Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 25
13. janúar 1949 Fyrsta íslenska talmyndin í lit- um og fullri lengd, „Milli fjalls og fjöru“ eftir Loft Guðmunds- son, var frumsýnd. Hún var sýnd sjötíu sinnum í Gamla bíói, oftar en nokkur önnur mynd fram að því. 13. janúar 1960 Togarinn Úranus fannst en far- ið var að óttast um hann vegna þess að ekkert hafði heyrst til hans í þrjá daga. Hann var á leið af Nýfundnalandsmiðum en senditækin höfðu bilað. „Fagnaðarbylgja fór um Reykjavík er gleðitíðindin bár- ust,“ sagði á forsíðu Morg- unblaðsins daginn eftir. 13. janúar 1970 Byrjað var að merkja síga- rettupakka með áletrunum um skaðsemi reykinga: „Viðvörun: Vindlingareykingar geta vald- ið krabbameini í lungum og hjartasjúkdómum.“ 13. janúar 1985 Hitt leikhúsið frumsýndi söng- leikinn „Litlu hryllingsbúðina“ í Gamla bíói. „Einkar faglega unnin sýning,“ sagði Morg- unblaðið. Sýningar urðu rúm- lega eitt hundrað og áhorf- endur um 50 þúsund. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010 Sudoku Frumstig 7 4 5 9 1 6 4 6 5 3 8 3 9 7 1 9 4 5 8 6 8 9 1 3 7 6 5 6 5 2 4 1 3 1 2 6 9 3 7 4 3 5 9 4 9 1 9 2 3 6 4 7 5 3 7 3 5 3 2 1 7 4 1 3 2 8 6 5 1 9 9 5 8 8 4 7 6 9 4 8 5 3 2 1 7 6 5 6 1 8 4 7 9 2 3 7 3 2 6 9 1 8 5 4 6 5 9 2 7 3 4 1 8 3 2 4 1 8 9 7 6 5 1 8 7 4 5 6 2 3 9 8 1 6 9 2 5 3 4 7 2 9 3 7 6 4 5 8 1 4 7 5 3 1 8 6 9 2 8 4 7 6 3 1 2 5 9 3 2 6 5 7 9 4 8 1 1 9 5 4 8 2 3 7 6 5 1 3 2 6 7 8 9 4 4 6 9 3 5 8 7 1 2 7 8 2 9 1 4 6 3 5 2 5 1 7 4 3 9 6 8 6 3 4 8 9 5 1 2 7 9 7 8 1 2 6 5 4 3 5 8 7 4 2 6 1 3 9 3 9 1 7 8 5 4 6 2 2 6 4 9 3 1 5 8 7 8 4 9 5 7 3 2 1 6 6 3 5 2 1 4 7 9 8 1 7 2 8 6 9 3 5 4 4 5 3 6 9 2 8 7 1 7 1 6 3 4 8 9 2 5 9 2 8 1 5 7 6 4 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 13. janúar, 13. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Þú hefur elskað réttlæti og hatað ranglæti. Því hefur Guð, þinn Guð, smurt þig gleðinnar olíu fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.) Ámeðan frost og fannfergi ríkirvíðast hvar í Evrópu og sam- göngur hafa víða verið erfiðar og leg- ið niðri hafa hlýindi verið á Íslandi. Nú er reyndar að hlýna á meginlandi Evrópu. Þótt enn sé frost í norður- hluta álfunnar, nálgast kvikasilfrið nú núllið, en fyrir nokkrum dögum mun- aði tugum gráða á Íslandi og norður- hluta meginlandsins. x x x Víkverji ók um helgina norður áSauðárkrók og til baka og voru vegir auðir alla leiðina og hvergi hálkublett að finna. Þetta átti bæði við á Holtavörðuheiði og Þverárfjalli. Það var helst þegar komið var inn á Sauðárkrók að eitthvað var að færð, klakabunkar á götum og hálka. Hita- mælir á staðnum sýndi hins vegar níu gráður á selsíuskvarða á laugardag og hlýtur það að teljast nær sum- arveðri en vetrarveðri, sem er harla óvenjulegt í byrjun janúar. x x x Víkverja brá í brún þegar hann fórút í garð á sunnudag til að tína saman leifar stórskotahríðar áramót- anna og þrettándans og sá að laukar voru farnir að gægjast upp úr mold- inni. Á Íslandi eru hlýindin sem sé slík á þessum árstíma að gróður læt- ur blekkjast og vaknar af dvala. x x x Um leið og kólnar á byggðu bóliumfram það sem fólk á að venj- ast hefjast umræður um það hvort fullyrðingar um hlýnun jarðar séu ekki úr lausu lofti gripnar. Í þessum efnum þarf hins vegar að líta á jörð- ina alla. Evrópa og Norður-Ameríka eru ekki allur heimurinn. Víkverji lagðist í fremur óvísindalegt netráf þegar hann var að velta þessu fyrir sér og sá ekki betur en óvenju hlýtt hlyti að nú vera í Síberíu, í það minnsta var ekki nema um 20 stiga frost í Omsk í gær, en þar er getur frostið hæglega farið niður í 70 gráð- ur á þessum árstíma. Þaðan berast hins vegar engar fréttir af veðurfari, sennilega vegna þess að fremur er fá- mennt á þeim slóðum og líf þeirra fáu, sem þar búa, umturnast ekki vegna duttlunga í veðri. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 landræmur, 4 létu af hendi, 7 karl, 8 fim, 9 líkamshlutum, 11 siga, 13 aular, 14 tang- inn, 15 bráðum, 17 slæmt, 20 augnalok, 22 skræfa, 23 læsir, 24 illa, 25 mannsnafn. Lóðrétt | 1 staga, 2 konu, 3 magurt, 4 vers, 5 látin, 6 ótti, 10 bjargbú- ar, 12 elska, 13 hvíldi, 15 mergð, 16 er ólatur, 18 höndin, 19 hreinar, 20 drepa, 21 haka. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gemlingur, 8 galli, 9 rígur, 10 tel, 11 syrgi, 13 aurar, 15 hafts, 18 fagur, 21 Týr, 22 skera, 23 ertan, 24 skapanorn. Lóðrétt: 2 eflir, 3 leiti, 4 nurla, 5 ungur, 6 agns, 7 grár, 12 gat, 14 uxa, 15 hása, 16 flesk, 17 staup, 18 fregn, 19 getur, 20 röng. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Db6 5. Rb3 e6 6. Rc3 Rf6 7. De2 d6 8. g4 Be7 9. Be3 Dc7 10. g5 Rd7 11. O- O-O a6 12. f4 b5 13. Bg2 Bb7 14. Kb1 Hc8 15. Df2 b4 16. Ra4 O-O 17. Rb6 Rxb6 18. Bxb6 Db8 19. h4 Bd8 20. Be3 a5 21. Rd4 Rxd4 22. Bxd4 Da8 23. De3 a4 24. h5 b3 25. cxb3 axb3 26. axb3 e5 27. Bc3 exf4 28. Dxf4 f5 29. h6 g6 30. Hxd6 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Groningen í Hollandi. Sigurvegari mótsins, hið 13 ára undrabarn Illya Nyzhnik (2434) frá Úkraínu, hafði svart gegn heima- manninum Benjamin Bok (2337). 30… Bxg5! 31. De5 Bxe4+ 32. Bxe4 Dxe4+ 33. Dxe4 fxe4 34. Hd5 Bf4 35. He1 e3 36. Bd4 Bxh6 37. b4 Hfe8 svartur hef- ur nú yfirburðarstöðu og innbyrti vinn- inginn skömmu síðar. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Varnarsagnir. Norður ♠43 ♥ÁK975 ♦6 ♣KD954 Vestur Austur ♠ÁKG62 ♠85 ♥83 ♥G104 ♦K742 ♦ÁD1093 ♣107 ♣832 Suður ♠D1097 ♥D62 ♦G85 ♣ÁG6 Suður spilar 4♥. Það gleymist stundum hvað sagnir eru þýðingarmikill hluti af vörninni. Spil dagsins sýnir þetta vel, en það er frá fjórðu umferð Reykjavíkurmótsins í síðustu viku. Með allar hendur uppi er ljóst að vörnin á að hafa betur. Bókin fæst á stuttliti blinds, en síðan má uppfæra úrslitaslaginn á tromp með því að spila þriðja spaðanum. Þessi vörn reyndist þó flestum keppendum um megn. Ekki þó Halldóri Þorvaldssyni og Magnúsi Sverrissyni. Við þeirra borð sýndi norður tvílita hönd með því að segja 2♠ við Precision-opnun Halldórs á 1♠. Magnús á ekki mikið, en sagði þó 3♦ í upplýsingaskyni. Það dugði til að teikna upp vörnina síðar: Halldór kom út með ♠Á og skipti yfir í tígul. Magn- ús drap, spilaði spaða um hæl og þriðji spaðinn tryggði slag á tromp. Hrútur Öfundin er af hinu illa svo þú skalt varast að láta hana ná tökum á þér. Stað- setning himintunglanna beina sjónum að meðferð þinni á fjármunum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Fólk í þessu merki mun fá auknin tækifæri til ferðalaga og framhalds- menntunar á þessu ári. Mundu að hrósa öðrum. Göngutúrarnir þínir hafa setið á hakanum vegna anna. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Í dag viltu vera umvafin/n fólki. Hlustaðu vel á þinn innri mann, þú býrð sjálf/ur yfir lausninni. Mataræðið er ekki upp á marga fiska hjá þér, taktu þér tak. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Aðstoð annarra kann að koma fyr- ir lítið og vera hindrun í raun. Leggðu aukna áherslu á að fegra heimili þitt, það að mála getur gert kraftaverk. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Bjartsýni er þér eðlislæg. Ekki bregðast við á sama gamla háttinn, þann- ig tryggir þú best þinn innri frið. Órói á vinnustað skemmir fyrir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig undanfarið mun skila árangri. Ekki er öll nótt úti enn varðandi það að skipta um starfsvettvang. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú verður beðin/n um að stýra verk- efni sem þig hefur lengi dreymt um. Ekki hika við að taka það að þér. Samband fer út um þúfur, þú vissir að svona færi. (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdreki Þú ert farin/n að sjá fyrir end- ann á verkefni sem hefur tekið allan þinn tíma. Farðu að undirbúa framhaldið. Himintunglin benda til fjölgunar í kjarna- fjölskyldunni. Mundu að þú ert frábær. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú þarft að varast svo harða framgöngu að heilsu þinni kunni að stafa hætta af. Svaraðu bréfum og skilaboðum strax til að forðast misskilning. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það eru miklar líkur á að þú rekist á fyrrverandi maka þinn eða kær- asta/kærustu þessa dagana. Mundu að það kostar ekkert að hlusta á það sem aðrir hafa að segja. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Finnist þér þú ganga á vegg, hvert sem þú snýrð þér, ættirðu að setjast niður og íhuga þinn gang. Nöldur er hvimleitt, ekki festast í því. Heimsókn til læknis tekur óvænta stefnu. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ef þú býst alltaf við vandræðum, leita þau þig uppi. Vertu jákvæðari, þá gengur allt betur. Allt hefur sinn tíma. Nýttu útsölurnar. Stjörnuspá Jón M. Jónsson fyrrverandi bóndi í Hvítanesi, V-Landeyjum er níræður í dag 13. janúar. Ekki verður boðið til veislu en það verður heitt á könnunni þennan dag eins og aðra daga. 90 ára „ÉG er á leið til Spánar í stutta ferð,“ segir Tinna Karen Gunnarsdóttir, hugbúnaðarsérfræðingur hjá MENINGA.IS, sem fagnar þrítugsafmæli sínu í dag. Að sögn Tinnu verður samt ekkert sérstakt af- mælistilstand í ferðinni, það bíður febrúarmán- aðar. „Þá fagnar mamma stórafmæli og af því til- efni er fjölskyldan að fara til Bretlands að fylgjast með leik Manchester United og Portsmouth á Old Trafford,“ segir Tinna, sem er mikil fótbolta- áhugakona og hefur sjálf spilað í um tuttugu ár, fyrst með Val, síðan Fjölni og núna með ÍR- drottningunum. Að sögn Tinnu er fjölskyldan búin að tryggja sér miða réttu megin á áhorfendapöllunum, þ.e. þeim megin þar sem áhangendur Man- chester United sitja þannig að hún geti notið þess að samfagna liðinu. Spurð um eftirminnileg afmæli í gegnum tíðina segir Tinna engan afmælisdag sérstaklega standa upp úr í minningunni. „Þegar ég hugsa til baka finnst mér alltaf eins og það hafi verið vont veður á af- mælisdeginum, yfirleitt brjálaður snjóstormur,“ segir Tinna. silja@mbl.is Tinna Karen Gunnarsdóttir 30 ára Fótboltaferð í tilefni afmælis Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.