Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
HUNDRUÐ þúsunda hindúa komu
saman í bæ í Nepal í gær til að taka
þátt í hátíð sem er talin vera mesta
fórnarhátíð heimsins. Gert er ráð
fyrir því að alls verði yfir 300.000
dýrum fórnað á hátíðinni og dýra-
verndarsamtök hafa mótmælt henni
harðlega.
Hátíðin er haldin á fimm ára fresti
í bænum Bariyapur í suðurhluta
Nepals, við landamærin að Indlandi.
Hofprestar í bænum bjuggu sig und-
ir að slátra meira en 15.000 bufflum
og 300.000 fuglum, geitum og sauð-
um á hátíðinni.
„Gyðjan þarf blóð“
Fórnarhátíðin er helguð Gad-
himai, gyðju valdsins. Þátttakend-
urnir líta á dýrafórnirnar sem leið til
að þakka gyðjunni fyrir velgengni
eða biðja hana um gæfu og hagsæld.
„Gyðjan þarf blóð,“ hafði frétta-
vefur breska ríkisútvarpsins, BBC,
eftir Chandan Dev Chaudhury,
presti í Gadhami-hofinu þar sem há-
tíðin hófst. „Ef einhver er með
vandamál þá skerum við dýr á háls í
hofinu og vandamálið leysist.“
Hofprestar hófu hátíðina með því
að slátra tveimur villtum rottum,
hana, svíni, geit og lambi.
Áætlað var að um hálf milljón
hindúa væri í bænum í gær og að alls
tæki um milljón manna þátt í hátíð-
inni, þeirra á meðal margir hindúar
frá Indlandi.
Æðsti prestur Gadhami-hofsins,
Mangal Chaudhary Tharu, sagði að
þátttakendurnir yrðu óvenjumargir
að þessu sinni þar sem þetta væri
fyrsta fórnarhátíðin í bænum eftir
að stríðinu í Nepal lauk árið 2006.
Vopnaðir lögregluþjónar hafa ver-
ið sendir til bæjarins og yfirvöld
hafa bannað áfengi á hátíðinni.
Hátíðargestirnir og íbúar bæj-
arins fá kjöt fórnardýranna en
skinnið verður selt á uppboði, þann-
ig að bæjarbúarnir hafa dágóðar
tekjur af hátíðinni.
Dýraverndarsamtök reyndu án
árangurs að fá skipuleggjendur há-
tíðarinnar og stjórnvöld í Nepal til
að aflýsa hátíðinni og sögðu að
hindúar gætu blíðkað gyðjuna með
ávöxtum og blómum.
Barátta samtakanna naut stuðn-
ings þekktra dýraverndarsinna á
borð við Indverjann Maneka Gandhi
og frönsku leikkonuna Brigitte
Bardot. Hún skrifaði forseta Nepals,
Ram Baran Yadav, bréf og skoraði á
hann að koma í veg fyrir að „drukkn-
ir“ hindúar „skæru höfuðið af þús-
undum skelfingu lostinna buffla“.
Yfir 300.000 dýrum fórnað
á mestu fórnarhátíð heims
Reuters
Umdeild hátíð Slátrarar úr röðum hindúa búa sig undir að taka þátt í dýrafórnum við hof í Bara-héraði í suður-
hluta Nepal þegar mesta fórnarhátíð heims hófst þar í gær. Hátíðin er tileinkuð Gadhimai, gyðju valdsins.
Dýraverndarsamtök reyndu án árangurs að hindra dýrafórnir hindúa í Nepal
STARFSEMI allt
að 30 leikskóla í
Kaupmannahöfn
lagðist niður í
gær vegna mót-
mæla foreldra
sem eru andvígir
áformum borg-
aryfirvalda um
að spara nær 48
milljónir danskra króna (nær 1.200
milljónir íslenskra) í rekstri leik-
skólanna á næsta ári.
„Flestir foreldrarnir skilja það
sem við erum að gera. Og við vitum
að ástandið versnar frá janúar ef
við gerum ekki eitthvað núna,“
sagði talsmaður samtaka foreldra í
Kaupmannahöfn. Samtökin óttast
að starfsmönnum leikskólanna
verði fækkað.
Foreldrar mót-
mæla sparnaði
í leikskólum
AÐ MINNSTA kosti fjögur af hverj-
um fimm börnum, sem búa á mun-
aðarleysingjahælum víða um heim,
eiga foreldra á lífi, samkvæmt
nýrri skýrslu.
Alþjóðlegu hjálparsamtökin Save
the Children, eða Barnaheill, segja
að sumar stofnanir þvingi eða
blekki fátæka foreldra til að láta
börn sín af hendi. Í skýrslu samtak-
anna segir að milljónum barna sé
stefnt í hættu með því að vista þau á
stofnunum þar sem þau geti orðið
fórnarlömb nauðgana, mansals eða
barsmíða. Nær væri að nota fjár-
muni til að styðja fjölskyldur þann-
ig að þær gætu alið önn fyrir börn-
um sínum. Í skýrslunni er lagt til að
eftirlit með hælunum verði hert.
Um átta milljónir barna eru
skráðar á munaðarleysingjahælum
í heiminum en talið er að miklu
fleiri séu í raun vistuð þar vegna
þess að mörg barnanna eru óskráð.
Mörgum börnum
stíað frá foreldrum
46 ÁRA Belgi, Rom Houben, sem
var talinn vera í dái í 23 ár, reyndist
hafa fulla meðvitund, að sögn belg-
ískra lækna.
Houben lamaðist í bílslysi 1983
og var talinn vera í dauðadái þar til
læknir uppgötvaði að heila-
starfsemi sjúklingsins var nær al-
gerlega eðlileg. Læknirinn segir að
í 40% tilvika þar sem sjúklingar eru
taldir vera í dái leiði nánari eft-
irgrennslan í ljós að þeir hafi með-
vitund.
Ranglega tal-
inn í dái í 23 ár
Reuters
Ekki í dái Houben með móður sinni.
SKATTAYFIRVÖLD í Danmörku
ætla að stórherða eftirlitið með fé-
lögum í glæpagengjum á borð við
Vítisengla og hafa fengið heimild til
að ráða allt að 40 nýja starfsmenn í
þeim tilgangi eftir áramótin. Eftir-
litið felst meðal annars í því að bera
saman framtaldar tekjur meintra
glæpamanna og kaup þeirra á dýr-
um bílum og bifhjólum.
Segja má að ætlunin sé að beita
svipaðri aðferð og bandarísk yfir-
völd beittu til að hafa hendur í hári
glæpaforingjans Als Capones í
Chicago árið 1931. Finni danska lög-
reglan grunsamlega fjármuni í fór-
um meintra glæpamanna þarf hún
að sanna að þeir hafi aflað pening-
anna með glæpastarfsemi en sönn-
unarbyrðin snýst við ef málinu er
vísað til skattayfirvalda. Meintir
glæpamenn, sem þykjast oft lifa á
örorkubótum eða annarri félagslegri
aðstoð, þurfa þá að sýna fram á að
þeir hafi fengið fjármunina með lög-
legum hætti.
Dönsk skattayfirvöld hafa þegar
lagt hald á 150 farartæki vegna
slíkra mála í ár, oft dýra bíla á borð
við BMW eða Harley Davidson-
mótorhjól, að sögn fréttavefjar
danska ríkisútvarpsins. Mönnunum
er gert að greiða skatta af áætluðum
tekjum sínum og sektir, auk þess
sem hægt er að dæma þá í fangelsi
fyrir skattsvik. bogi@mbl.is
Skatturinn gegn bófum
Dönsk skattayfirvöld herða eftirlitið með glæpagengjum
Sönnunarbyrðin snýst við er lögreglan leitar til skattsins
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000
Ein gjöf sem
hentar öllum
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að
gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
N
B
Ih
f.
(L
an
d
sb
an
ki
n
n)
,k
t.
4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
39
89
1