Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 12

Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 12
12 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 FENGUR, móðurfélag flugfélagsins Iceland Express, hefur fengið 10 milljóna króna stjórnvaldssekt frá Samkeppniseftirlitinu fyrir að brjóta gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áð- ur en eftirlitið hefur heimilað hann. Þetta kemur fram í úrskurði eft- irlitsins frá því í gær. Fengur og Samkeppniseftirlitið gerðu sátt í málinu en Samkeppn- iseftirlitið tilkynnti Feng það mat sitt að svo virtist sem brotið hefði verið gegn banni samkeppnislaga við framkvæmd á samruna Fengs og Ferðaskrifstofu Íslands. Í framhaldi af því leitaði Fengur til eftirlitsins og óskaði eftir því að sátt yrði gerð í málinu. „Viðræður leiddu til þess að sátt var gerð við félagið líkt og Sam- keppniseftirlitinu er heimilt sam- kvæmt samkeppnislögum. Sú heim- ild er til þess fallin að stytta rannsókn og málsmeðferð sam- keppnisyfirvalda,“ segir í frétt á síðu Samkeppniseftirlitsins. ivarpall@mbl.is Fengur fær sekt Iceland Express Sátt var gerð í máli móðurfélags Iceland Express og Sam- keppniseftirlitsins vegna samruna við Ferðaskrifstofu Íslands. Sameinaðist Ferðaskrifstofu Íslands áður en samruninn var heimilaður ● Vísitala Gallup um væntingar lækk- aði á milli október og nóvember, eftir að hafa hækkað næstu þrjá mánuði á und- an. Gildið í nóvember var 44,3 stig, en í október var það 47,9 stig. Í Morg- unkorni Íslandsbanka segir að þetta bendi til þess að svartsýnin í garð efnahags- og atvinnuástandsins sé að aukast. „Þrátt fyrir þessa lækkun mælist gildi vísitölunnar nú töluvert hærra en það var á sama tíma fyrir ári, auk þess hærra en það hefur að jafnaði verið frá hruni bankanna,“ segir í Morg- unkorni Íslandsbanka í gær. Væntingar minnka ÞETTA HELST ... ● Seðlabanki Íslands tilkynnti í gær um breytta dráttarvexti og vexti af pen- ingakröfum. Frá 1. desember hækka vextir verðtryggðra lána og verða 5,3% í stað 4,9%. Vextir af óverðtryggðum lánum lækka úr 10,5% niður í 9% og vextir af skaðabótakröfum lækka úr 7,0% í 6%. Dráttarvextir lækka og fara úr 19% niður í 18% fyrir tímabilið 1. desember til 31. desember 2009. Dráttarvextir lækka ● Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. hefur fengið nýtt heiti, Stefnir hf. Stefnir er dótt- urfélag Arion banka og starf- rækir verðbréfa-, fjárfestingar og fagfjárfestasjóði. Félagið er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki og um starf- semi þess gilda skýrar reglur um að- skilnað reksturs frá rekstri móður- félags. Í frétt frá Arion banka segir að með nýju nafni vilji stjórnendur Arion banka og Stefnis undirstrika sjálfstæði félagsins og þann aðskilnað sem verið hafi milli dóttur- og móðurfélags. Rekstrarfélag Kaup- þings verður Stefnir Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is ÁLAG á skuldatryggingar íslenska ríkisins hefur hækkað umtalsvert í kjölfar þess að Moody’s lækkaði lánshæfismat um tvö þrep niður í Baa3. Áður en matsfyrirtækið til- kynnti um ákvörðun sína hinn 11. nóvember var skuldatryggingaálag íslenska ríkisins ríflega 340 punktar en það fór hæst í 390 punkta í vik- unni og stóð í tæpum 380 punktum í gær. Þessi þróun vekur vissulega at- hygli. Ekki síst vegna að hún hefst eftir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ákvað loks að afgreiða neyðarlán til íslenska ríkisins eftir langa töf en að vísu kann það að vega á móti að enn ríkir óvissa um hver örlög Icesave- frumvarpsins verða. Þróunin á markaðnum með skuldatryggingar endurspeglar væntingar fjárfesta um greiðsluhæfi ríkja eða fyrirtækja og er álagið einn af þeim þáttum sem matsfyrirtæki horfa til við ákvörðun lánshæfismats. Að sögn Paul Rawkins, fram- kvæmdastjóra hjá lánshæfismats- fyrirtækinu Fitch í London, hefur skuldatryggingaálagið á ríki í Aust- ur og Mið-Evrópu almennt verið að hækka að undanförnu og þar af leið- andi sker þróunin á álagi íslenskra stjórnvalda sig ekki úr. Hinsvegar bendir hann á að álagið á Ísland sé býsna hátt þegar það er borið saman við ríki sem njóta svipaðrar lánshæf- iseinkunnar. Þannig bendir Rawkins á að skuldatryggingaálagið á Kas- akstan, sem nýtur sömu lánshæfis- einkunnar og Ísland hjá Fitch eða BBB-, sé um 236 punktar um þessar mundir. Álagið á ungverska ríkið, sem eru einu lánshæfiþrepi ofar ís- lenska ríkinu, er um 214 punktar. Sé litið til þessara þátta og staða Íslands miðað við lánshæfiseinkunn Fitch borin saman við stöðu annarra smáríkja í Evrópu sést til að mynda að skuldatryggingaálagið á lettn- eska ríkið, sem er með einkunnina BB+, er 548 punktar um þessar mundir. Fitch er að endurmeta láns- hæfi íslenska ríkisins út frá nei- kvæðum horfum og myndi það lækka um einn flokk færi það í vænt- anlega sama flokk og Lettland og væri því í ruslflokki. Litháen er með lánshæfiseinkunn sem er einu þrepi hærra en einkunn íslenskra stjórn- valda eða BBB og er skuldatrygg- ingaálagið á stjórnvöld þar í landi um 324 punktar um þessar mundir. Álag ríkisins hækkar  Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins er ívið hærra en ríkja með svipaða lánshæfiseinkunn  Álagið hefur hækkað síðan Moody’s lækkaði lánshæfismatið Í HNOTSKURN »Þróunin á markaðnummeð skuldatryggingar endurspeglar væntingar fjár- festa um greiðsluhæfi ríkja eða fyrirtækja. Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins stóð í tæpum 380 punkt- um í gær og fór hæst í 390 punkta í vikunni. Fyrir lækkun lánshæfismats Moody’s var það ríflega 340 punktar. ● HS Orka til- kynnti í gær að fé- lagið hefði náð samkomulagi við lánardrottna sína um breytingar á skilmálum erlendra lána. Fyrir lá að fé- lagið uppfyllti ekki kröfur um eig- infjárhlutfall og rekstrarhlutföll, vegna falls íslensku krónunnar. Í frétt frá HS Orku kemur fram að þess var sérstaklega getið í ársreikn- ingi félagsins og í áritun endurskoð- enda að félagið uppfyllti ekki kröfur um eiginfjárhlutfall. Félagið hóf strax samningaviðræður við erlenda lánveit- endur sína, Norræna fjárfestingarbank- ann (NIB), Evrópska fjárfestingarbank- ann (EIB) og Evrópska þróunarbankann (CEB). Þessar við- ræður hafa leitt það af sér að nú hefur verið undirritað samkomulag við banka félagsins. Samkomulagið felur í meg- inatriðum í sér að lánveitendur HS Orku hf. auka svigrúm félagsins til frá- vika frá fjárhagskvöðum ásamt því að samþykkja uppskiptingu Hitaveitu Suð- urnesja í HS Orku hf. og HS Veitur hf. Þess í stað veitir HS Orka hf. beinar veðtryggingar vegna lána í eignum fé- lagsins, í stað óbeinna veða áður, auk þess sem bankarnir hækka vaxtaálag sitt tímabundið. Þá er staðfest að bankarnir viðurkenna HS Orku hf. sem nýjan skuldara í stað Hitaveitu Suð- urnesja hf. í kjölfar uppskiptingar fyr- irtækisins. HS Orka semur við lán- ardrottna um skilmála SAGA Capital tilkynnti í gær að bankinn hefði lokið við endurskipu- lagningu á efnahagsreikningi sín- um. „Í því felst að eignasafni Saga Capital er skipt upp, þannig að þær eigur sem tilheyra bankastarfsemi verða áfram innan hans en aðrar eigur eru seldar, m.a. eigur sem draga kunna úr rekstrarhæfi og eiginfjárstyrkleika. Þetta er enn- fremur gert til að koma til móts við möguleg áhrif óinnleiddra tilskip- ana Evrópusambandsins hér á landi,“ segir í tilkynningu frá bank- anum. Í vor var sagt frá því að bankinn hefði náð samningi við íslenska rík- ið vegna vegna skuldar upp á um 15 milljarða króna sem varð til í svo- kölluðum endurhverfum við- skiptum (repo-viðskiptum) við Seðlabanka Íslands. Fram kom að lánið átti að greiðast upp á sjö ár- um, en vaxtakjör voru ekki gjörð kunn. ivarpall@mbl.is Saga Capital skiptir eignasafni sínu upp Bankaeignir ennþá inni í félaginu Góðar hugmyndir fyrir jólasveininn... Blokkflauta Blokkflautur á frábæru verði! Nokkir mismunandi litir fáanlegir. Kúluspil Sniðug kúluspil á frábæru verði! 199,- blokkflauta Eldhússett Sniðugt eldhússett fyrir káta krakka. 299,- settið aðeins: 299,- kúluspil Klísturboltar Klístraðir boltar sem hægt er að kreista. Klísturgrís Klístraðir grísir til að kreista. 299,- bolti 249,- klísturgrísTattú fyrir krakka Sniðugt tattú sem þolir vatn. 299,- spjaldið Litabók og litir Litabók og litir saman í pakka á frábæru verði! 399,- litabók+litir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.