Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 20

Skólablaðið - 01.02.1961, Blaðsíða 20
124 - öfund, en hann langaði alltaf til að keyra dálítið utaní þá, þegar þeir ruku framhjá, En hann var þarna á fjögra ára gömlum vörubíl, sem ekki komst hraðar en á sjötíu og fimm. Hann fór oní skyrtuvasa sinn eftir sígarettu oj* kveikti í henni. Vegurinn var beinn a kafla og sléttur % hafði ver- ið heflaður í rigningu tveim dögum áð- ur, svo að oníburðurinn þjappaðist vel niður. Það hafði verið borið ofaní þennan kafla viku áður, og þá hafði ver- ið viðbjóðslegt að aka hann. Hann hafði hitt vegamennina og hundskammað tipparana fyrir lélegan urmokstur, og þeir höfðu sagt honum að éta skít. Vegamennirnir voru allir góðkunningjar hans og toku þetta sem eitt herjans mikið grín. Svo báðu þeir hann að kaupa fyrir sig fjórar brennivínsflöskur í næstu ferð, en hann neitaði og keyrði burt í fussi, og vegamenn bá.ðu hann aldrei þrífast. Reyndar keypti hann flöskurnar og var með þser í bílnum núna. Hann hægði á bílnum og skipti nið- ur, þegar hann nálgaðist brúna. Hann sa hvítan hest á holtinu hinum megin við ána. Þegar hann kom fyrir beygj- una sá hann eitthvað hvítt lig^ja í kant- inum, og hann stanzaði, fór ut úr og athugaði það. Þetta var hvítur lambhrútur, varla meir en hálfsmánaðargamall og hafði verið ekið yfir hann. Ásbjörn þreifaði a eyrunum, en lambið var ómarkað. Þetta hlaut að hafa verið græni bíllinn. "Djöfuls kvikindið, " sagði hann upphátt. Hann leit upp og sá hestinn standa a haholtinu og horfa á hann. Hann heyrði kindarjarm utan úr mýrinni, og hann reyndi að muna númerið á þessum bíl. Það hafði hvort eð var ekki mikið að segja, því að hann vissi ekki hver átti lambið. Æ, fjandakornið, hugsaði hann. Það hefði alveg eins getað drepið sig ofaní. Hann henti hræinu í skurðinn, fór inní bílinn og hélt áfram. III. til norðurs yfir heiðina. Skálinn var ekki annað en gamall bárujárnklæddur timburhjallur, og það var oft kalt í hon- um á veturna. Við hliðina á honum stóð tveggja hæða íbúðarhús úr steinsteypu. Hinum megin við veginn var benzíngeym- ir og hráolíugeymir, og lítill hvítmálað- ur timburskúr á bakvið þá. í skugganum norðan undir húsinu stóð lítil fjögra manna bifreið, blá á lit og nyleg. Græn amerísk fólksbifreið var að aka út af hlaðinu, þegar áætlunar- bíllinn kom vestan að. Hann stanzaði fyrir framan veitingaskálann og farþeg- arnir tíndust út. Þeir voru fáir, því að þetta var í miðri viku. Síðastur kom bílstjórinn, ungur maður, þrekvaxinn og skolhærður í köflóttri skyrtu. Hann stanzaði þegar hann kom út og teygði sig og horfði suður eftir veginum. Hann sá vörubílinn koma og beið eftir því, að hann æki inn á hlaðíð. Vörubíllinn stanzaði andspænis áætlunarbílnum og Ásbjörn steig út. "Sæll Kristján, " sagði hann. "Sæll sjálfur, " sagði Kristján. "Hvernig gengur? " "Svona eins og venjulega. " Þeir gengu inn í veitingasalinn. Það var svalara inni en úti. Farþegarnir sátu allir við stórt borð innst í salnum. Bílstjórarnir settust við lítið borð ut við glugga og fengu sér kaffi. "Mættirðu nokkrum grænum Chevro- let? " spurði Ásbjörn. "Folksbíl? " " Já. " "Hérna rétt fyrir utan. " Ásbjörn umlaði eitthvað. "Hvað með hann? " spurði Kristján. "Sástu númerið? " "Tók ekki eftir þv'í. " Kristján horfði á hann. "Hvað er með þessa druslu? " "Keyrði yfir lamb hérna suðri í hvosinni. " "Sástu það? " "Ég var á eftir honum. " "Hver átti þennan lambkettling? " "Veit ekki, " sagði Ásbjörn. "ómark- að. " Þeir þögðu og drukku kaffið. Svo sagði Kristján: "Vegamenn voru heldur illir utí þig áðan." "NÚ ? Veitingaskálinn stóð á vegamótunum. Þar skiptist vegurinn og lá önnur álman áfram eftir undirlendinu, en hin sveigði ii Frh. á bls. 126.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.