Morgunblaðið - 25.11.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
www.noatun.is
NEUTRAL, 1,9 KG
ÞVOTTAEFNI
KR./PK.
649
Frábær
tilboð í
Nóatúni
NIVEA HERRA
SNYRTIVÖRUR
20%
afsláttur
NÝTT
Í NÓATÚNI!
BÚAST má við stormi á hálendinu og suðaust-
anverðu landinu, samkvæmt stormviðvörum
Veðurstofunnar í gær. Einnig má víða búast við
hviðum hlémegin við fjöll. Talsverð rigning
verður austanlands, él norðan og norðvestan til,
en léttskýjað um landið sunnan- og vestanvert.
„Nú er kominn vetur í kortin eftir gott haust ut-
an grimma viku í byrjun október,“ sagði Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við
Morgunblaðið. Að sögn Hreins Haraldssonar
vegamálastjóra hefur haustið verið útgjaldalítið
í snjómokstri og hefur Vegagerðin komist hjá
því að skerða þjónustu. „Það telur þegar tíðin er
góð,“ segir Hreinn. Myndin var tekin á Vopna-
firði í gær en leiðin þaðan yfir á Hérað um
Hellisheiði er orðin ófær og aðeins hægt að fara
um Vopnafjarðarheiði hvort sem leiðin liggur á
Hérað eða norður í land.
Stormviðvörun fyrir hálendið og suðaustanvert landið
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Haustið útgjaldalítið í snjómokstri
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Samkeppniseftirlitinu hefur borist
kvörtun um að Hagar selji vörur
undir innkaupsverði í verslunum
sínum. Í lok árs 2008 lagði Sam-
keppniseftirlitið 315 milljóna króna
stjórnvaldssekt á Haga fyrir alvar-
legt brot á samkeppnislögum. Í
ákvörðuninni er komist að þeirri
niðurstöðu að Hagar hafi misnotað
markaðsráðandi stöðu á mat-
vörumarkaði með því að selja til-
teknar vörur undir kostnaðarverði.
Áfrýjunarnefnd staðfesti nið-
urstöðuna, en Hagar hafa stefnt
samkeppnisyfirvöldum fyrir hér-
aðsdóm vegna málsins. Tilefni
rannsóknar stofnunarinnar var
undirverðlagning á árunum 2005 og
2006, en þá hóf Krónan markaðs-
sókn. Í kjölfarið hófst verðstríð sem
birtist m.a. í því að um tíma var
mjólkurlítrinn seldur á eina krónu.
Athugun Sam-
keppniseftirlits-
ins leiddi í ljós að
Hagar hefðu
markaðsráðandi
stöðu. Í lok rann-
sóknartímabilsins
var markaðs-
hlutdeild Haga á
matvörumarkaði
um 50% á land-
inu öllu og um
60% á höfuðborgarsvæðinu. Mark-
aðshlutdeild keppinautanna var
miklu mun minni. Niðurstaðan var
því sú að Hagar hefðu brotið 11.
grein samkeppnislaga, en í henni er
lagt bann við hvers konar misnotk-
un á markaðsráðandi stöðu.
„Þessi niðurstaða veitir leiðbein-
ingu um hvað aðila í þessari stöðu
er heimilt að gera og ekki gera á
matvörumarkaði,“ sagði Páll Gunn-
ar Pálsson, forstjóri Samkeppn-
iseftirlitsins.
Páll Gunnar sagði að hugsanleg
undirverðlagning Haga hefði ekki
komið til rannsóknar að nýju eftir
að úrskurður áfrýjunarnefndar féll
fyrr á þessu ári. Hann staðfesti
hins vegar að nýverið hefði borist
kvörtun til stofnunarinnar þar sem
því væri haldið fram að Hagar
seldu enn vörur undir kostn-
aðarverði. Hann sagði að Sam-
keppniseftirlitið væri að taka af-
stöðu til meðferðar á þessari
kvörtun.
Saka Haga um samkeppnisbrot
Samkeppniseftirlitinu hefur borist kvörtun um að Hagar selji vörur undir kostnaðarverði
Hagar eru með markaðsráðandi stöðu og greiddu fyrir ári 315 milljónir í sekt fyrir samkeppnisbrot
Fyrir ári komst Samkeppniseftir-
litið að þeirri niðurstöðu að Hag-
ar hefðu misnotað markaðs-
ráðandi stöðu sína. Stofnunin
hefur nú fengið nýja kvörtun.
Páll Gunnar
Pálsson
„VEITINGAHÚS
eru mjög ólík
matvöruversl-
unum að því
leyti að mat-
vöruverslanir
breyta verði oft
á dag. Það gera
veitingahús ekki.
Það eru gefnir
út matseðlar og
sendir á erlendar ferðaskrifstofur
út um allan heim og menn breyta
því ekki verði með skömmum fyr-
irvara.“
Þetta sagði Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar, um þá gagnrýni að
veitingahúsin hafi skilað seint og
illa til neytenda lækkun á virðis-
aukaskatti vorið 2007. Skatturinn
lækkaði úr 24,5% í 7%.
Erna sagði að það væru hundr-
uð veitingahúsa á Íslandi og án
efa mismunandi hvernig skatta-
lækkunin hefði skilað sér inn í
verðið. Hún sagðist vita að skyndi-
bitastaðir hefðu strax lækkað
verðið hjá sér. Einnig hefði hrá-
efnisverð hækkað mikið haustið
2006 og sum veitingahús ákveðið
að bíða með að hækka verð þar
sem vitað hefði verið að virð-
isaukaskattslækkun væri fram-
undan.
Fyrir Alþingi liggur tillaga um
að virðisaukaskattur á veitingahús
hækki úr 7% í 14%.
egol@mbl.is
Veitingahús
ekki með tíðar
verðbreytingar
Erna Hauksdóttir
„Smásölumarkaður fyrir mat-
vörur er langstærsti neyt-
endavörumarkaður hér á
landi og má ætla að heild-
arvelta hans sé á bilinu 65-
70 milljarðar kr. á árs-
grundvelli,“ sagði í nið-
urstöðu
Samkeppniseftirlitsins fyrir
ári. Stofnunin taldi að undir-
verðlagning hefði „náð til
flestra þeirra vörutegunda
sem voru teknar til skoð-
unar“ á viðmiðunartímabilinu.
Stór markaður
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
STARFSMENN sérstaks saksókn-
ara gerðu í gær húsleitir í höfuð-
stöðvum Byrs og MP Banka, vegna
gruns um brot á almennum hegning-
arlögum um, auðgunarbrot og um-
boðssvik. Að sögn Ólafs Þórs Hauks-
sonar, sérstaks saksóknara, voru
húsleitirnar nokkuð viðamiklar og
stóðu yfir í um níu klukkustundir, en
lagt var hald á bæði skjöl og rafræn
gögn. Samhliða húsleitunum fóru
fram yfirheyrslur vegna málsins og
verður þeim að sögn Ólafs Þórs hald-
ið áfram í vikunni.
Um tuttugu starfsmenn sérstaks
saksóknara tók þátt í húsleitinni, en
auk þess kom lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu að leitinni.„Tæknimenn
frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu aðstoðuðu okkur og sáu m.a. um
handlagningu rafrænna gagna,“ seg-
ir Ólafur Þór.
Keyptu bréf á yfirverði
Greint var frá því í Morgunblaðinu
í lok október að Fjármálaeftirlitið
hefði vísað til sérsaks saksóknara
máli vegna láns Byrs til eignarhalds-
félagsins Exeter Holdings. Lánin
voru veitt í október og desember
2008 og hljóðuðu samtals upp á 1,1
milljarð króna. Voru þau veitt til
þess að kaupa 1,8% stofnfjárhlut í
Byr á yfirverði. Ekkert hefur verið
greitt af lánunum.
Á þessum tíma var markaður með
stofnfjárbréf lokaður og verð bréf-
anna hafði lækkað mikið. Seljendur
bréfanna voru meðal annarra MP
banki og tveir stjórnarmenn í Byr,
þeir Jón Þorsteinn Jónsson og Birgir
Ómar Haraldsson. MP banki hafði
eignast sín bréf m.a. eftir veðkall á
eignarhaldsfélag í eigu Ragnars Z.
Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra
Byrs, og annarra stjórnenda spari-
sjóðsins.
Vonast til að óvissu verði eytt
Fullyrt er í tilkynningu sem MP
banki sendi frá sér vegna málsins, að
samkvæmt upplýsingum bankans
snúi húsleitin að „ákveðnum við-
skiptavinum bankans en ekki að
bankanum sjálfum eða starfsmönn-
um hans“. Í tilkynningu sem Byr
sendi frá sér segir að rannsóknin
hafi ekki áhrif á starfsemi spari-
sjóðsins, og að vonast sé til þess að
óvissu vegna málsins verði eytt.
Yfirheyrslur og húsleitir
hjá Byr og MP banka
Húsleitir stóðu yfir í allan gærdag og lagt hald á ýmis gögn