Morgunblaðið - 25.11.2009, Page 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
Jólasýningin Leitin að jólunum
er komin á fjalirnar í Þjóðleikhús-
inu fimmta árið í röð. Hundraðasta
sýningin verður haldin sunnudag-
inn nk. Sýningin fer ekki aðeins
fram á sviði heldur einnig göngum
og skúmaskotum Þjóðleikhússins,
börnum til gamans, enda besta
barnasýning ársins 2006 á ferð.
Jólanna leitað í
hundraðasta skiptið
Fólk
„FM957 eða X-ið, meiraðsegja Flash. Nei takk, ég er orðinn
leiður á þessum stöðvum. Ég vil fá FM HipHop til
landsins þar sem menn frá Jay-Z og Eminem til
Rottweilerhundanna geta spittað í mic-inn og beint
í útvörpin hjá landsmönnum.“
Þetta stendur skrifað á facebooksíðunni „Vill fá
Hip Hop útvarpsstöð í landið“ en það er hinn 17 ára
Davíð Hilmar Haukdal-Blessing sem kom henni á
koppinn seinasta fimmtudag. Einhvern hljóm-
grunn hefur þessi krafa fengið því aðdáendur
síðunnar voru orðnir 5.783 þegar þetta var
skrifað á hádegi í gær.
„Það er náttúrlega þannig að X-ið er fyr-
ir rokkáhugamenn og FM957 og Flash
eru með teknó. En það eru mjög margir
hip hop-aðdáendur á Íslandi, þ.á m. ég,
og mér finnst þetta vanta,“ segir Davíð um draum sinn.
– Finnst þér semsagt þessari tónlist ekki gert nógu hátt undir höfði
á íslenskum stöðvum?
„Nei, það er bara popp-hip hop, alltaf vinsælustu lögin og þeim
er bara nauðgað. Það er spilað eitt lag með Lil’Wayne og eitt lag
með Eminem sem eru vinsæl og þau eru bara spiluð á þriggja
til fjögurra tíma fresti. Hugmyndin á minni síðu var að hafa
þetta allt saman, hafa old school-menn eins og Tupac og Not-
orious og t.d. líka Jay-Z og Eminem,“ segir Davíð. Þá myndi
hann vilja sjá „underground“-hip hop íslenskt. Dav-
íð telur að með smákynningu væri hægt að
finna styrki fyrir slíka stöð. Þá gætu fyrirtæki
í útvarpsrekstri mögulega stofnað hana. Og
nú er að sjá hvað setur. helgisnaer@mbl.is
Hip hop-útvarpsstöð óskast
Stuttmyndin Mamma veit hvað
hún syngur eftir Barða Guðmunds-
son vann til verðlauna í Madrid og
Hamborg fyrir stuttu, á kvik-
myndahátíð helgaðri samkyn-
hneigðum. Myndin var valin besta
stuttmyndin á Hamborg Internat-
ional Lesbian and Gay Film Festival
og hlaut áhorfendaverðlaun á
Madrid Gay and Lesbian Film Festi-
val. Helga Braga Jónsdóttir leikur
Nönnu í myndinni og Víðir Guð-
mundsson son hennar. Nanna reyn-
ir hvað hún getur að eyðileggja ást-
arsambönd sonar síns og koma í
veg fyrir að hann flytji að heiman.
Myndin var frumsýnd á RIFF.
Stuttmynd Barða
hlaut tvenn verðlaun
Myndlistarmaðurinn Snorri Ás-
mundarson mun í dag pakka niður
og yfirgefa vinnustofu sína á Ála-
fossvegi 23 í Mosfellsbæ, þar sem
nota á rýmið sem lopalager. Klukk-
an 17 hefst „útför“ vinnustofunnar,
eins og Snorri kallar það, og stend-
ur til kl. 21. Snorri tók við vinnu-
stofunni af myndlistarmanninum
Magnúsi Kjartanssyni.
Snorri heldur „útför“
vinnustofu sinnar
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
HEIÐAR Örn Kristjánsson, laga-
smiður og söngvari, þekktastur
fyrir störf sín í hljómsveitinni
Botnleðju, segir liðsmenn hennar
vera farna að fara yfir gömlu lög-
in og útilokar ekki tónleikahald á
næsta ári. Aðdáendur leðjunnar
hljóta að fagna því, þar sem sveit-
in hefur blundað alllengi. Þeir sem
illa eru að sér í rokkfræðum hljóta
að muna eftir frammistöðu sveit-
arinnar í Evróvisjónkeppninni hér
á landi fyrir rúmum sex árum, þar
sem litlu munaði að hún tæki þátt
fyrir Íslands hönd. Sveitin hefur
legið í dvala í ein fjögur ár.
Þrýst á endurkomu
„Maður er alltaf spurður út í
þetta, hvort eitthvað sé ekki að
fara að gerast,“ svarar Heiðar,
spurður að því hvort aðdáendur
séu ekkert að þrýsta á end-
urkomu. Botnleðjumenn séu góðir
félagar og þyki vænt um hljóm-
sveitina.
„Af hverju að gera ekki neitt?“
spyr Heiðar, í raun sé fáránlegt að
gera ekki neitt. – Það verður ekk-
ert Evróvisjón aftur hjá ykkur?
„Nei,“ svarar Heiðar og hlær.
– En þessi Evróvisjón-þátttaka
sýnir að allt getur gerst …
„Nei í dag getur verið eitthvað
allt annað á morgun,“ segir Heið-
ar spekingslegur. Sveitin hafi átt
slatta af nýjum lögum þegar hún
hætti.
En þýðir það að plata sé
kannski á leiðinni? Heiðar vill ekki
gefa neinar slíkar yfirlýsingar. En
nei gæti orðið að já-i á morgun.
Morgunblaðið/Golli
Botnleðja Heiðar Örn, Ragnar Páll Steinsson og Haraldur Freyr Gíslason.
„Nei í dag getur verið eitt-
hvað allt annað á morgun“
Ekki loku fyrir það skotið að Botnleðja komi saman á ný
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SNORRI Helgason Sprengjuhall-
arbóndi sendi á dögunum frá sér
sína fyrstu sólóskífu, I’m Gonna Put
My Name on Your Door, og hefur
verið vel tekið. Snorri segir skífuna
ekki eiga sér svo ýkja langan að-
draganda, hann hafi þá fyrst ákveðið
að láta verða af henni í lok síðasta
árs þegar ljóst var að Sprengjuhöllin
myndi ekki gera aðra plötu í bili
vegna fjarveru og anna annarra
sveitarmanna. Hann tíndi því saman
lög sem hann átti í fórum sínum, ein-
hver þeirra hefðu eins getað endað á
skífu með þeim víðfræga flokki, og
samdi ný í öðrum anda og með öðr-
um blæ en það sem við höfum áður
heyrt til hans.
„Þetta er nær mér en það sem ég
hef gert með Sprengjuhöllinni, nær
rótunum á mínum tónlistaráhuga,
enda hef ég lengi verið mikill folk- og
blúsáhugamaður,“ segir Snorri og
bætir við að menn geti svo sem heyrt
þessi áhrif í tónlist Sprengjuhall-
arinnar leggi þeir við hlustir.
Ofangreint hljómar kannski eins
og Snorri sé einn með gítarinn á
plötunni, en það er öðru nær; hann
er með aðstoðarmenn á hljómborð,
bassa, slagverk og sólógítar. Að því
sögðu þá eru útsetningar á skífunni
vissulega naumhyggjulegar og nett-
ar, enda vakti það fyrir Snorra að
hafa tónlistina sem tærasta. „Ég
hefði þó ekki látið neitt aftra mér ef
mér hefði dottið í hug að gera eitt-
hvað stærra og umfangsmeira, en
þetta endaði svona, svo hljómaði
þetta best.“
Alltaf til í að spila
Eins og getið er kviknaði hug-
mynd að skífunni fyrir rétt rúmu ári
en upptökur fóru svo fram í sumar
og haust með Kristin Gunnar Blön-
dal við stjórnvölinn. Í sumar var
einnig nokkuð um að Snorri træði
upp með gítarinn og hann er einmitt
á ferð um landið með Hjaltalín um
þessar mundir. Aðspurður hvernig
það leggist í hann að vera einn á
sviði eftir hljómsveitarvafstur síð-
ustu ára segir hann að það sé bæði
gott og slæmt, en þó aðallega gott.
„Það er gott í því ljósi að ef eitthvað
fer úrskeiðis er það ekki neinum öðr-
um að kenna en manni sjálfum, en
vont að því leyti að ef maður gerir
eitthvað vitlaust þá reddar manni
enginn annar.“
Textar á skífunni eru á ensku og
Snorri segir að sér hafi þótt þeir eiga
vel við músíkina og þó að hann semji
þá jafnan nokkru eftir að lögin sjálf
verða til notar hann stöku orð þegar
hann er að semja og í raun mætti
lýsa því svo að hann væri að setja
stikkorð sem síðan enda í textanum.
„Ég syng ekki „lalala“, heldur syng
ég stöku orð sem mér finnst passa
við lagið og þau gefa oft stemn-
inguna fyrir endanlegan texta.“
Snorri er á ferð með Hjaltalín, en
hyggst einnig halda eigin tónleika og
stefnir á útgáfutónleika 10. desem-
ber næstkomandi og þá með hljóm-
sveit en annars hyggst hann spila
sem víðast og þá gjarnan einn með
kassagítarinn; „ég er alltaf til í að
spila og þá hvar sem er“.
Rætur Snorri Helgason er alltaf til í að spila og þá hvar sem er. Fyrsta sólóplata hans er nýkomin út.
Snorri leitar í ræturnar
Snorri Helgason Sprengjuhallarfélagi syngur blús og þjóðlagatónlist
á nýrri sólóskífu Segir það í senn kost og galla að vera einn á ferð
Hipphopp Tupac og Davíð slakir saman.