Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 17

Skólablaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 17
121 - _S_k_ ó_ _1 a Jt>_l_a_ ð_ _i _ð BKÓLABLAÐIÐ hefur veriS með auðugasta móti í vetur. Marg- ar góðar greinar sýna, að and- leysi nemenda er ekki eins geigvænlegt og yfir-meðal- mennskumenn láta. Þorleifs ríma Haukssonar, ritdeila þeirra Böðvars og Sverris og margt fleira er hreinasta af- bragð. Þó er ein grein, er stingur í stúf við hinar. Upphaf hennar er svo : ( sjá bls. 23 ) " í sumar lagðist Vikan svo lágt að birta viðtal við Tryggva Karlsson. Var þeim ef til vill vorkunn, en hitt er verra til afspurnar, að þar er haldið fram, að Tryggvi væri dæmigerður tápmikill menntaskólanemi. Vonandi hafa þeir, sem þekkja Tryggva vel, ekki tekið mark á þessu. ( Vinir hans tóku ekki mark á viðtalinu heldur.) " Ég hef þekkt Tryggva í 12 ár og hefur ætíð verið mikil vinátta með okk- ur. Sambekkingar vorum við í 8 ár og nágrannar álíka lengi. Ég þekki því manninn út í yztu æsar, og tek því fyllilega mark á umræddu viðtali. Ég vil ennfremur leyfa mér að mótmæla slíkum skrifum, sem eru Skólablaðinu til lítillar sæmdar. í tíma talað Menntaskólinn í Reykjavík er forn og virðuleg stofnun. í skólanum hafa margir af ágætismönnum þjóðarinnar hlotið menntun sína. Við Menntskæling- ar getum þvx verið hreyknir að fá að starfa innan veggja hans. Vandi fylgir þó vegsemd hverri oj* það er alkunna, að í öllum stofun skolans eru fleiri nemendur en lög gera ráð fyrir. Annað er þó stórum geigvænlegra, og á eg þar við þá staðreynd, að skólinn gæti brunnið til kaldra kola á nokkrum mínútum, og eru miklar líkur til þess, að margir slösuðust, eða jafnvel biðu bana, ef ekki yrði brugðist skjótt og festulega við. Til þess að slíkt megi verða, þurfa allir nemendur að vita ná- kvæmlega, hvað gera skuli, ef eldsvoða ber að höndum. Væri það mjög til bóta, ef björgunar- og slökkviæfingar væru gerðar tvisvar á ári. Einnig þyrfti að koma nýtízku björgunar- og slökkvitækj- um fyrir í hverri stofu. Vera má, að þessar ráðstafanir kostuðu talsvert fé og tíma, en ef þær yrðu til þess að bjarga nokkrum manns- lífum í neyð, þá er tilganginum náð. Stundvísi Eitt af frumatriðum almennrar kurt- eisi er stundvísi. Sú neikvæða þróun hef- ur orðið hér í skólanum, að samkomur hefjast ekki fyrr en eftir dúk og disk, þrátt fyrir þrælauglýstan byrjunartíma, og er það mjög miður. Dansiböll hefjast venju- lega 20 mín. of seint. Skólafundir hefjast ekki fyrr en að lokinni smölun á Skalla, Mokka og Ellefu. Svipað má segja um fundi Framtíðarinnar. Menn eru orðnir svo vanir hinu "akademíska kortéri", að þeir hætta að taka eftir því. Þó tók stein- inn úr, er málsvörn Tryggva Karlssonar, um skíðaskálann tilvonandi, sem auglýst var kl. 9.30, hófst kl. 9. Forráðamenn hinna ýmsu félaga I skólanum ættu að taka höndum saman, að afnema þessa óstundvísi, með því að láta samkomurnar hefjast á tilskildum tíma. Hreinsun Ég brá mér í Iðnó á dögunum og sá Frh. á næstu bls.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.