Skólablaðið - 01.02.1961, Side 16
- 120 -
Goethes og Heines á manninum, segði ég
helzt, aG tulkun Goethes væri háleitari
og ppersonulegri. Goethe lýsir ævi
mannsins, Heine hinum daglegu örlögum
hans. Meðan Goethe er í háspeki, lýsir
Heine viðbrögðum venjulegs manns við
venjulegum hlutum. í hrifningu köllum
við Goethe snilling, en Heine snertir
hjartastrengi okkar.
Heine hefur einkum ort um ástina.
Stíll hans er þróttmikill og hrífandi,
meinfyndinn og ljúfsár. Verk, sem tví-
mælalaust á erindi til Menntlinga og
alls félks á þeirra aldri, er "Buch der
Lieder". Einkum þo "Lyrisches Inter-
mezzo" og "Junge Leiden". Þar er sem
skáldið opni hverjum manni djúp hjarta
hans sjálfs , á undurfagran hátt.
Síðari Ijóðum Heines treystist ég
því miður ekki til að lýsa. Ég veit, að
þar kemur fyrir skörp ádeila og sting-
andi háð - hann virðist hafa hatað allt
prússneskt - en í heild þekki ég þau
ekki enn.
Aö lokum vil ég benda á, aö þessi
lýsing mín á tveimur góðskáldum Þjóð-
verja er víösfjarri gæðum. Það getur
aldrei orðið hið sama að kynnast ein-
hverju skáldi sjálfur og aG kynnast því
af lýsingu annars. En þessi grein hefur
náð tilgangi sínum, verði hún til þess,
að einhverjir geri sér þann heiður og
ánægju að lesa verk þessara skálda.
Örn Ólafsson.
U M JAFNALDRA QKKAR f AMERfKU
frh. af bls. 118.
inn verklegur, og kennslan fer fram á
rannsóknarstofu. Hver nemandi fær sinn
eigin frosk og svín, þó aö ást hvers og
eins á þessum skepnum vilji nú. verða
misjafnlega heit. Ég fyrir mitt leyti
varð sérlega hrifin af mínu svíni,og gret
fögrum tárum, þegar ég var búin að
búta það niður.
Það eina, sem ég kann ekki að meta,
er þessi kennara-nemenda-náins-sam-
bands-kenning, sem á svo upp á pall-
borðið hjá þeim. Þessar elskulegu
kennslukonur, sem allar vildu ganga mér
í móðurstað, voru vissulega yndislegar
á sinn hátt, en ég átti harla eríitt með
að fara að trúa þeim fyrir vandamal -
um mínum, eins og þær komust svo
fagurlega að orði.
Annað hvert laugardagskvöld voru
haldnir dansleikir í skólanum með sam-
kvæmisklæðnaði og pomp og pragt.
Margt gott mætti um þá segja, en mer
leiddist alltaf að dansa við sama herr-
ann allt kvöldið, en það er alger hneisa
að svo mikið sem gjóta augunum til
næsta herra. Ameríkanar viðhafa þann
skemmtilega sið að gefa stúlkum blom
við slík tækifæri. Þessi riddaramennska
vekur að sjálfsögðu feikna lukku meðal
stúlknanna, og sú, sem kemur heim af
ballinu með velktustu og verst útleiknu
rósina, á að hafa skemmt sér bezt.
Auðvitað eru unglingarnir í Banda-
ríkjunum eins misjafnir og þeir eru
hér. Engu að síður bera þeir heildar-
svip, sem ég mun ætíð minnast með
aðdáun. Hið eina í fari þeirra, sem
mér fellur verulega illa er ( að mínu
áliti ) óheilbrigður íþróttaáhugi, fram úr
hófi lélegur kvikmyndasmekkur og full
mikil forvitni þeirra og þátttaka í einka-
málum náungans.
Þetta ætti samt engan veginn að
hindra þá stúlku, sem kann að meta
rauðan brjóstsykur eða þann pilt, sem
er veikur fyrir græneygðum, gáskafull-
um íþróttadísum, frá því að bregða sér
yfrum hafið.
Þuríður jónsdóttir.
SAMKEPPNI
Velunnari Skólablaðsins kom nýlega
að máli við ritnefnd og gaf henni 200 kr.
er sá getspaki maður hlýtur, er þekkir
alla bragarháttu á Þorleifs rímu Hauks -
sonar í síðasta Skólablaði.
DÓmnefnd skipa þeir Böðvar Guðmunds-
son og Lárus Blöndal kennari.
Frestur til að skila ráðningum er
til 31. marz.
Ritnefnd.