Morgunblaðið - 25.11.2009, Síða 30

Morgunblaðið - 25.11.2009, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM SUMIR DAGAR... SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í BORGARBÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m HHHH „Taugatrekkjandi og vægast sagt óþægileg” T.V. - Kvikmyndir.is SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW „2012 er Hollywood-rússíbani eins og þeir gerast skemmtileg- astir! Orð frá því ekki lýst hvað stórslysasenurnar eru öflugar.” T.V. - Kvikmyndir.is Stórslysamynd eins og þær gerast bestar. V.J.V - FBL „...þegar líður á verður spennan þrælmögnuð og brellurnar ger- ast ekki flottari“ „2012 er brellumynd fyrir augað og fín afþreying sem slík“ S.V. - MBL STÆRSTA FRUMSÝNING ÁRSINS! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM Frábær rómantísk gamanmynd sem enginn ætti að missa af! Geta tvær manneskur sem hittast á röngum tíma látið sambandið ganga upp? Love Happens kl. 5:30 - 8 - 10:20 LEYFÐ 2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára Zombieland kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára A Serious Man kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára 2012 kl. 5:45 - 9 B.i.10 ára Desember kl. 6 - 8 B.i.10 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 8 - 10:40 B.i.16 ára Jóhannes kl. 6 - 10 LEYFÐ 2012 kl. 6 - 9 B.i.10 ára Jóhannes kl. 6 LEYFÐ Paranormal Activity kl. 8 - 10 B.i.16 ára SÍÐUSTU SÝNINGAR! 30.000 MANNS! SÍÐUSTU SÝNINGAR NÚ HVER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR 35.000 MANNS! Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Há Nýjasta mynd hinna marg-rómuðu og samhentuCoen-bræðra, Alvöru-gefinn maður, var frum- sýnd um helgina. Sögusviðið er af- markað í tíma og rúmi en það spannar samfélag gyðinga í úthverfi Minneapolis líklega árið 1967 þegar lagið „Somebody to Love“ með Jef- ferson Airplane tröllreið öldum ljós- vakans. Lagið er leiðarstef mynd- arinnar og súrrealískur alþýðleiki þess og myrkur undirtónn er einkar viðeigandi. Alvörugefni maðurinn sem um ræðir er Larry Gopnik, háskólagenginn, giftur með tvö börn og staðlað líf. Hann hefur alla tíð leitast við að standa undir vænt- ingum annarra og una sínu sam- félagslega hlutskipti og því kemur það flatt upp á hann þegar hver ein- asta stoð tilveru hans tekur að molna undan honum í hægri og síg- andi leið til glötunar. Raunir Larrys eru áþekkar þrautagöngu Jobs sem gamla testa- mentið segir af. Guðfræðilegar vangaveltur þeirra og samræður við vini og vandamenn um orsakir og eðli þjáninganna eru óneitanlega hálfbroslegar. Eftir því sem að- stæður þeirra verða átakanlegri, fjarstæðukenndari og djöfullegri, þeim mun meinfyndnari verða þær, og Coen-bræður gefa áhorfendum sínum ekki kost á öðru en að hlæja kvikindislega að óförunum undir lokin þegar viðbrögð guðs verða auðsýnileg. Myndin er feilnótufrí og segir af hrakförum og örvæntingu sem flest- ir Vesturlandabúar samtímans geta samsamað sig við. Þó að hún sé svona mikið mörkuð í tíma, rúmi, menningarfræði og trúarbrögðum hefur hún víðari skírskotun til póst- módernísks síðnútíma þar sem firr- ing er allsráðandi. Nútímaborgar- búinn hefur að miklu leyti afsalað sér skynsemi og rökfærslu fyrir til- búna hugmyndafræði, svokallaðar stórsögur og staðleysur, sem hann staldrar sjaldan við til að efast um. Lífið er markað hátíðum eins og jól- um og fermingum án þess að þeir sem fagna slíkum tímamótum séu hið minnsta trúaðir en auk þess blóta þeir hugsanlega einnig ár hvert þorrann að heiðnum sið. Þann- ig verður þessi sérstæða raunasaga Larrys sem hegðar sér í einu og öllu eftir gefinni menningarlegri for- skrift að dæmisögu sem getur vakið flesta áhorfendur til umhugsunar. Sjónræn umgjörð myndarinnar, búningar, leikmynd og kvikmynda- taka, er listilega vel útfærð. Ein- staklega vel hefur verið valið í hlut- verk en leikararnir eru lítt þekktir og standa sig með stakri prýði. Coen-bræður klipptu myndina sjálf- ir (og skýla sér sem fyrr undir dul- nefninu Roderick Jaynes) og vinna með góðkunnum og afar hæfum samstarfsmönnum. Þeir blanda saman gríni og alvöru eins og þeim einum er lagið og hafa líklega gengið með hugmyndina að myndinni í maganum lengi. Nostrað er við hvert smáatriði, sem gerir myndina heildstæða. Áhorfendur geta ekki annað en hrifist af listrænni ástríð- unni og dottið inn í söguheiminn en kolsvört meinfyndnin er vafalaust ekki fyrir alla. Kolsvört meinfyndni Háskólabíó Alvörugefinn maður / A Serious Man bbbbn Leikstjórn og handrit: Joel og Ethan Coen. Aðalhlutverk: Michael Stuhlbarg, Richard Kind, Fred Melamed, Sari Lenn- ick, Aaron Wolff, Jessica McManus, Adam Arkin, Fyvush Finkel. 104 mín. Bandaríkin, 2009. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Svört gamanmynd Raunir Larrys eru áþekkar þrautagöngu Jobs. MYNDIN The Twilight Saga: New Moon sló aðsóknarmet um helgina, en hún var sýnd í 24 löndum. Meiri aðsókn var á New Moon en 2012 en hún var sýnd í 107 löndum. Í öllum sýningarlöndum var að- sóknin mikil. Á frumsýningardeg- inum í Frakklandi voru um 488.000 aðgöngumiðar seldir, sem er ní- unda mesta miðasala á bandaríska kvikmynd í Frakklandi. Í Ástralíu fór myndin í þriðja sæti yfir aðsókn að kvikmynd á frum- sýningardegi. Í Argentínu er mynd- in í öðru sæti yfir mest sóttu kvik- myndir ársins. Mest var aðsóknin þó í Bretlandi; frumsýningardagurinn skilaði 18,7 milljónum sterlingspunda en aðeins ein kvikmynd hefur skilað meiri tekjum af miðasölu þar í landi á frumsýningardegi, James Bond- myndin Quantum Of Solace. New Moon er önnur kvikmyndin í Twilight-vampírusyrpunni. Reuters Aðalleikararnir Robert Pattinson, Kirsten Stewart og Taylor Lautner. Fólk flykk- ist á New Moon Þú þarft að vera vinsæll, viðurkenndur og tilheyra minnihlutanum sem þú dregur dár af til að komast upp með meinhæðna stjaksetningu. Uppþotið og um- talið sem hinir óforskömmuðu valda hjálpa svo til við að halda þeim á stalli og skapa þeim frekari frama. GADO, frægasti austurafríski skopmyndateiknarinn, dregur t.d. alltaf upp mynd af simbabveska þjóð- arleiðtoganum Mugabe sem bavíana eða simpansa og stærir sig af því að komast upp með það þar sem hvítir teiknarar yrðu vafalaust sakaðir um argasta rasisma. Philip Roth, einn virtasti samtímahöfundur Bandaríkjanna, hæðist eins og Coen-bræður markvisst af stallbræðrum sínum, menntuðum velmeg- andi gyðingum í Bandaríkjunum sem fylgja trú meira af menning- arfræðilegum forsendum en eldheitri trúarsannfæringu og verða goð- sagnakenndari eftir því sem þeir verða alræmdari. Innherjastjaksetning Robert Mugabe

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.