnarformann 1998 ehf., en án árangurs. Árafjöld að greiða skuldir Haga  Samanlagðar vaxtaberandi skuldir Haga og 1998 ehf. jafnast á við 20-faldan rekstrarhagnað Haga  Eigi Hagar að standa undir skuldum félaganna mun það því taka fjölda ára að greiða þær niður Í tilkynningu Arion banka segir að tilboð um endurskipulagningu 1998 ehf. geri ekki ráð fyrir afskriftum skulda. Munu Hagar því væntanlega þurfa að standa undir skuldum móðurfélagsins. FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SAMANLAGÐAR vaxtaberandi skuldir Haga og móðurfélagsins 1998 ehf. eru um 60 millj- arðar króna, miðað við ársreikning Haga fyrir síðasta ár og fréttir af skuldastöðu 1998 ehf. Samkvæmt yfirlýsingu Arion banka frá því í gær gerir framkomið tilboð um endurskipu- Morgunblaðið/Ómar „Ef ég skil þetta rétt, var tekin ákvörðun um að taka ekki ákvörðun fyrr en eftir ára- mót, og ég tel ekki ástæðu til sérstakra viðbragða vegna þess,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um ákvörð- un Arion banka að taka sér tvo mánuði til að meta tilboðið. Tilboð frá eigendum 1998 ehf., erlend- um fjárfestum og stjórnendum félagsins, um fjárhagslega enduskipulagningu hefur ekki verið lagt fyrir stjórn Arion banka, að sögn Ernu Bjarnadóttur, stjórnarformanns bankans. „Ekki hefur verið boðaður stjórnarfundur hjá bankanum. Bankinn hefur hins vegar mikilla hagsmuna að gæta í málinu og teljum við rétt að vanda til verka og taka okkur þann tíma sem okkur þykir nauðsynlegur.“ Vilja vanda til verksins    Bílaapótek Hæðarsmára Mjódd • Álftamýri                     FRAMTÍÐARSKIPULAG í Vesturbænum var efni fund- ar, sem haldinn var í Hagaskóla í gær. Fundargestum var skipt niður í hópa eftir málaflokkum og áttu þeir þess kost að koma athugasemdum, gagnrýni og tillögum á framfæri. Fundir af þessu tagi hafa verið haldnir víða um Reykjavík undanfarið og hafa hugðarefni verið mis- jöfn eftir hverfum. Á fundinum var rætt um þrönga að- stöðu KR og nauðsyn þess að gera starfsemi félagsins að- gengilega börnum alls staðar í hverfinu. Á nokkrum borðum var vakið máls á því að tengja þurfi norður- og suðurhluta Vesturbæjar betur með því að setja brýr yfir eða göng undir Hringbraut. Í umræðum um skólamál var lögð áhersla á að niðurskurður vegna bankahruns ætti ekki að koma niður á gæðum kennslu. Morgunblaðið/Golli „Hvað sem þér liggur á hjarta“ Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynurorri@mbl.is FRUMVARP vegna breytinga á óbeinum sköttum, það er álögum á vöru og þjónustu, var lagt fram á Al- þingi í gær. Lagt er til að gjöld á áfengi og tóbaki hækki um 10%, sem talið er munu skila um milljarði í viðbótartekjur í ríkissjóð. Verði það að veruleika hafa gjöld á áfengi hækkað um 42% á tólf mánuðum. Gera má ráð fyrir að rekstur bif- reiða verði dýrari hljóti frumvarpið samþykki, en það felur m.a. í sér 10% hækkun á bifreiðagjaldi frá næstu áramótum, sem er ætlað að skila ríkissjóði árlega 500 milljóna viðbót- artekjum. Þá er lagt til að almennt bensíngjald hækki um 2,50 kr. á hvern lítra en olíugjald um 1,65 kr. á lítra. Einnig segir að í undirbúningi sé frumvarp um kolefnisgjald, sem ætlað er að skila ríkinu 900 milljón- um. Til viðbótar er lagt til að fjölmörg skráningar- og leyfisgjöld hækki, að meðaltali um 50%. Mest hækka dómsmálagjöld, sem er bæði ætlað að mæta auknum rekstrarkostnaði dómstóla og draga úr fjölda smærri mála sem berast dómskerfinu. Eins og komið hefur fram er lagt til þriggja þrepa virðisaukaskatt- kerfi. Frá 1. mars á næsta ári verður samkvæmt frumvarpinu bætt við nýju 14% þrepi, og falla í þann flokk sykurvörur, óáfengar drykkjarvörur og sala veitinga- og kaffihúsa, sem allt bar áður 7% skatt. Þá verður al- mennur virðisaukaskattur hækkað- ur úr 24,5 í 25%, en gert er ráð fyrir að sú breyting taki gildi 1. janúar. Reiknað er með að breytingar á vaskinum skili 6 milljarða króna tekjuauka ári og valdi 0,6% hækkun vísitölu neysluverðs. Loks er lagt til að einstaklingum verði heimilað að leysa út séreigna- sparnað að upphæð 1,5 milljónir fyr- ir staðgreiðslu tekjuskatts og út- svars, til viðbótar þeirri milljón sem var heimiluð fyrr á árinu. Talið er að breytingin valdi mikilli aukningu í útgreiðslu séreignasparnaðar, sem skili ríkissjóði 5 milljarða tekjuauka en sveitarfélögum 2,6 milljörðum. Áfengisgjaldið hækk- ar um 42% á einu ári BANDARÍSKU hagfræðingarnir James K. Galbraith og William K. Black gagnrýna mjög forsendur í skýrslu Alþjóðgjaldeyrissjóðsins frá 20. október sl. varðandi sjálfbærni vergra erlendra skulda íslenska þjóð- arbúsins. Kemur þetta fram í bréfi, sem þeir sendu Gunnari Tómassyni hagfræðingi og hann sendi áfram til alþingismanna í gær. Segja þeir að í skýrslu AGS sé m.a. látið undir höfuð leggjast að íhuga áhrif mikilla skattahækkana, niður- skurðar á opinberri þjónustu, sam- dráttar atvinnutekna, mögulegrar gengislækkunar og atvinnuleysis á flutning vinnandi fólks af landi brott. „Okkur sýnist liggja í augum uppi að þær gífurlegu byrðar sem verið er að leggja á örsmáan hóp vinnandi fólks muni leiða til flutninga af landi brott. En um leið og erlendar skuldbinding- ar Íslands falla með sívaxandi þunga á aðra landsmenn verður erfiðara fyr- ir þá sem eftir eru og vilja búa áfram á Íslandi að gera það.“ Þá segja þeir að mat AGS á hreinni skuldastöðu Íslands sé hæpið, þar sem það byggist á þeirri forsendu að hægt sé að selja erlendar eignir fyrir bókfært virði þeirra. Einnig gagnrýna þeir spá AGS um kröftugan hagvöxt hér á landi þrátt fyrir miklar skattahækkanir og stór- felldan niðurskurð opinberra út- gjalda. „Spáin grundvallast á mjög mikilli aukningu hreins útflutnings sem virð- ist hvorki vera grundvölluð á sögu- legum viðmiðum né atvinnugreinum og mörkuðum sem þegar eru til stað- ar,“ segir í bréfinu. Hugsanleg upp- sveifla í hreinum útflutningi geti ein- ungis átt sér stað með varanlegum samdrætti innflutnings og þar með al- mennra lífskjara. bjarni@mbl.is Vara við flótta fólks úr landi Erlendir hagfræðingar gagnrýna AGS James K. Galbraith William K. Black

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.