Morgunblaðið - 25.11.2009, Page 36
BADMINTON er sú íþrótt þar sem iðkendum
fjölgaði mest á milli áranna 2007 og 2008. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá Íþrótta- og ólymp-
íusambandi Íslands voru tæplega 6.000 iðk-
endur í badminton á síðasta ári. Þeim hafði þá
fjölgað um tæplega eitt þúsund, eða um 18,3
prósent, á milli ára.
Búast má við enn meiri fjölgun í badminton-
íþróttinni þegar nýjar tölur verða birtar á
næsta ári. Jóhannes Helgason, formaður TBR,
fjölmennasta íþróttafélags landsins, sagði við
Morgunblaðið að mikill fjöldi fólks hefði bæst í
hópinn eftir bankahrunið fyrir ári.
„Það var stór hópur sem hóf að mæta reglu-
lega til okkar sl. haust og hann nýtti sér þá tíma
sem voru í boði fyrri part dags,“ sagði Jóhann-
es.
Rétt tæplega 108 þúsund iðkendur voru á
skrá hjá sérsamböndum ÍSÍ á árinu 2008. Sem
fyrr er knattspyrnan stærsta greinin en hana
iðka rúmlega 19 þúsund manns innan félaga
sem eiga aðild að Knattspyrnusambandi Ís-
lands. Þar fyrir utan er mikill fjöldi sem spilar
með utandeildaliðum en telst ekki innan íþrótta-
hreyfingarinnar. Golf er næststærsta greinin
með tæplega 15 þúsund iðkendur og síðan koma
hestaíþróttir með rúmlega 10 þúsund. Í næstu
sætum á eftir koma síðan fimleikar, handknatt-
leikur, körfuknattleikur, badminton og frjáls-
íþróttir. Í fimm af þessum átta stærstu greinum
var um fjölgun iðkenda að ræða á milli ára.
Samtals er 41 íþróttagrein innan vébanda
Íþrótta- og ólympíusambands Íslands. | Íþróttir
Badminton vinsælt og margir
byrjuðu eftir bankahrunið
Um 108 þúsund iðkendur í íþróttafélögum landsins
Morgunblaðið/Ómar
Hnit Ragna Ingólfsdóttir, fremsta badmintonkona landsins, er
á heimavelli í íþróttasölum TBR, fjölmennasta íþróttafélagsins.
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 329. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
122,66
202,69
115,71
24,619
21,847
17,732
121,23
1,3809
196,28
183,22
Gengisskráning 24. nóvember 2009
122,95
203,18
116,05
24,691
21,911
17,784
121,57
1,3849
196,86
183,73
235,8831
MiðKaup Sala
123,24
203,67
116,39
24,763
21,975
17,836
121,91
1,3889
197,44
184,24
Heitast 5°C | Kaldast -1°C
Talsverð rigning
austanlands, él norðan
og norðvestan til, en
léttskýjað að mestu
sunnan- og vestanlands. »10
Salka gefur ekki út
margar skáldsögur
fyrir jólin en er þó
með einn léttan
krimma að sögn
útgefanda. »27
BÓKMENNTIR»
Einn léttur
krimmi
KVIKMYNDIR»
Twilight-mynd númer
tvö slær öll met. »30, 35
Sigtryggur Sig-
tryggsson rifjar upp
gatamarkið fræga
sem réð úrslitum á
Íslandsmótinu í fót-
bolta árið 1953. »31
AF LISTUM»
Gatamarkið
rifjað upp
TÓNLIST»
Er Botnleðja kannski að
koma saman aftur? »28
TÓNLIST»
Emilíana Torrini með
tónleika í febrúar. »29
Menning
VEÐUR»
1. Braut gegn stúlku fyrir 14 árum
2. Lögmanni Baldurs … ofboðið
3. Var talinn vera í dái í 23 ár
4. Yfirheyrslur standa yfir
Íslenska krónan veiktist um 0,1%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Þrettán íslensk-
ar kvikmyndir
verða sýndar á sér-
stökum Íslands-
fókus sem fer fram
í tengslum við há-
tíðina Plus Camer-
image sem verður
haldin í Lodz í Póllandi dagana 28.
nóvember til 5. desember.
Þar verða sýndar margar af vin-
sælustu íslensku kvikmyndum síðari
ára og kastljósinu sérstaklega beint
að leikstjóranum Friðriki Þór Frið-
rikssyni, sjö myndir hans verða
sýndar. Einnig verða sýndar myndir
eftir Ragnar Bragason, Baltasar
Kormák og Dag Kára.
KVIKMYNDIR
Friðrik Þór á íslenskum
kvikmyndafókus í Póllandi
Plata Bjarkar
Guðmundsdóttur,
Vespertine frá
árinu 2001, er í 68.
sæti á lista breska
dagblaðsins Times
yfir bestu plötur
áratugarins. Plata
Radiohead, Kid A, frá árinu 2000, er
í fyrsta sæti. Plata Amy Winehouse,
Back to Black, frá árinu 2006 er í
öðru sæti og Radiohead á svo aftur
plötuna í þriðja sæti, In Rainbows. Í
tveimur neðstu sætunum eru vanir
menn, Neil Diamond í því hundr-
aðasta með 12 Songs og Paul Simon í
99. með Surprise.
TÓNLIST
Vespertine ein af bestu
plötum áratugarins
Forsetar þjóð-
þinga evrópskra
smáríkja funda nú
á Kýpur. Fund-
urinn er árlegur
samráðsvett-
vangur þjóðþinga
evrópskra smá-
ríkja sem eru aðilar að Evr-
ópuráðinu með íbúafjölda undir
einni milljón. Ásta R. Jóhann-
esdóttir, forseti Alþingis, sækir
þingið, en hún fór beint til Kýpur frá
Albaníu, þar sem hún var í opinberri
heimsókn. Þingforsetarnir munu
m.a. ræða efnahagskreppuna og
áhrif hennar á smáríki.
STJÓRNMÁL
Forseti Alþingis ræðir
vanda smáríkja á Kýpur
„ÞETTA er nær
mér en það sem
ég hef gert með
Sprengjuhöllinni,
nær rótunum á
mínum tónlistar-
áhuga, enda hef
ég lengi verið
mikill folk- og
blúsáhuga-
maður,“ segir
Snorri Helgason
um fyrstu sólóplötu sína, I’m Gonna
Put My Name on Your Door, sem
var að koma út. Snorri segir skífuna
ekki eiga sér svo ýkja langan að-
draganda, hann hafi þá fyrst ákveð-
ið að láta verða af henni í lok síðasta
árs þegar ljóst var að Sprengjuhöllin
myndi ekki gera aðra plötu í bili.|28
Mikill folk-
og blúsmaður
Snorri
Helgason
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„MEÐ því að fara út að ganga
vakna nýjar hugmyndir og maður
fer að koma hlutum í verk sem hafa
lengi setið á hakanum. Það hefur
mjög góð líkamleg og andleg áhrif
á alla, hvort sem þeir eru atvinnu-
lausir eða ekki,“ segir Páll Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Ferðafélags Íslands. Frá og með
byrjun desember hyggst félagið
bjóða upp á léttar ókeypis göngur á
virkum dögum í nágrenni Reykja-
víkur.
Þegar hrunið varð síðasta vetur
og atvinnuleysi fór vaxandi kviknaði
sú hugmynd að gefa fólkið tækifæri
til að fara út, hreyfa sig og blanda
geði við aðra. Hugmyndin er nú
orðin að veruleika en er þó ekki að-
eins hugsuð fyrir atvinnulausa held-
ur alla þá sem hafa áhuga á léttri
hreyfingu og útiveru í góðum fé-
lagsskap. „Þetta er allt innan seil-
ingar og á að henta öllum, hver
ganga er einn til tveir tímar og við
leggjum til fararstjóra með léttri
upphitun og fræðslu,“ segir Páll.
Vinsældir útivistar og gangna
hafa farið ört vaxandi síðustu ár og
segir Páll þessar hversdagsgöngur
nýja viðbót til að koma til móts við
aukinn áhuga. „Einhvern veginn
gerist það í náttúrunni að allir
verða jafnir, kynslóðir koma saman
og öllum titlum er lagt. Þetta er
mikill félagsskapur.“ Ferðafélagið
Útivist býður einnig upp á fríar
göngur í svipuðum dúr.
Gengið í góðra vina hópi
Ferðafélag Íslands setur af stað nýtt verkefni með ókeypis göngum á virkum
dögum Tækifæri til að hreyfa sig, blanda geði, auka virkni og fá nýjar hugmyndir
Morgunblaðið/Eyþór
Vífilfell Hversdagsgöngur í góðum félagsskap létta lund og styrkja þol.
Í HNOTSKURN
»Göngurnar verða öllumopnar á þriðjudögum kl.
12 og fimmtudögum kl. 14.
»Samhliða verður boðið uppá sérstakar göngur fyrir
eldri borgara, líka ókeypis.
»Gengið verður í nágrenniReykjavíkur, t.d. í Heið-
mörk og á Gróttu, auk stöku
fjallgöngu, s.s. á Esjuna.
TÓNLISTARMAÐURINN Megas
mun líklega halda tónleika í Laug-
ardalshöll á næsta ári þar sem far-
ið verður yfir feril hans. Þá er
einnig stefnt að því að gefa út
Megasarheftin, þrjú hefti með
textum, nótum og teikningum sem
Megas gaf út 1968, 1970 og 1973
og hétu Megas I, Megas II og
Megas III, sem og bókina Textar
sem kom út 1991 og geymdi safn
dægurlagatexta Megasar. Rúnar
Birgisson, umboðsmaður Megasar,
greinir frá þessu í spjalli í Morg-
unblaðinu í dag. | 33
Megas í Laugardals-
höll á næsta ári