Morgunblaðið - 13.01.2010, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. J A N Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
9. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«MENNINGTÓNLIST
UNGIR EINLEIKARAR
OG TÓNSKÁLD
«ÍÞRÓTTIRHANDBOLTI
Landsliðið óskar
eftir stuðningi
6
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
og Baldur Arnarson
HOLLENSK stjórnvöld munu ekki
gefa kröfu sína í Icesave-málinu eftir,
enda óttast þau að það geti dregið úr
fylgi ríkisstjórnarflokkanna í kom-
andi þing- og sveitarstjórnarkosning-
um. Þetta segir Sylvester Eijffinger,
einn nánustu ráðgjafa hollenska for-
sætisráðherrans.
Íslenskir ráðamenn og embættis-
menn hafa undanfarna daga átt í tals-
verðum samskiptum við erlenda
starfsbræður sína. Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra segir þau
samskipti ekki gefa tilefni til bjart-
sýni á að Bretar og Hollendingar vilji
taka aftur upp samningaviðræður um
Icesave. Þeir vilji bíða eftir niður-
stöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og
telji sig hafa margvísleg ráð til að fá
sitt fram þótt lögunum verði hafnað.
Engu að síður telur hann að
ákvörðun forsetans um að synja lög-
unum staðfestingar og sá mótbyr sem
er í þjóðfélaginu gegn lögunum kunni
að hafa opnað glufu „til að skoða mál-
ið betur“.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
VG, vill að Íslendingar notfæri sér
þann meðbyr sem hefur verið að
myndast til að knýja á um nýjan og
sanngjarnari samning.
Hollendingar segjast ekki
gefa eftir vegna Icesave
» Glufa kann að hafa myndast, segir Össur
» Nýtum okkur meðbyrinn, segir Ögmundur
Engar líkur á eftirgjöf | 12
„ÞAÐ eru auðvitað vonbrigði að
það skuli ekki finnast meiri loðna,“
segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, um út-
komuna úr leiðangri hafrann-
sóknaskipanna Árna Friðriksson-
ar og Bjarna Sæmundssonar sem
er að ljúka.
Í loðnuleiðangri síðustu daga
mældust 355 þúsund tonn af hrygningarloðnu, en afla-
regla við loðnuveiðar byggist á að skilja 400 þúsund tonn
eftir til hrygningar. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriks-
son og Súlan frá Akureyri halda áfram loðnuleit á næst-
unni og eru vonir bundnar við að meira finnist af henni.
Mikil verðmæti eru í húfi og má ætla að 100 þúsund
tonn af loðnu gætu gefið yfir fimm milljarða í útflutnings-
verðmæti, enda er verð á afurðum hátt um þessar mundir
og gengið hagstætt fyrir útflytjendur.
Ekki örvænt fyrr en í febrúar
„Það verður áfram fylgst með þessu og kannski leynist
eitthvað undir ísnum, þannig að það er ekki búið að gefa
upp alla von enn í þessum efnum,“ segir Jón og Eggert B.
Guðmundsson, forstjóri HB Granda, tekur í sama streng.
„Menn fara ekki að örvænta fyrr en kemur fram í febr-
úar.“
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ,
bendir á að í leiðangrinum nú hafi mælst 215 þúsund
tonnum meira af hrygningarloðnu en í mælingu fyrir
mánuði. | 6
Ekki hefur fundist næg loðna til að gefa út byrjunarkvóta
Vonbrigði, en enn er von
UNGA fólkið veltir stöðumælinum fyrir sér, enda borgar sig víst að gjalda
stöðumælinum það sem stöðumælisins er. Væntanlega þyngist eitthvað á
því brúnin, jafnframt því að pyngjan léttist, samþykki dómsmálaráðherra
tillögur borgarstjórnar frá því fyrir jól um hækkanir á gjöldum vegna
stöðubrota. Þá verður enn dýrara að gleyma stöðumælinum því lagt var til
að hækka sektir vegna slíkra brota úr 1.500 krónum í 2.500 krónur. Þeir
sem ákveða að leggja uppi á gangstétt þurfa þá að snara út fimmþúsund-
kalli í stað 2.500 króna áður, gangi tillögurnar eftir.
ÞAÐ BORGAR SIG EKKI AÐ FÁ STÖÐUMÆLASEKT
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pálmi Haraldsson mun leggja
Ferðaskrifstofu Íslands til 800 millj-
ónir króna í tengslum við endurskipu-
lagningu félagsins. Ekki liggur fyrir
hvort um er að ræða eigið fé frá eign-
arhaldsfélagi Pálma eða lánsfé.
Skuldir Ferðaskrifstofu Íslands við
NBI námu um það bil 1,3 milljörðum
króna í ársbyrjun 2009. Ríflega þriðj-
ungi þeirrar skuldar var breytt í
hlutafé sem verður nú niðurfært í
endurskipulagningu félagsins.
Fengur, félag Pálma Haraldssonar,
er einnig eigandi Iceland Express.
Samkvæmt upplýsingum úr verðmati
á félaginu tapaði það hundruðum
milljóna á árinu 2008. »13
Pálmi Haraldsson reiðir
fram 800 milljónir króna
Reykjavíkur-
borg hlaut ný-
verið tæplega
2,5 milljóna
króna styrk úr
Progress, jafn-
réttis- og
vinnumála-
áætlun Evrópu-
sambandsins,
sem eyrna-
merktur er því að vinna gegn kyn-
bundnu ofbeldi á og við skemmti-
staði.
Að sögn Önnu Kristinsdóttur,
mannréttindastjóra Reykjavíkur-
borgar, er ætlunin að útfæra, í
samvinnu við veitingahúseigendur,
lögregluna og Lýðheilsustöð, þær
hugmyndir sem kynntar voru til
úrbóta í skýrslu starfshóps á veg-
um mannréttindaráðs árið 2008. Á
árunum 2002-2008 voru skráðir
a.m.k. 54 þolendur kynferðisof-
beldis á eða við skemmtistaði. »8
Borgin fær styrk til að ráð-
ast gegn kynferðisofbeldi
Vegagerðin kannar nú mögu-
leika á uppsetningu vegriða milli
akbrauta á 2+2-vegum víðar en nú
er. Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur skorað á stjórnvöld að setja
upp vegrið á samtals 47,2 km köfl-
um tvöfaldra vega sem eru án veg-
riðs milli akbrauta. Kostnaður við
það nemur um 500 milljónum kr.
Kristján L. Möller samgönguráð-
herra kveðst fagna því sem FÍB og
aðrir gera í þágu umferðaröryggis.
Hann segir það vera sameiginlegt
markmið að koma í veg fyrir bana-
slys í umferðinni.
Kristján segir að umferðar-
öryggismálum verði gerð góð skil í
samgönguáætlun sem kynnt verður
í febrúar. »16
Sameiginlegt markmið
allra að fækka slysum
AFAR brýnt er að vistunarmat
aldraðra verði endurskoðað að
mati forstöðumanna stærstu hjúkr-
unarheimila landsins, Hrafnistu og
Grundar. Bendir Pétur Magnússon
forstjóri Hrafnistu á að kostnaður-
inn við heimahjúkrun geti í mörg-
um tilfellum verið meiri en ef við-
komandi einstaklingur fær inni á
hjúkrunarheimili. Munurinn geti
numið nokkrum þúsundum króna á
dag. „Þeir sem fá vistunarmat
verða veikari og veikari og við
verðum vör við að þeim fækkar
verulega sem bíða eftir rými,“ segir
Pétur. | 8
Heimahjúkr-
un dýrari?
Í samtölum við Morgunblaðið í
dag gagnrýna tveir hollenskir
fræðimenn fjármálaráðherrann,
Wouter Bos, fyrir að taka
ákvörðun um að bæta innistæð-
ur á Icesave upp að 100.000
evrum og senda Íslendingum
svo reikninginn. Þeir segjast
telja að slíkt hafi hvorki verið
nauðsynlegt né hafi ráðherran-
um verið það heimilt.
Gagnrýna Bos