Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 32

Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 Nia Vardalos, stelpan úr "My big fat greek wedding" er loksins komin til Grikklands í frábærri rómantískri gamanmynd. HVERNIG STÖÐVARÐU MORÐINGJA SEM ER NÚ ÞEGAR Í FANGELSI? SÝND Í KRINGLUNNI GERRARD BUTLER OG JAMIE FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU HASARMYND Á ÞESSU ÁRI! FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI STÆRSTA BÍÓOPNUN Í USA Í ÁR! BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER ÞETTA SÖGÐU LESENDUR Á KVIKMYNDIR.IS „ÆÐISLEG“ „HÚN VAR ÆÐI“ „ÉG VILDI SJÁ MEIRA“ „HÚN VAR ÓLÝSANLEGA GEGGJUГ „GEÐVEIKT SKEMMTILEG“ Robert Pattinson og Kristen Stewart eru mætt í einni stærstu kvikmyndaseríu allra tíma! / KRINGLUNNI THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl.5:30D -8D -10:10D -10:50D 12 DIGITAL A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.5:503D 7 3D-DIGITAL A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.83D ótextuð 7 3D-DIGITAL MY LIFE IN RUINS kl.5:50-8 L LAW ABIDING CITIZEN kl.10:10 16 / ÁLFABAKKA THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:20 - 8 - 8:10 - 10:10D - 10:50 12 DIGITAL PANDORUM kl. 8 - 10:20 16 THETWILIGHT2NEWMOON kl. 10:10 LÚXUS VIP LAW ABIDING CITIZEN kl. 5:50 - 8 LÚXUS VIP A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 5:503D 7 3D DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:50 16 A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 83D ótextuð 7 3D DIGITAL COUPLES RETREAT kl. 5:50 12 A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 5:50 7 ALGJÖR SVEPPI.. kl. 6 L A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 - 10:10 7 Börn skrifa um bækur Sagan er um stelpuna Aþenu, sem er á tólfta ári og kynnist ömmu sinni í gegnum tölvuna en þær þekktust ekkert fyrr. Aþenu er síðan boðið á ætt- armót hjá fólki sem hún hefur ekki heyrt minnst á áður. Mamma hennar og amma voru ekki vinkonur vegna þess að amman yfirgaf dóttur sína þegar hún var lítil. Systir ömmu Aþenu vill fá hana með sér á þetta ættarmót og þar gerist ýmislegt. Mér fannst ánægjulegt að lesa loksins nútímalega og skemmtilega bók um stelpu á þessum aldri eftir ís- lenskan höfund. Mér finnst gaman að lesa bækur um krakka sem lenda í vandræðum sem erfitt er að leysa, en þannig er það í Aþenu. Aþena er raunveruleg persóna sem gæti alveg verið með mér í bekk (nema hún verður 12 ára í bókinni – en ég ekki fyrr en á næsta ári …) Persónurnar eru margbreytilegar og mismunandi. Höfundurinn kemur lesendum á óvart í sumum atriðum sögunnar og stundum vorkennir maður Aþenu þegar hún er með ömmu sinni, því hún er mjög fljótfær kona. Til dæmis ryðst hún inn á Pál Óskar í búnings- klefanum eftir tónleika og það er pín- legt. Að mínu mati hentar þessi bók les- endum á aldrinum 10 til 14 ára sér- staklega vel, en bókin kemur les- endum skemmtilega á óvart. Aþena (ekki höfuðborgin í Grikklandi ;) HUGRÚN EGLA EINARSDÓTTIR, 11 ÁRA. Höfundur: Margrét Örnólfsdóttir Nútímaleg bók sem kem- ur skemmtilega á óvart Sagan er um lít- inn hugrakkan strák sem heitir Kári. Eina nóttina þurfti Kári mikið að pissa en hann þorði ekki að fara á klósettið af því að hann var hræddur við klósettskrímslið. En Kári varð að fara á klósettið. Þegar hann var búinn að pissa rændi kló- settskrímslið honum. Myndirnar í bókinni eru mjög flott- ar, þær eru yfir alla blaðsíðuna. Text- inn er líka svo flottur, hann er inni í myndunum og er ekki alltaf í beinni línu. Mér finnst fyndið að Kári hugsi að það sé engin kúkalykt af klósett- skrímsli þó að það sé í klósettinu. Mér finnst áhugavert að Kári sé hræddur við klósettið. Ég held að bókin sé fyr- ir 3-6 ára krakka. Þetta er skemmti- leg bók. Kári litli og klósettskrímslið Höfundur: Þórgunnur Oddsdóttir GUÐJÓN VALUR ÓLAFSSON, 8 ÁRA. Stóra skrímslið ætlar með litla skrímslinu að veiða, eins og þau gera alltaf á laug- ardögum. Litla skrímslið vill það ekki því það hafði fengið heimsókn. Stóra skrímslinu leiðist að leika sér eitt og er mjög forvitið um hvað litla skrímslið og loðna skrímslið eru að gera saman. Bókin fjallar um þessi þrjú skrímsli. Myndirnar af þeim eru mjög fínar. Þær eru frekar einfaldar en sýna mjög vel hvernig skrímslunum líður, en þeim líður ekki alltaf jafnvel. Textinn er hluti af teikningunum því orðin eru misstór á blaðsíðunum og þess vegna er auðvelt að leiklesa textann. Skrímsli í heimsókn er mjög skemmtileg saga. Hún er fjörlega skrifuð og endar mjög vel. Hún er sér- staklega heppileg fyrir krakka á aldr- inum tveggja til sex ára, þótt krakkar á mínum aldri geti líka haft gaman af henni. Skrímsli í heimsókn Höfundar: Áslaug Jónsdóttir, Kalle Guettler, Rakel Helmsdal ELÍNBORG UNA EINARSDÓTTIR, 8 ÁRA. Auðvelt að leiklesa skrímslasöguna Þegar ég fletti í gegn- um bókina fannst mér hún strax vera spenn- andi og mig langaði að vita um hvað hún væri. Bókin fjallar um súperömmu sem bjargar öllu, en súperamma er að vinna með lögreglunni. Súperamma og Berti lögga, sem er líka kærasti hennar, eru að passa Óla litla þegar sjóræn- ingjaskip kemur. Skemmtilegast fannst mér þegar amman var að fljúga að sjóræningjaskipinu og kíkja inn en leiðinlegast fannst mér hvað bókin er stutt. Mér fannst sagan vera líkust æv- intýri því svona gerist ekki í al- vörunni. Ég held að krakkar svona 5-7 ára hafi mest gaman af þessari bók og ég mæli alveg hiklaust með henni. Súperamma og sjóræningjarnir Höfundur: Björk Bjarkadóttir HAFRÚN RAKEL HALLDÓRSDÓTTIR, 7 ÁRA. Súperamma sem bjargar öllu Rænt af klósettskrímsli Nokkrir ungir lestrarhestar gengu til liðs við Morgunblaðið og fengu það skemmti- lega hlutverk að lesa og skrifa um nýút- komnar barna- og unglingabækur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.