Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-.
)..,.
)).,/0
*1,)).
*),./
)-,000
)*),2
),+1..
).1,20
)-.,0
345
3 )*" 6
74 *8)8
)*1,8.
*88,+.
)*8,*
*1,).
**,810
)-,282
)*),.1
),+0+/
).0,*+
)/8
*++,)/82
%
9: )*1,+.
*88,//
)*8,00
*1,*2)
**,))
)-,20-
)**,*/
),+0--
).0,/)
)/8,0
Heitast 5°C | Kaldast -3 °C
Suðaustan 10-18 síð-
degis, hvassast með
suðvesturströndinni
og bætir í úrkomu. Hiti
víðast 0 til 5 stig. » 10
Ferguson var vin-
sælasta dráttar-
vélategundin hér-
lendis og nýleg bók
um vélina seldist vel
fyrir nýliðin jól. »30
AF LISTUM»
Ferguson
vinsæll
SJÓNVARP»
Simon Cowell hættir í
American Idol. »35
Frönsk kvik-
myndahátíð verður
haldin í Háskólabíói
15. til 28. janúar og
verða sýndar 10
myndir. »32
KVIKMYNDIR»
Frönsk hátíð
í 10. sinn
INNSETNING»
Ingunn Fjóla með garn í
Hafnarborg. »27
TÓNLIST»
Fimmtán sveitir í hljóm-
sveitakeppni. »31
Menning
VEÐUR»
1. Var veitt hjartahnoð eftir áfall
2. Ragnhildur og Eva María óléttar
3. Forstjóraskipti í Húsasmiðju
4. Quest tekur málstað Íslands
Íslenska krónan styrktist um 0,2%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Kylfingurinn
Haraldur Frank-
lín Magnús sigr-
aði á alþjóðlegri
mótaröð fyrir 19
ára og yngri í des-
ember. Mennta-
skólaneminn úr
MR heillaðist af golfíþróttinni þeg-
ar hann var 12 ára gamall og stefnir
hann á að komast í háskólanám
samhliða golfiðkun í Bandaríkj-
unum á næstu misserum. „Árangur
minn á Junior Masters verður von-
andi til þess að auka möguleika
mína á að komast að,“ segir Har-
aldur.
GOLF
Íslenskur kylfingur sigraði
á alþjóðlegri mótaröð
Greinilegt er að
Gunnar Einars-
son, bæjarstjóri í
Garðabæ, nýtur
hylli bæjarbúa.
Skoðanakönnun,
sem Frjáls verslun
lét framkvæma
fyrir skömmu, leiddi í ljós að 66% að-
spurðra töldu að Gunnar hefði staðið
sig vel. 21% aðspurðra taldi að
Gunnar hefði hvorki staðið sig vel né
illa en aðeins 2% töldu að hann hefði
staðið sig illa.
Af þeim sem afstöðu tóku lýstu
74% yfir ánægju með störf bæjar-
stjórans í Garðabæ.
GARÐABÆR
Gunnar Einarsson nýtur
greinilega hylli bæjarbúa
Magnús okkar
Scheving,
íþróttaálfur og at-
hafnamaður, var
tekinn í viðtal á
Rauða dreglinum í
Los Angeles um
helgina. Magnús
leikur aukahlutverk í nýjustu mynd
Jackies Chans, The Spy Next Door,
og leikur Rússa, eins og Íslendingar
gera svo gjarnan um þessar mundir.
Magnús var mættur með alla fjöl-
skylduna með sér, var hinn kátasti
og lék á als oddi. Myndskeið af
„frammistöðunni“ má nálgast á you-
tube.
KVIKMYNDIR
Magnús Scheving stendur
sig vel á Rauða dreglinum
Morgunblaðið/RAX
Glaðir í bragði Það er létt yfir Jóhannesi og félögum hans í Múlakaffi, enda mikill annatími framundan.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Súran pung og sviðapressu
saman étið.
Harðfiskinn og hangiketið.
Hákarlinn þó best þið metið.
Síðan verður dansað dátt og
duflað meira.
Drekka sumir munu mikið.
Margir fara yfir strikið.
ÞANNIG orti Jón Gissurarson í
fyrra í tilefni af sameiginlegu þorra-
blóti fjögurra hreppa sem haldið var
á Sauðárkróki. Nú styttist í þorrann
en hann hefst á bóndadaginn sem er
23. janúar. Þorrinn var fjórði mán-
uður ársins samkvæmt gömlu tíma-
tali og margvíslegar hefðir tengjast
honum. Þeir eru margir sem skófla
þá í sig af mikilli áfergju hnossgæti
eins og kæstum hákarli og súrsuðum
selshreifum en smakka samt þennan
mat aðeins einu sinni á ári.
Sumir hafa velt því fyrir sér hvort
ekki væri hægt að markaðssetja
þessa þjóðlegu hefð, leyfa erlendum
ferðamönnum að kynnast óvenju-
legum mat sem vissulega þefjar
undarlega og er ekki allur aðlaðandi
á að líta en er – skrítinn. Kannski
spennandi? Valgerður Sverrisdóttir,
þáverandi viðskiptaráðherra (og
bóndi), lagði til í bloggi fyrir sex ár-
um að kannski væri það líklegra til
árangurs en að verja ótöldum millj-
ónum í að markaðssetja íslenska
lambakjötið erlendis.
„Komin aftur með hvalrengið“
Jóhannes Stefánsson, veitinga-
maður í Múlakaffi, hefur reynslu af
þorraveislum en fyrirtækið hefur
staðið fyrir þeim í 46 ár. „Lokaund-
irbúningurinn er í gangi,“ segir
hann. „Nú erum við komin aftur með
hvalrengið, það er aftur í trogunum
okkar en var ekki í fyrra. Ég vildi
það ekki fyrr en ég væri búinn að ná
í alvörurengi. Nú fékk ég það hjá
Kristjáni Loftssyni í Hval hf.
Mér sýnist að aðsóknin verði jafn-
vel meiri en í fyrra, þetta fer gríð-
arlega vel af stað. Þetta eru í kring-
um 15 tonn af mat, allt ramm-
íslenskt, sviðasultan, hangikjötið,
allt þetta dæmi. Þyngst vegur súr-
maturinn. Við byrjum alltaf að
leggja í súr í byrjun september,
byrjum á hrútspungunum, sviðasult-
unni og lundaböggunum og þetta
hefur alltaf tekist vel.“
Súr pungur og sviðapressa
Aftur rengi í trog-
unum hjá Múla-
kaffi á þorranum
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik karla mætir Portúgal í kvöld í
vináttulandsleik í Laugardalshöll.
Leikurinn er sá eini sem íslenska
liðið leikur hér á landi áður en
Evrópumeistaramótið hefst í
Austurríki í næstu viku. Guð-
mundur Guðmundsson, þjálfari
liðsins, hefur nokkra daga til þess
að gera upp hug sinn áður en hann
velur leikmannahópinn sem fer á
EM.
Í gær tóku meiðsli sig upp hjá
Þóri Ólafssyni og er ljóst að horna-
maðurinn verður ekki með á EM.
Logi Geirsson er einnig í kapp-
hlaupi við tímann en hann fær
tækifæri gegn Portúgal til þess að
sýna sig og sanna. „Við látum
reyna á það í leiknum við Portú-
gala hvort Logi Geirsson getur far-
ið með okkur á EM eða ekki. Það
er ekki hægt að bíða lengur eftir
að fá svar við þeirri spurningu,“
sagði Guðmundur Guðmundsson
við Morgunblaðið í gær. | Íþróttir
Morgunblaðið/Golli
Tíminn líður Logi Geirsson þarf að
sýna sig og sanna í kvöld.
Úrslitastund hjá Loga
Geirssyni gegn Portúgal
Heimildarmyndin Maybe I Should
Have – Frásögn af efnahagsundrinu
Íslandi verður frumsýnd í Háskóla-
bíói 20. janúar næstkomandi. „Ég
hef skoðanir á þessum hlutum, mér
finnst þetta ekki rétt og fer að leita
mér upplýsinga,“ segir Gunnar Sig-
urðsson leikstjóri um mynd sína.
Gunnar segir að myndin sé úttekt
á eftirleik hrunsins og að mörgu
leyti segi hann eigin sögu og margra
annarra í leiðinni. „Ég tala um þetta
allt á persónulegum nótum.“ | 28
Frumsýning
nálgast
Hver er uppruni þorrablóta?
Í heiðni hefur fólk komið saman til
að fagna því að veturinn var hálfn-
aður. Siðurinn varð mikil tíska aftur
seint á 19. öld eftir að trúfrelsi var
lögtekið 1874. En áhuginn dvínaði
smám saman í kaupstöðum.
Hvenær voru þau endurvakin?
Halldór heitinn Gröndal, veitinga-
maður í Naustinu og síðar prestur,
hóf árið 1958 að bjóða upp á hefð-
bundinn þorramat í trogum. Má
segja að eftir það hafi hefðin end-
anlega fest sig í sessi á ný.
Íslendingar gerðu lítið af því að
geyma mat í salti. Af hverju?
Útlent salt var dýrt og þjóðin blá-
fátæk. Hægt var að vinna salt úr
sjó en til þess þurfti mikinn eldivið.
Þess vegna gerðu menn meira af
því að þurrka, reykja, kæsa og
súrsa.
S&S