Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
OPINBER heimsókn Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, til Ind-
lands hófst í gær í Mumbaí en í
heimsókninni fer forsetinn einnig til
Delhí og Bangalore. Í fylgd með for-
setanum eru Dorrit Mousaieff for-
setafrú, embættismenn, vísinda-
menn og sérfræðingar við Háskóla
Íslands, forystumenn í orkumálum
og fulltrúar ýmissa íslenskra fyrir-
tækja. Enginn ráðherra er með í för
en til stóð að Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra færi utan. Það
breyttist eftir að forsetinn synjaði
Icesave-lögunum staðfestingar og
bar þau undir þjóðina.
Indlandsheimsóknin hófst í gær
með málþingi um tækni, orku og við-
skipti. Í lok málþingsins var undir-
ritaður samningur milli íslenska
jarðhitafyrirtækisins Reykjavik
Geothermal og indverska orkufyr-
irtækisins Thermax um jarðhita-
rannsóknir á Indlandi. Einnig var
undirritaður samningur milli orku-
tæknifyrirtækisins Marorku og Un-
ique Maritime Group á Indlandi.
Ísland sem tökustaður
Í dag verður sérstök kynning á
möguleikum indverskra kvikmynda-
fyrirtækja til að nýta Ísland sem
tökustað. Verða fulltrúar íslenskra
kvikmyndafyrirtækja viðstaddir
kynninguna. Í tilkynningu forseta-
embættisins segir að á Indlandi séu
framleiddar fleiri kvikmyndir en í
nokkru öðru landi. Þarlend kvik-
myndafyrirtæki hafi í vaxandi mæli
leitað til landa þar sem völ er á „ein-
stæðri náttúru og hæfileikaríku
samstarfsfólki“.
Alls eru um 30 manns í Indlands-
ferðinni, þar af 11 í föruneyti forset-
ans, m.a. Guðmundur Eiríksson
sendiherra, Guðni A. Jóhannesson
orkumálastjóri, Jón Ásbergsson,
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs,
og Þórður Hilmarsson, forstöðumað-
ur Fjárfestingarstofu. Til viðbótar
er viðskiptasendinefnd, skipuð 18
fulltrúum 12 fyrirtækja og stofnana.
Þau eru Össur, Landsvirkjun Power,
Lýsi, Mænuskaðastofnunin, Alvarr,
ProIce, Reykjavik Geothermal, LS
Retail, Verkís, Kaldara, Marorka og
Actavis. bjb@mbl.is
Indlandsheimsókn
forseta Íslands hafin
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Indland Forsetahjónin heimsóttu skóla í Mumbaí í gær en þann dag fagnaði Dorrit Moussaieff sextugsafmæli sínu.
Um 30 manna sendinefnd með í för en enginn ráðherra
Samið í gær um jarðhitarannsóknir Íslendinga á Indlandi
Hápunktur heimsóknar forseta Ís-
lands til Indlands er á morgun,
fimmtudag. Hefst dagskráin þá
með háttíðarmóttöku við forseta-
höllina þar sem forseti og for-
sætisráðherra Indlands taka á
móti forseta Íslands. Síðan mun
Ólafur Ragnar leggja blómsveig frá
íslensku þjóðinni að leiði Mahatma
Gandhi. Að því loknu hefjast fundir
með indverskum ráðamönnum og
forystumönnum í viðskiptalífi. Síð-
degis verður sérstök hátíðar-
samkoma þar sem forsetinn mun
taka við Nehru-verðlaununum að
viðstöddum fjölda indverskra
ráðamanna, að því er segir í til-
kynningu frá forsetaembættinu.
Eru verðlaunin ein helsta viður-
kenning sem Indland veitir en þau
fær Ólafur Ragnar fyrir framlag á
alþjóðlegum vettvangi og baráttu
fyrir samstarfi sex þjóðarleiðtoga
um frið og afvopnun.
Fær Nehru-verðlaunin afhent á morgun
EITRUNARMIÐSTÖÐ Landspít-
alans og fleiri stofnanir á heilbrigð-
issviði hafa vakið athygli á því að
hægt er að kaupa á netinu svo-
nefnda „kraftaverkalausn“ eða
MMS sem getur valdið alvarlegu
líkamstjóni. Ekki er þó vitað um
nein dæmi um slys hér á landi. En
bent er á að mikilvægt sé að til-
kynna til yfirvalda ef grunur leikur
á eitrun af völdum lausnarinnar,
segir Guðborg Guðjónsdóttir, yf-
irmaður Eitrunarmiðstöðvarinnar.
Hún er í sambandi við starfssystkin
sín víða um heim og fær sendar við-
varanir frá þeim ef talin er hætta á
slysum.
„Í Frakklandi kom nýlega upp til-
felli og þeir eru að grennslast fyrir
um það hvort eitthvað slíkt hafi
gerst í grannlöndunum,“ segir Guð-
borg. „Einnig kom upp tilfelli í Nor-
egi í október þar sem tveggja ára
barn komst í svona flösku og varð
veikt og sagt hefur verið frá fleiri
eitrunum á ráðstefnum.“ Umrædd
„kraftaverkalausn“ er seld undir
heitinu Miracle
mineral solution
eða MMS en
einnig stundum
Miracle mineral
supplement. Í
lausninni er 28%
natríum klórít
(NaClO2) sem
ætlað er að lækna
ýmsa sjúkdóma.
Guðborg bend-
ir á að ekki er um
að ræða natríumklóríð, sem er
venjulegt matarsalt. „Natríumklórít
er hins vegar mjög öflugt efni, mjög
svipað og natríumhypóklórít sem oft
er notað til að bleikja. Ætlast er til
að fólk þynni MMS en hættan er að
það sé ekki rétt gert og svo geta
börn auðvitað komist óvart í efnið.“
Í tilkynningu frá sóttvarnalækni,
Lyfjastofnun, Matvælastofnun, Um-
hverfisstofnun og Eitrunarmiðstöð-
inni segir að engin vísindaleg gögn
liggi fyrir sem styðji notkun MMS
við sjúkdómum. Natríumklórít geti
valdið metrauðablæði, skemmdum á
rauðum blóðkornum og nýrnabilun.
Efni frá sama fyrirtæki, natríum-
klórdíoxíð, hefur verið á boðstólum í
versluninni Góð heilsa gulli betri í
Reykjavík en hefur nú verið tekið úr
sölu í bili, að sögn talsmanns versl-
unarinnar í gær. Skylt er að veita
Matvælastofnun upplýsingar um
fæðubótarefni sem seld eru hér á
landi en stofnunin mun ekki hafa
fengið neina tilkynningu um MMS.
„Ólæknandi sjúkdómar“ sagðir
læknaðir með efninu
Á heimasíðu MMS er vitnað í um-
sagnir mexíkóskra lækna sem hrósa
efninu. „Kraftaverkalausn 21. ald-
arinnar“ er fyrirsögnin á einni
greininni og er þar fullyrt að hund-
ruðum mannslífa hafi verið bjargað
fyrir tilstuðlan lyfsins. Á hverjum
degi berist skýrslur um að tekist
hafi að lækna „ólæknandi sjúk-
dóma“ með MMS og seldar séu um
10.000 flöskur á mánuði hverjum.
kjon@mbl.is
Vara við efninu MMS
RÓSA Guðbjarts-
dóttir bæj-
arfulltrúi gefur
kost á sér í 1. sæti
á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Hafn-
arfirði í prófkjöri
30. janúar nk.
Rósa hefur verið bæjarfulltrúi
frá árinu 2006 og á sæti í bæjarráði.
Rósa sækist eftir
1. sætinu í firðinum
MARTA Guðjóns-
dóttir, formaður
Varðar, full-
trúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í
Reykjavík og vara-
borgarfulltrúi,
gefur kost á sér í
þriðja sætið í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík.
Marta stefnir á 3.
sætið í Reykjavík
ELÍNBJÖRG Bára
Magnúsdóttir sæk-
ist eftir 5. sætinu í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík. Hún
hefur lengi gegnt
trúnaðarstörfum
fyrir verkafólk og starfar nú sem
fiskverkakona og í umönnun.
Elínbjörg sækist
eftir 5. sæti
HILDUR Sverr-
isdóttir lögfræð-
ingur sækist eftir
stuðningi í 4.-5.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík.
Hildur starfar hjá
365 miðlum en áður m.a. sem fram-
kvæmdastjóri V-dags-samtakanna.
Hildur gefur kost
á sér í 4.-5. sæti
ODDNÝ Sturlu-
dóttir gefur kost á
sér í 2. sætið á lista
Samfylking-
arinnar í Reykja-
vík. Hún hefur set-
ið eitt kjörtímabil í
borgarstjórn og
helgað sig mennta-, frístunda-,
menningar- og atvinnumálum.
Oddný gefur kost
á sér í 2. sætið
ÞORKELL Ragn-
arsson gefur kost
á sér í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík og
sækist eftir 5. sæti.
Þorkell er m.a. í
stjórn íbúða-
samtakanna Betra Breiðholt og sit-
ur í hverfisráði Breiðholts.
Þorkell býður sig
fram í 5. sætið
KOSIÐ verður til sveitarstjórna hér á landi í maí næstkomandi.
Morgunblaðið mun þangað til reglulega birta fréttir sem tengjast
framboðum, prófkjörum, kosningafundum o.fl. .
Kosningar árið 2010
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fer fram 30. janúar næst-
komandi. Kjörnefnd bárust 13 lögmæt framboð.
Eftirtaldir hafa gefið kost á sér:
Elín Sigríður Óladóttir, Geir Jónsson, Helga Ingólfsdóttir, Helga Ragn-
heiður Stefánsdóttir, Jóhanna Fríða Dalkvist, Kristinn Andersen, María
Kristín Gylfadóttir, Ólafur Ingi Tómasson, Rósa Guðbjartsdóttir, Sig-
urlaug Anna Jóhannsdóttir, Skarphéðinn Orri Björnsson, Valdimar Svav-
arsson og Þóroddur Steinn Skaptason.
Þrettán gefa kost á sér í Hafnarfirði
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsala