Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 12

Skólablaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 12
116 - burðir Þorsteins Gunnarssonar, sem mundi sóma sér jafnvel á sviði Þjóöleik- hússins, hafi fremur lamað en bætt heild- arsvip Herranætur. Þetta verður fyrst Ijóst nú, er fram kemur algerlega nýtt fólk, ómótað af því andrúmslofti sýninga og þeirri einskorðun, sem fylgir óhjá- kvœmilega samstarfi nýliða og afburða- manns. Sú er ein höfuðorsök þess, hversu vel tókst til um sýningu þessa, ásamt góðri leikstjórn og tilþrifum leik- enda, enda eru þeir allir mjög jafnir að gæðum og svo yndislega samhæfðir að leik og leikgleði. Seifur verður frá hendi höfundar ein skemmtilegasta persóna leiksins. Hann er hér sýndur sem ósköp indæll karl, sem leitast við að vinna bug á tilbreyt- ingaleysi ódauðleikans með afskiptasemi og ástarævintýrum meðal mannanna barna. Tómas Zoega dregur fram alla þessa eiginleika í leik sínum á hnyttinn og skemmtilegan hátt. Hann ofleikur hvergi, og svipbrigði hans og viðbrögð eru afbragðsgóð. Með þessu fyrsta hlut- verki sínu í Herranótt hefur Tómas þeg- ar tryggt sér sess meðal beztu gaman- leikara skólans undanfarin ár. Hin trygga en margmædda drottning hans, Hera, er leikin af Þóru Johnson. Leikur hennar var góður, framsögn og látbragð með ágætum, en þó fer ekki hjá því að hún hefði mátt vanda betur meðferð bundins máls. Hetjan Herakles er einn helzti mátt- arstólpi leiksins. Markús Örn Antons- son er karlmannlegur ásýndum og sómir sér vel. Slíkt er sviðsöryggi hans, að fáum gæti komið í hug, að þetta hlut- verk hans sé nær alger frumraun á sviði. Leikur hans nú er nokkuð snauð- ur að innlifun, en einkennist öðru frem- ur af gífuryrðum og ferlegu látbragði. Þetta er þó e. t. v. að einhverju leyti sök leikstjóra, og ég er ekki í vafa um, að Markús býr yfir hæfileikum til að gera betur. Hið sama má segja um Helga Har- aldsson x hlutverki Þesevs. Hann tekur ekki hlutverk sitt nógu alvarlega og gæti leikið afburðavel, ef hann legði sig bet- ur fram. Því verða meiri kröfur gerð- ar til leiks hans en margra annarra leikara. Engu að síður er leikur Helga skemmtilegur, svipbrigði og hreyfingar með ágætum. Leikur Helga ásamt leik Elfu B. Gunn- arsdóttur er hin eina túlkun aðalleikanda á "dauðlegri persónu", þar sem ekki gæt- ir þess framsagnarmáta, sem áður hefur verið vikið að. Elfa Björk Gunnarsdóttir hefur nú leikferil sinn í Herranótt með þessu hlutverki, sem hún gerir einkar góð skil. Framsögn hennar er mjög góð, svip - brigði ágæt, leikur hennar er auðugur að fínni túlkun og gefur góð fyrirheit. Hippolyte, önnur drottning skjald- meyja, er leikin af Asdísi Skúladóttur.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.