Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
Brynja Ingibjörg Brynleifsdóttir Mallios
✝ Brynja Ingi-björg Bryn-
leifsdóttir Mallios
fæddist á Ak-
ureyri 3. maí
1953, en ólst upp
og bjó í Keflavík
frá 1954. Hún lést
á sjúkrahúsi í La-
keland í Flórída 2.
nóvember síðastliðinn.
Foreldrar hennar voru Aðalheiður
Axelsdóttir, f. 1931, d. 1992, og Bryn-
leifur Jóhannesson, f. 1930, d. 2007.
Hún átti fjóra bræður: 1) Jón Bryn-
leifsson, f. 1951, í sambúð með Ing-
unni Sigurðardóttur. Jón átti tvo
drengi úr fyrra hjónabandi, Brynleif, f.
1969, og Ágúst, f. 1973. 2) Jóhannes
Brynleifsson, f. 1956, kvæntur Sigríði
Garðarsdóttur og áttu þau þrjá
drengi, Aron, f. 1986, d. 2004, Pétur,
f. 1990, og Núma, f. 1995. Jóhannes
átti tvo drengi úr fyrra hjónabandi,
Brynleif, f. 1978, d. 2000, og Krist-
ófer, f. 1979. 3) Karl Brynleifsson, f.
1958, kvæntur Jónínu Skaftadóttur
og eiga þau tvær dætur, Ásthildi, f.
1995, og Karen, f. 1998. 4) Tobías
Brynleifsson, f. 1960, kvæntur Mar-
gréti Jónsdóttur og eiga þau tvö
börn, Aðalheiði, f. 1986, og Róbert, f.
1991.
Brynja var þrígift í Bandaríkjunum.
Hún hefur búið í Bandaríkjunum
meirihluta fullorðinsára. Hún giftist
Philip Mallios 3. maí 1992 og hafa þau
búið síðustu 17 ár í Flórída.
Brynja átti einn son, Jósep Lárus
Brynleifsson, f. 1971. Foreldrar hennar
ólu Jósep upp hér á Íslandi. Jósep hef-
ur búið í Bandaríkjunum síðustu árin,
frá 1997. Hann er tvíkvæntur og á þrjú
börn, Ágústu, f. 1997. Síðan á hann
tvo drengi, Nolan, f. 1999, og Hunter,
f. 2002, sem búa í Bandaríkjunum.
Brynja hefur unnið við þjónustu- og
verslunarstörf bæði hérlendis og er-
lendis. Þjónustulundin var mjög mikil
og var hún vel liðin þar sem hún vann.
Enda hörkudugleg og gefandi kona.
Útför Brynju Ingibjargar fór fram í
kyrrþey á Íslandi.
Meira: mbl.is/minningar
Guðmundur Tryggvason
✝ GuðmundurTryggvason
var fæddur 29.
apríl 1918 í Finns-
tungu, Blöndudal
í Austur-
Húnavatnssýslu.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Sauðárkróks 9.11.
2009.
Hann var sonur Tryggva Jónassonar,
f. 1892, d. 1952 og Guðrúnar Jóhönnu
Jónsdóttur, f. 1880, d. 1967. Guð-
mundur kvæntist Guðrúnu Sigríði Sig-
urðardóttur, f. 18.4. 1924, d. 15.12.
1975 þann 31.12. 1946. Guðmundur og
Guðrún áttu saman fjögur börn. Þau
eru: Grétar Finndal, f. 4.7. 1948, Heim-
ir Finndal, f. 23.8. 1949, Áslaug Finn-
dal, f. 5.1. 1951 og Svanhildur Finndal,
f. 19.7. 1953. Guðrún átti áður Garðar
Röðul Kristjánsson, f. 15.9. 1943, d.
15.1. 1998. Grétar er giftur Ingunni
Gísladóttur, f. 15.5. 1950 og eiga þau
Björk, f. 23.4. 1969, Reyni Finndal, f.
29.12. 1972, Elfu Þöll, f. 1.2. 1975 og
Ágústu Ösp, f. 27.10. 1987, d. 17.1.
1988. Björk er í sambúð með Borgari
Valgeirssyni, f. 4.2. 1968 og eiga þau
Valgeir Eini, f. 22.1. 2005. Reynir er í
sambúð með Önnu Huldu Sigurðar-
dóttur, f. 13.6. 1976 og eiga þau Hildi
Ösp, f. 18.9. 1994 og Grétar Víði, f.
7.6. 2001. Anna Hulda átti fyrir Sölmu
Björk Haraldsdóttur, f. 8.2. 1999. Elfa
er gift Gunnari Tómassyni, f. 29.12.
1974 og eiga þau Tómas, f. 12.7. 2006
og Egil, f. 7.11. 2008. Heimir er í sam-
búð með Fanneyju Maríu Maríasdóttur,
f. 9.6. 1955 og eiga þau saman Yngva
Finndal, f. 29.4. 1978, Guðrúnu Hörpu,
f. 1.6. 1982 og Atla Finndal, f. 21.2.
1984. Fanney átti fyrir Elísabetu Agn-
arsdóttur, f. 6.9. 1972. Guðrún er í
sambúð með Snorra Harðarsyni, f.
26.4. 1971 og átti Guðrún áður Maríu
Rós Erlendsdóttur, f. 19.6. 2000. Atli
er í sambúð með Sólveigu Þórstínu
Runólfsdóttur og eiga þau Veigar Finn-
dal, f. 8.8. 2006 og Marías Finndal, f.
15.7. 2008. Elísabet er í sambúð með
Grétari Örvarssyni, f. 11.7. 1959 og á
Elísabet úr fyrri sambúð Viktor Haga-
lín Magnason, f. 25.6. 1996. Áslaug er
gift Halldóri Bjarna Maríassyni, f. 9.10.
1952 og eiga þau þrjá syni, Guðmund
Rúnar ,f. 21.9. 1971, Garðar Kristján, f.
30.12. 1975 og Gunnar Tryggva, f.
14.3. 1979. Guðmundur er giftur Ragn-
heiði Sólveigu Ólafsdóttur, f. 23.4.
1974 og eiga þau Axel Gauta, f. 16.6.
1992 og Natan Geir, f. 15.12. 1998.
Garðar er í sambúð með Önnu Ingi-
gerði Arnarsdóttur, f. 10.11. 1969 og
eiga þau Arnar Darra, f. 17.9. 2008.
Gunnar er í sambúð með Þórdísi
Hauksdóttur, f. 15.7. 1978 og eiga þau
Halldór Smára, f. 12.12. 2001 og El-
ísabetu Kristínu, f. 29.1. 2008. Guð-
mundur bjó lengst af í Finnstungu og
stundaði þar búskap og smíðar. Hann
bjó í Húnaveri frá 1976-1983 þar sem
hann var húsvörður samhliða búskap.
Á þessum árum fór hann að huga að
skógrækt við Sölvatungu, sem er part-
ur úr landi Finnstungu. Þar byggði
hann sér hús og bjó þar frá árinu
1984. Á efri árum átti skógrækt, út-
skurður og rennismíði hug hans allan.
Guðmundur var virkur í félagslífi sveit-
arinnar. Hann starfaði fyrir Bún-
aðarfélag Bólstaðarhlíðarhrepps og
Veiðifélag Blöndu og Svartár auk þess
sem hann var frá unga aldri í Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps.
Útför Guðmundar Tryggvasonar fór
fram frá Blönduóskirkju 21. nóvember
2009.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
Við amma sitjum
úti á svölum í Munkn-
um. Amma búin að
hita te handa okkur og hræra hun-
angi út í og við maulum ristað brauð
með smjöri. Að sjálfsögðu er hun-
angi bætt ofan á brauðið líka. Einn
af mörgum fallegum morgnum sem
við áttum saman á svölunum hjá
henni og afa. Útvarpið í botni, jafn-
vel eitt í hverju herbergi, því ekki
mátti amma Hlín missa af fallegri
tónlist sem var spiluð í útvarpinu og
því síður fréttum úr pólitíkinni. Svo
var spjallað.
Þegar amma fór svo að sinna hús-
verkum eða spjalla við gesti sem
sátu löngum stundum í eldhúsinu
hjá henni og afa Rögg, laumuðumst
við Gunna Hlín frænka gjarnan nið-
ur í kjallara þar sem var að finna
kynstrin öll af efnisströngum, töl-
um, gömlum fötum, handsnúnum
reiknivélum, bókum, Vikunni – svo
ekki sé minnst á snyrtiborðið henn-
ar sem var fullt af skarti og snyrti-
dóti. Það voru ótaldar umferðir sem
voru teknar í gegnum dótið hennar
án þess að amma hreyfði minnstu
mótmælum við umganginn um
djásnin hennar.
Svo var maður kallaður upp í eld-
Hlín Stefánsdóttir
✝ Hlín Stefánsdóttirfæddist í Haga-
nesi í Mývatnssveit
21.10. 1915. Hún lést
á Hjúkrunarheimilinu
Hlíð 5. nóvember
2009.
Útför Hlínar fór
fram frá Akur-
eyrarkirkju 16. nóv-
ember 2009.
Meira: mbl.is/minningar
hús í miðjum leik til
að máta kjóla, kápur,
dragtir eða skíða-
dress sem amma
saumaði á okkur.
Ekki mátti eyða pen-
ingum í nokkurn
óþarfa enda var
saumaskapur á
keyptum fötum gjarn-
an gagnrýniverður
fyrir óvönduð snið eða
slælegan frágang. Í
þá daga gat manni
sem barni reyndar
gramist að þurfa að koma í mátun
og stífnaði jafnvel upp við tilhugs-
unina um að títuprjónn gæti slæðst
í upphandlegginn á manni – en
montnari en flestir varð maður þeg-
ar dressunum frá ömmu var loksins
skartað. Hin síðari ár er maður orð-
laus yfir því hversu miklu hún kom í
verk. Og ekki síður hversu mikill
listamaður á sínu sviði hún var.
Hver einasti millimetri skyldi
stemma.
Amma Hlín var best klædda kona
á Akureyri fyrr og síðar. Ævinlega
var hún í dragt sem hún hafði saum-
að sjálf, óaðfinnanlega sniðinni að
fínlegum kroppnum, með barða-
stóran hatt, uppháa hanska í stíl,
veski og að sjálfsögðu risastór, kol-
svört gleraugu sem huldu hálft and-
litið. Sumir hattarnir voru með neti
niður á andlitið. Eldrauður varalit-
ur og kolsvartar hárfínar augabrýr
fullkomnuðu svo útlitið. Dömulegt
og hálffeimið bros þegar svo bar
undir – en undir niðri bjó gríðar-
lega sterk réttlætiskennd og mikil
pólitík sem amma Hlín lá ekki á ef á
þurfti að halda. Frábær blanda af
dömu og baráttujaxli. Fyrirmynd.
Í Hagnesi í Mývatnssveit var af-
drep ömmu og afa – í Bústaðnum
þeirra þar sem við barnabörnin
dvöldumst nánast allar helgar.
Yndislegt ævintýraland fyrir okkur
börnin. Ævintýrin af Hlyni kóngs-
syni, Ásu, Signýju og Helgu, Loð-
inbarða og fleiri tröllum og tröll-
skessum urðu ljóslifandi fyrir
augum okkar þegar amma sagði
frá. „Þú ættir að skammast þín, frú
kanína.“
Elsku amma Hlín. Ég er þakklát
og stolt af því að hafa átt þig að sem
ömmu og félaga. Þú átt ævarandi
þakkir skildar fyrir ómetanlega ást
og óeigingjarna aðstoð sem þú
veittir mér og mínum. Ástarþakkir
fyrir að vera amma mín,
Helga Hlín.
Látin er á Akureyri Hlín Stef-
ánsdóttir frá Haganesi í Mývatns-
sveit. Þegar mér barst þessi frétt
hvarflaði hugur minn aftur til
menntaskólaáranna upp úr 1960.
Ég var einn af þeim stóra hópi sem
naut velvildar og gestrisni Hlínar
og eiginmanns hennar Rögnvalds
Rögnvaldssonar kaupmanns og síð-
ar húsvarðar við Ráðhúsið á Akur-
eyri. Rögnvaldur rak um skeið
margrómaða sjoppu undir kirkju-
tröppunum og þangað safnaðist alls
konar fólk til að tefla og spila,
spjalla og ráða ráðum sínum, segja
sögur eða yrkja ljóð.
Þau hjónin höfðu þetta aðdrátt-
arafl sem orkar sérdeilis vel á þá
sem á einhvern hátt standa höllum
fæti eða eiga erfitt með að fóta sig á
lífsgöngunni. Þau voru skilningsrík
með hjartað á réttum stað.
Seinna leigði ég um skeið í húsi
þeirra við Munkaþverárstræti 22
ásamt nokkrum öðrum mennta-
skólanemum. Þar var gott samfélag
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÁRNA GRÉTARS FINNSSONAR
hæstaréttarlögmanns,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki
á Landspítala Fossvogi. Starfsfólk Sólvangs og
St. Jósefsspítala fær einnig sérstakar þakkir fyrir ómetanlega umönnun
og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Oliversdóttir,
Lovísa Árnadóttir, Viðar Pétursson,
Finnur Árnason, Anna María Urbancic,
Ingibjörg Árnadóttir, Jónas Þór Guðmundsson,
Sigríður Erla, Pétur, Davíð, Finnur Árni, Árni Grétar,
Ebba Katrín, Oliver Páll, Viktor Pétur,
Guðmundur Már, Lovísa Margrét og Stefán Árni.
✝
Minningarathöfn um kæra systur okkar og frænku
mína,
GUÐLAUGU SNORRADÓTTUR
kjólameistara
frá Syðri-Bægisá,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík,
fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn
27. nóvember kl. 11.00.
Útförin fer fram frá Bægisárkirkju mánudaginn 30. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd ástvina,
Hulda Snorradóttir,
Halldóra Snorradóttir,
Heiðrún Arnsteinsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa,
langafa og bróður,
GUÐBJÖRNS INGASONAR,
Aðalstræti 33,
Ísafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkra-
hússins á Ísafirði.
Elínborg Sigurðardóttir,
Sveinn Ingi Guðbjörnsson, Anna J. Hinriksdóttir,
Veigar Þór Guðbjörnsson, Kristjana B. M. Olsen,
barnabörn, langafastrákar og systkini.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUNNAR HREIÐAR ÁRNASON
flugvirki,
Mánatúni 2,
Reykjavík,
er látinn.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 30. nóvember kl. 15.00
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð Frímúrarareglunnar á
Íslandi, s. 510 7800.
Margrét Steingrímsdóttir,
Árni Gunnarsson, Sjöfn Óskarsdóttir,
Vilborg Gunnarsdóttir, Gunnar Aðalsteinsson,
Guðrún Erla Gunnarsdóttir, Þorgrímur Páll Þorgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir, frændi og mágur,
GUÐMUNDUR SÆMUNDSSON,
Gúmbi,
Barmahlíð 39,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn
27. nóvember kl. 13.00.
Málfríður Anna Guðmundsdóttir,
Sæmundur Kjartansson,
Ingunn, Sigurbjörg, Guðrún
og fjölskyldur.