Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 20

Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 ✝ Guðrún Ó. Karls-dóttir stór- kaupmaður fæddist á Seltjarnarnesi 20. ágúst 1907. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 18. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigríður Jónsdóttir, húsmóðir og klæð- skeri, f. 29.8. 1874, d. 7.8. 1959, frá Brekku- koti í Reykholtsdal, og Karl G. Ólafsson, sjómaður, f. 10.8. 1872, d. 18.7. 1925, frá Bygggarði á Seltjarnarnesi. Guðrún er síðust í hópi átta systkina sem kveður þennan heim. Þau voru: Karolína, f. 3.6. 1900, d. 5.2. 1988; Guðjón, f. 27.11. 1901, d. 15.5. 1966; Þorbjörg, f. 3.12. 1903, d. 25.2. 1994; Inga Jóna, f. 29.11. 1905, d. 22.6. 1999; G. Ólafía, f. 2.8. 1909, d. 12.1 .2009; Bjarni, f. 8.9. 1911, d. 6.12. 1999; Hrefna, f. 18.10. 1914, d. 2.6. 2002. Lilja og d) Magnús Pétur. II) Erla, f. 25.6. 1959, sambýlismaður Ísleifur Leifsson, dætur hennar og Gísla Petersen eru: a) Sylvía Rut, gift Björgvini G. Haraldssyni, börn þeirra eru: Pétur, Kamilla Rut og Erla Ýr, b) Arna Kristín, sambýlis- maður Páll Hreinn Pálsson, dætur Erlu og Einars Pálmasonar eru: c) Alexandra og d) Birgitta Maren. III) Guðrún Sylvía, f. 7.11. 1967, börn hennar eru: a) Sigríður Diljá Gunnarsdóttir, b) Pétur Örn Guð- rúnarson og c) Sindri Valur Kjart- ansson. 2) Ólöf Sylvía f. 10.4. 1940, gift Guðmundi Kr. Guðmundssyni, arkitekt, f. 16.5. 1937. Börn þeirra eru: I) Guðmundur Kr. Guðmunds- son, f. 9.1. 1964, giftur Basimu Dur- bas, synir þeirra eru: a) Kjartan Thor og b) Lárus Óli. II) Guðrún Jó- hanna Guðmundsdóttir, f. 15.10. 1966, gift Halldóri Inga Guðmunds- syni, dóttir Hildur Guðrún. III) Dögg Guðmundsdóttir, f. 9.5. 1970, gift Hauki Jens Jacobsen, synir þeirra: a) Kristinn Haukur og b) Óskar Örn, dóttir Hauks er Helena. Útför Guðrúnar fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 25. nóvember, og hefst athöfnin kl. 15. Guðrún giftist 6. júní 1936 Magnúsi Ó. Ólafssyni, stórkaup- manni, f. 29.4. 1908, d. 3.9. 1968. For- eldrar hans voru hjónin Sylvía N. Guð- mundsdóttir, fædd á Háeyri á Eyrarbakka 13.8. 1883, d. 22.10. 1957, og Ólafur Ó. Lárusson, héraðs- læknir, fæddur á Sjónarhóli á Vatns- leysuströnd 1.9. 1884, d. 6.6. 1952. Börn Guðrúnar og Magnúsar eru: 1) Sigríður Hrefna, f. 20.12. 1936, gift Pétri Björnssyni, for- stjóra, f. 29.5. 1930, d. 14.11. 2007. Börn þeirra eru I) Ásta, f. 17.10. 1957, börn hennar og Lýðs Frið- jónssonar eru: a) Sigrún Hrefna, sambýlismaður Þorgeir Frímann Óðinsson, barn þeirra drengur óskírður, b) Kristín, sambýlismaður Andri Freyr Viðarsson, c) Anna Guðrún Ó. Karlsdóttir, tengda- móðir mín, er látin 102 ára gömul. Ég ætla að minnast hennar í nokkr- um orðum án þess að mæra hana mjög, hennar vegna og mín, því við vorum sammála um að margar minningargreinar af því tagi væru frekar til háðungar liðnu fólki sem gæti ekki svarað fyrir sig. Guðrún fæddist og ólst upp hjá efnalitlu en duglegu fólki, systkinin voru átta sem fæddust á 14 árum og fóru fljótt að vinna fyrir sér. Guðrún ólst upp á Seltjarnarnesi og í Vest- urbæ Reykjavíkur og síðast í Hafn- arfirði, var þá móðirin orðin ekkja. Um tvítugt flutti Guðrún til Vest- mannaeyja og vann lengi hjá frú Gunnlaugsson, sem alltaf var nefnd svo, en sú kona var dönsk læknisfrú og rak vefnaðarvörubúð í Eyjum. Þar kynntist Guðrún mannsefni sínu, Magnúsi Ó. Ólafssyni. Þar stofnuðu þau sitt fyrsta heimili og eignuðust tvær dætur. Árið 1947 fluttu þau til Reykjavíkur og bjuggu á Víðimel 48 og síðar á Kvisthaga 9. Magnús var kaupsýslumaður og flutti inn fiskveiðiskip, vélar o.fl. tengt útgerð. Guðrún tók þátt í rekstri fyrirtækisins og þegar Magnús lést, hún þá sextug, tók hún við fyrirtækinu, hélt því gangandi og efldi það ásamt góðum og dygg- um samstarfsmanni. Þegar hún varð áttræð hætti hún þeim rekstri og flutti í Kirkjulund í Garðabæ. Þegar ég kom inn í þessa fjöl- skyldu um 1960 og kynntist Guð- rúnu og hennar kostum, þá var það alveg á hreinu í mínum huga að hún var fyrirliðinn á þeim bæ. Guðrún, sem alltaf gekk undir nafninu amma Gunna í fjölskyld- unni, var mikil atorkukona, sjálf- stæð og gafst aldrei upp, á hverju sem gekk. Hún var mikil fyrirmynd barna okkar og sinnti þeim alla tíð vel og gætti þeirra oft þegar við brugðum okkur af bæ. Í mörg ár ferðaðist hún ásamt dætrum sínum og oft dótturdætrum til útlanda, bæði í austur og vestur. Amma Gunna var mikil matar- gerðarkona og hélt oft veislur, allt fram yfir nírætt, og eldaði þá gjarn- an „danskan veislumat“ en hún hafði ung stúlka unnið í húsi efna- fólks í Kaupmannahöfn. Hún ók sín- um eigin bíl fram að níræðu, gerði það með „bravúr“ og var stundum tekin fyrir of hraðan akstur. Eitt sinn svaraði hún löggunni: „Þessi karl þarna með hattinn sem ég fór fram úr komst ekki úr sporunum, hélt bókstaflega umferðinni niðri, sem er stórhættulegt. Ef þú ætlar að sekta mig vil ég fá afslátt, veistu hvað ég er orðin gömul góði?“ Þegar Guðrún var 92 ára fluttist hún á Hrafnistu í Hafnarfirði og bjó þar seinustu tíu árin við góða að- hlynningu, fékk gott herbergi og starfsfólkið hugsaði vel um hana. Þar héldu dætur hennar upp á 100 ára afmælið 20. ágúst 2007. Þar var vel mætt, stór fjölskylda og margir vinir og amma Gunna var hress og kát. Á fyrstu árum sínum á Hrafn- istu þótti henni fólkið heldur gam- alt, var hún þó með þeim elstu þar, og ekki vildi hún deyja strax, var ekki tilbúin að fara í himnaríki, grunaði að kannski væri þar heldur lítið um að vera. Sómakonan Guðrún varð 102 ára og sló þar með systrametið en fjórar þeirra komust vel á tíræðisaldur. Blessuð sé minning hennar. Guðmundur Kr. Guðmundsson. Maður kallar ekki allt ömmu sína. Við barnabörnin viljum minnast ömmu Gunnu okkar og skrifum þessi minningarorð saman þar sem hún lagði alltaf áherslu á að við vær- um vinir og héldum góðu sambandi. Amma Gunna var ankerið í fjöl- skyldunni, sú sem við stóluðum á og treystum, okkar ættarhöfðingi og hélt fjölskyldunni saman. Við fund- um svo vel hvað henni þótti vænt um okkur og hvað hún bar alltaf hag okkar fyrir brjósti enda mjög virkur þátttakandi í lífi okkar allra. Hún var orðin 102 ára þegar kallið kom og erum við þakklát fyrir að hafa haft hana svona lengi hjá okkur. Við vitum að það er gangur lífsins að ástvinir kveðja þegar þeir eru orðn- ir þetta gamlir en fyrir okkur er hún eilíf. Hún kenndi okkur góða siði en gat verið ströng. Öll leituðum við til hennar í lífsins ólgusjó enda vissum við að hún mundi stappa í okkur stálinu og við fórum alltaf sterkari út frá henni. Ömmu Gunnu þótti miður að hafa ekki fengið tækifæri til að mennta sig og talaði hún oft um það við okk- ur, þrátt fyrir það stýrði hún fyr- irtæki þeirra hjóna með dugnaði eft- ir fráfall afa okkar Magnúsar. Amma Gunna trúði á mátt bæn- arinnar og lagði mikið upp úr því að við kynnum bænirnar svo við gæt- um farið með þær fyrir háttinn og þegar okkur liði illa. Þetta var fyrsta bænin sem hún kenndi okkur öllum þegar við vorum lítil: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Amma Gunna var mjög „elegant“ og glæsileg kona. Hún vildi að við hugsuðum vel um okkur og tók eftir því fram á síðasta dag hvernig við litum út, t.d. hvort við hefðum fitnað eða grennst. Hún hugsaði mjög vel um heilsuna, borðaði hollt, hreyfði sig á hverjum degi og var með sínar eigin tennur þó svo að hún væri orð- in þetta fullorðin. Hún fór vikulega í lagningu fram til síðasta dags, klæddist fötum úr fínum efnum og gekk alltaf með hatt. Öll munum við eftir því í gamla daga þegar við gist- um hjá ömmu Gunnu hvernig hún undirbjó hárið fyrir svefninn svo það aflagaðist ekki yfir nóttina. Það er leitun að eins duglegri og röskri konu og ömmu Gunnu. Í einu af ferðalögum þeirra hjóna varð afa Magnúsi eitt sinn að orði: „Ég ætla að láta þig vita frú Guðrún að ég ætla ekki að fara að hlaupa á eftir þér um alla London.“ Þá var amma Gunna rokin mörgum skrefum á undan honum í stórborginni. Við barnabörnin erum mjög þakklát fyrir að hafa átt svona frá- bæra ömmu og góða fyrirmynd sem ræktaði okkur svo vel og okkur þótti svo undur vænt um. Við biðjum góð- an Guð að geyma hana og hlökkum til að hitta hana á ný þegar kemur að því að hún tekur á móti okkur. Ásta, Erla, Guðmundur (Gummi), Guðrún (Gunna), Guðrún Sylvía og Dögg. Guðrún Ólafía Karlsdóttir, móð- ursystir mín, er látin, 102 ára gömul. Þá eru öll systkinin átta horfin yfir móðuna miklu og næsta kynslóð tekin við. Síðustu árin bjó Gunna á Hrafn- istu í Hafnarfirði þar sem henni leið vel og talaði jafnan um að þar væri vel um hana hugsað og fannst mikið gert fyrir íbúana þar. Þetta ber vott um hið jákvæða hugarfar Gunnu frænku. Hún var ekki að kvarta eða sýta sitt hlutskipti. Upp á síðkastið sagði hún reyndar að það væri nú allt í lagi að fara að kveðja, en jafnframt var hún bara nokkuð stolt yfir að vera búin að ná þessum háa aldri. Í hundrað ára afmælinu hennar á Hrafnistu var haldin mikil veisla þar sem Gunna var eins og drottning umkringd afkomendum í fjóra ætt- liði ásamt öðrum ættingjum. Gunna var mikil uppáhalds- Guðrún Ó. Karlsdóttir Minningar á mbl.is Brynja Ingibjörg Brynleifsdóttir Mallios Höfundar: Tobbi, Magga og börn Heiða Hólmfríður Magnúsdóttir, Sólrún Björgvinsdóttir, Sólrún Benediktsdóttir og Kristín Engiljónsdóttir Einar Borgfjörð Ásgeirsson Höfundur: Ágúst Ragnar Gestsson Erika Anna Einarsson Höfundar: Björn Guðjónsson og Ólafía Friðbjörnsdóttir Guðmundur Tryggvason Höfundar: Björk, Reynir og Elfa Þöll Rögnvaldur Óðinsson Höfundur: Drífa Jónsdóttir ✝ Móðir okkar, SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR frá Skógargerði, Árskógum 6, lést þriðjudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. nóvember kl. 15.00. Smári Hermannsson, Ásdís Elfa Jónsdóttir, Dagný Hermannsdóttir, Hermann Hermannsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Gísli Hermannsson, Margrét Kristjánsdóttir, Ragnheiður Hermannsdóttir, Hugo Þórisson, Stefán Hermannsson, Arnfríður Einarsdóttir, Ívar Ásgeirsson, Þórunn Árnadóttir og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, GUÐLEIF HELGADÓTTIR, áður til heimilis Byggðarholti 29, Mosfellsbæ, lést á Hrafnistu Víðinesi miðvikudaginn 18. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Lágafellskirkju fimmtudaginn 26. nóvember kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hallgrímur Greipsson, Eli Paulsen, Kristján Greipsson, Borghildur Ragnarsdóttir, Guðbjörg Greipsdóttir, Pálína Lórenz. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN ÞORKELL JÓNSSON endurskoðandi, Hólabraut 2, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 23. nóvember. Útför verður auglýst síðar. Þorbjörg Jónsdóttir, Jón Þórarinsson, Birna María Antonsdóttir, Helga Halldóra Þórarinsdóttir, Dagur Jónasson, Bryndís Þórarinsdóttir, Halldór Geir Þorgeirsson, Þórarinn Eiður Þórarinsson, Alexandra Maria Klonowski, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ELÍN GUÐJÓNSDÓTTIR, áður Tjarnarbraut 25, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu Reykjavík mánudaginn 23. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sveinn Magnússon, Kristín Bragadóttir, Margrét Sesselja Magnúsdóttir, Ólafur Emilsson, Ingibjörg Magnúsdóttir, Einar Ólafsson, Elín Magnúsdóttir, Garðar Briem, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÓLAFÍA SIGRÍÐUR JENSDÓTTIR, Hamraborg 18, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 30. nóvember kl. 15.00. Ólöf Línberg Gústafsdóttir, Kristján Ellert Benediktsson, Jens Línberg Gústafsson, Ingvaldur Línberg Gústafsson, Arna Kristmannsdóttir, Guðbjörg Línberg Gústafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.