Skólablaðið - 01.02.1961, Page 27
- 131 -
(. n
MWÍMl
H~RYGGVI Karlsson hefur löng-
um þótt furðulejjur maður.
Strax í landsprofi öðlaðist hann
frægð fyrir frammistöðu á
_________ málfundum, en er í mennta-
skóla kom, tók hann þegar til við að
láta Ijós sitt skína. Tok hann iðulega
til máls á málfundum og öðrum manna-
mótum, og í marz hlaut hann mikla við-
urkenningu, er SKÓL.ABLAÐIÐ birti um
hann litla klausu, "Spekingur þriðja-
bekkjar. " Að vísu var Tryggvi ekki
nafngreindur þar, en allir skildu, við
hvern var átt. Urðu nu afrek Tryggva
brátt svo mörg, að engri tölu varð á
komið. Á útmánuðum söng hann á sviði
Sjálfstæðishussins, hann var kjörinn
gjaldkeri Framtíðarinnar og enn fremur
hóf hann frækilega baráttu fyrir skíðhýs-
isbygging menntlinga, og hafði Tryggvi
betur. Um haustið gáfu hann og Andrés
Indriðason út dægurlagatextarit. Að lok-
um var svo komið, að Sverri Holm?rs-
syni var nóg borið og hóf hann að rita
níðgrein um Tryggva. Var hann hálfn-
aður með greinina, er andinn kom allt í
einu yfir hann, og hann ákvað að rita
einungis um gení. Hefur hann þegar
skrifað eina grein um skáldið Lindsay
og aðra um sjálfan sig. Tekið skal
fram, að klausa þessi er ekki ætluð til
kynningar á Tryggva. Tryggva þekkja
allir. En þetta getur komið sér vel fyr-
ir síðari tíma, þvx að hætt er við að
þessi afrek Tryggva þyki brátt tilkomu-
lítil I samanburði við hin síðari.
Kjörorð Tryggva er : "Ég kom, söng og
sigraði. " Það er því ekki að ástæðu-
lausu, að Tryggvi fær að láta í Ijós
skoðanir sínar á ýmsum málum.
"Vildir þu ekki fræða mig nokkuð
um þennan svokallaða Menntaskála ?
Hver er tilgangur skálabyggingarinnar ? "
"Tilgangur skálans er fyrst og
fremst að veita menntlingum tækifæri til
þess að njóta útivistar. Það vita allir,
hvílík nauðsyn er að hrista af sér inni-
seturykið. Nú - og Selið er að ýmsu
leyti misheppnað fyrirtæki. Þangað er
ekki farið nema einstöku sinnum og þá
í gífurlega stórum hópum, og skemmti-
atriðin miðast öll við inniveru. Og svo
er færð oft slæm. - En skálinn yrði að
líkindum opinn um hverja helgi, og ferð-
irnar yrðu alls ekki skipulagðar en mið-
uðust við áhuga. í skálanum yrði svefn-
pláss fyrir 100 sálir og svo eldhús með
öllum græjum. Það er satt að segja
lágkúrulegt til afspurnar, að nemendur
í einum fremsta skóla landsins eiga
ekki í neitt svona hús að venda, meðan
háskólar í Bandaríkjunum eiga allir
skála á sínum snærum.
Mér finnst, að menn eigi að nota snjó-
inn og sólskinið, svo að ég breyti kjör-
orði Benna Waage dálítið. Og ég vona,
að latneska spakmælið "mens sana in
corpore sano" eigi eftir að sannast á
Menntaskálanefndinni. "
"Hvað hefur þú að segja um störf
Framtíðarstjórnar? "
"Ja - sko, það hefur verið aðalvið-
fangsefni okkar að drífa upp félagið, en
í fyrra lá starfsemin alveg í láginni.
Það hefur verið deilt á okkur fyrir að
seilast inn á starfssvið annarra félaga,
en ég held, að það sé bara af því, að
við erum að færa út kvíarnar.
Og félagslífið er greinilega fjörugt,
fyrst deilt er á okkur fyrir annað en
starfsleysi. Annars þá gegnir Fram-
tíðin þörfu hlutverki í félagslífinu, því
að það er nauðsynlegt, að tilvonandi
menntamenn og landsfeður hljóti sína
frumraun snemma í mælskulist.
"Hvað hefurðu um starfsemi Lista-
félagsins að segja? "
"Sumar deildir þess keppa eða
starfa á röngum grundvelli. Ýmsir