Morgunblaðið - 25.11.2009, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
UMTALSVERÐAR hræringar hafa
verið á verðbréfamörkuðum í Grikk-
landi að undanförnu. Þær eru vegna
ótta fjárfesta við afleiðingarnar fyrir
gríska hagkerfið þegar evrópski
seðlabankinn, ECB, dregur úr neyð-
arlánveitingum sínum til fjár-
málamarkaðarins í næsta mánuði.
Gríska hagkerfið er sennilega það
verst stadda innan evrusvæðisins.
Auk áhrifa fjármálakreppu, efna-
hagsniðursveiflu og versnandi sam-
keppnisstöðu vegna sterks gengis
evrunnar þurfa stjórnvöld að takast
á við gríðarlega mikinn fjárlaga- og
viðskiptahalla. Stjórnvöld stefna að
því að fjárlagahallinn verði innan við
10% af landsframleiðslu á þessu ári
og búist er að viðskiptahallinn nemi
13%.
Á sama tíma bendir margt til þess
að ECB hyggist stíga skref í átt að
auknu aðhaldi í peningamálastefn-
unni á næstunni. Þannig er búist við
að útboðum á lánsfé til eins árs sem
er án takmarkana hvað varðar heild-
arhupphæð verði hætt í næsta mán-
uði. Byrjað var á þessum útboðum
þegar lausafjárkreppan skall á.
Grískir bankar hafa verið stór-
tækir í þessum útboðum, en að sögn
breska blaðsins Financial Times
nema lán þeirra frá ECB tæpum 8%
af heildareignum þeirra. Verði um-
skiptin á evrusvæðinu ekki þeim
mun kraftmeiri munu því grískir
bankar standa frammi fyrir umtals-
vert hærri fjármagnskostnaði á
næstunni.
Auk þessa eiga er þeir í hættu að
stór hluti eignasafns þeirra – sem
eru grísk ríkisskuldabréf – falli enn
frekar í verði. Lánshæfiseinkunn
grískra ríkisskuldabréfa hefur verið
lækkuð af Fitch og S&P niður í A-.
Endurspeglar lækkunin hríðversn-
andi stöðu ríkisfjármála og sligandi
skuldsetningu. Um þessar mundir
er skuldatryggingaálagið á gríska
ríkið um 180 punktar og bilið á milli
vaxta á þýskum ríkisskuldabréfum
og grískum 180 punktar. Það verður
að teljast til ótvíræðs spennumerkis
á sameiginlegu myntsvæði. Þó verð-
ur að hafa í huga að bilið var hærra
þegar fjármálakreppan var í hámæli
síðasta vetur. Lækkun á virði grísku
ríkisskuldabréfanna mun því rýra
efnahagsreikning þarlendra banka
og ef lánshæfi verður lækkað enn
frekar mun það hafa áhrif á á hvaða
kjörum verður hægt að leggja þau
fram í endurhverfum verðbréfa-
viðskiptum við seðlabanka.
Morgunblaðið/Kristinn
Grikkland Skuldatryggingaálag á gríska ríkið er nú um 180 punktar og bil-
ið milli vaxta á þýskum ríkisskuldabréfum og grískum 180 punktar.
Gríska hagkerfið er á
milli steins og sleggju
Útlit fyrir að evrópski seðlabankinn dragi úr
lánveitingum til fjármálamarkaðarins í desembermánuði
Dagskrá
1. Fundarsetning
2. Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri, kynnir stöðu sjóðsins
3. Þorkell Sigurlaugsson, formaður endurskoðunarnefndar sjóðsins,
fer yfir hlutverk endurskoðunarnefndar
4. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, ræðir um áhrif
skattlagningar lífeyrisiðgjalda
5. Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarmaður í sjóðnum, ræðir
mögulega aðkomu lífeyrissjóða að uppbyggingu atvinnulífsins
6. Umræður
7. Önnur mál
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins
Sjóðfélagafundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður
haldinn fimmtudaginn 26. nóvember 2009 kl.17.30
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
SJÓÐFÉLAGAFUNDUR
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Sími 510 5000
mottaka@lifeyrir.is
lifeyrir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
39
87
6
Fyrsta flokks skrifstofuhúsnæði
í Borgartúni 26 og Ármúla 13a
Landfestar bjóða til leigu afbragðsgóða aðstöðu fyrir skrifstofurekstur í
vönduðum og vel skipulögðum húsakynnum á tveimur eftirsóknarverðum
stöðum í höfuðborginni.
B26 - Borgartún 26
108 Reykjavík
8. hæð 1.100 m2 til afhendingar í febrúar með glæsilegum
innréttingum
7. hæð 1.200 m2 fullbúið með glæsilegum innréttingum og
húsgögnum, til afhendingar strax
5. hæð 980 m2 tilbúið til innréttinga
2. hæð 980 m2 tilbúið til innréttinga
Húsið er allt hið glæsilegasta. Auk þess fylgir eigninni þriggja hæða
bílakjallari.
Ármúli 13a
105 Reykjavík
2.570 m2
Eignin í heild er til leigu. Húsið er fjórar hæðir auk kjallara. Á öllum hæðum
eru skrifstofurými með vönduðum innréttingm en geymslur, starfsmanna-
aðstaða og mötuneyti í kjallara. Húsið er laust strax til afhendingar. Semja
má um leigu á húsinu í heild eða á einstökum hlutum þess.
Húsaleiga er án virðisaukaskatts.
Nánari upplýsingar í síma 856 1414
Landfestar ehf. eru fasteignafélag í eigu Arion banka. Markmið félagsins er að þróa öflugt fyrirtæki á fasteignamarkaði. Félagið hefur til umráða um sjötíu og fimm þúsund fermetra af góðu húsnæði.
Stærsti hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meðal helstu leigutaka félagsins eru bæði ríkisstofnanir og nokkur af stærri fyrirtækjum landsins. Landfestar ehf. sími 422 1400
www.landfestar.is
Til leigu - Glæsilegt skrifstofuhúsnæði
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
A
F
47
47
9
11
/0
9