Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010 HINDÚAR bíða eftir ferju á Ganges-fljóti á leið til Sagar-eyjar á Indlandi þar sem þeir ætla að taka þátt í hátíðinni Makar Sankranti á morgun. Gert er ráð fyrir því að um fimm milljónir hindúa baði sig þá í hinu helga fljóti Ganges þar sem það rennur út í Bengal-flóa. Reuters MILLJÓNIR HINDÚA Í BAÐ Í GANGES-FLJÓTI Stuðningurinn við Verka- mannaflokkinn í Bretlandi hefur minnkað um tvö prósentustig á einum mánuði og hefur ekki verið jafnlítill frá því í september, sam- kvæmt nýrri könnun sem dagblaðið The Times birti í gær. Um 28% aðspurðra sögðust styðja Verkamannaflokk- inn en stuðningurinn við Íhalds- flokkinn jókst um þrjú prósentustig í 41%. Næstu þingkosningar í Bretlandi eiga að fara fram ekki síðar en í júní. Engum breskum stjórn- málaflokki hefur tekist að vinna upp svo mikið forskot á jafn- skömmum tíma fyrir kosningar, að sögn The Times. Íhaldsmenn í Bretlandi auka forskot sitt Gordon Brown AÐEINS þrjár konur klæðast búrku að jafnaði í Danmörku, samkvæmt rann- sókn fræðimanna við Kaupmanna- hafnarháskóla fyrir danska þingnefnd sem fjallar um tillögu Íhaldsflokksins um bann við íslömskum fatnaði sem hylur konuna frá hvirfli til ilja. Rannsóknin leiddi í ljós að 150-200 konur í Danmörku klæðast niqab, sem líkist búrkunni en er ekki með net fyrir augunum. Íhaldsflokkurinn ætlar að halda tillögunni um bannið til streitu þrátt fyrir þessa niðurstöðu. Aðeins þrjár konur í búrku í Danmörku Afgönsk kona í ísl- amskri búrku. FJÖGURRA ára gömlum pilti hef- ur verið stíað frá bekkjarsyst- kinum sínum og gert að sitja einn í bókasafni barnaskóla í einu úthverfa Dallas- borgar í Texas vegna þess að hann er með síð- ara hár en reglur skólans heimila. Stjórnendur skólans féllust á að slaka til en sögðu þó að hárið mætti alls ekki ná niður fyrir eyru. For- eldrar piltsins, sem heitir Taylor Pugh, höfnuðu þessari tilslökun á fundi sem haldinn var í fyrradag. Pilturinn verður því áfram í ein- angrun í skólanum að sögn frétta- stofunnar AP í gær. Deilt um bann við síðu hári í skóla Taylor er sagður með of sítt hár. VAXANDI bjartsýni gætir meðal Afgana um þróunina í landinu, ef marka má viðhorfskönn- un sem gerð var á vegum breska ríkisútvarps- ins, ABC-sjónvarpsins í Bandaríkjunum og ARD-sjónvarpsins í Þýskalandi. Rúm 70% aðspurðra sögðust telja að ástand- ið í Afganistan myndi batna á næstu tólf mán- uðum, en aðeins 40% Afgana voru þeirrar skoðunar í samskonar könnun fyrir ári. Um 68% Afgana styðja nú bandaríska herliðið í landinu, um fimm prósentustigum fleiri en fyr- ir ári. Stuðningurinn við hersveitir undir stjórn Atlantshafsbandalagsins hefur aukist úr 59% í 62%, ef marka má könnunina, sem náði til 1.500 Afgana í öllum héruðum landsins. Könnunin leiddi ennfremur í ljós vaxandi andúð í garð talibana sem hafa barist gegn afg- önsku ríkisstjórninni og erlendu hersveitun- um. Um 90% aðspurðra sögðust vilja núver- andi stjórnkerfi og aðeins 6% vildu að landið yrði undir stjórn talibana. Um 69% sögðust telja að landinu stafaði mest hætta af talibönum og 66% kenndu talibönum, al-Qaeda og erlendum íslamistum um ofbeldið í Afganistan. Um 83% sögðust telja að innrás erlendu hersveitanna árið 2001 til að steypa stjórn talibana af stóli hefði verið af hinu góða. 69% voru þessarar skoðunar fyrir ári. Um 74% aðspurðra sögðust vera mjög ánægð eða fremur ánægð með niðurstöðu um- deildra forsetakosninga í Afganistan í fyrra þrátt fyrir ásakanir um stórfelld kosningasvik. Mikil ánægja með forsetann Um 72% sögðu að Hamid Karzai forseti hefði staðið sig vel eða frábærlega í embætti, um 20 prósentustigum fleiri en fyrir ári. Um 60% sögðu ríkisstjórnina hafa staðið sig vel eða frábærlega og aðeins 10% töldu hana hafa staðið sig illa. Um 95% sögðust þó telja að spill- ing í stjórnkerfinu og lögreglunni væri vanda- mál, þar af töldu 76% spillinguna vera stórt vandmál. bogi@mbl.is Mikil bjartsýni meðal Afgana  Rúm 70% landsmanna telja að ástandið í Afganistan batni á næstu misserum  Vaxandi andúð í garð talibana og aukin ánægja með afgönsku ráðamennina  Stuðningurinn við erlendu hersveitirnar eykst » Um 69% telja að landinu stafi mest hætta af talibönum » Um 68% landsmanna styðja bandaríska herliðið í Afganistan » 90% vilja núverandi stjórnkerfi og aðeins 10% vilja talibana KRÍAN flýgur meira en 70.000 kíló- metra á árlegu farflugi sínu á milli pólanna og sumar þeirra fljúga sem samsvarar þremur ferðum til tunglsins og til baka á ævinni. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri grein í bandaríska vís- indatímaritinu Proceedings of the National Academy of Sciences. Greinin byggist á niðurstöðum rannsóknar hóps vísindamanna frá Grænlandi, Danmörku, Bandaríkj- unum, Bretlandi og Íslandi, en þeir hafa kortlagt nákvæmlega farflug kríunnar frá varpstöðvunum á noð- urslóðum til vetrarheimkynna við suðurskautið. Á meðal greinarhöf- undanna er Ævar Petersen, fugla- fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, og skýrt er frá niðurstöð- unum á vef stofnunarinnar, www.ni.is. Við rannsóknina var beitt nýlegri tækni, 1,4 gramma ljósrita („geo- locator“), sem komið var fyrir á fæti fugla. Rannsóknin leiddi meðal annars í ljós að eftir að kríurnar fóru frá varpstöðvunum síðsumars höfðu þær um það bil mánaðar- langa viðdvöl á miðju Norður- Atlantshafi, um þúsund kílómetra norðan við Asoreyjar. Fuglarnir héldu síðan áfram suður á bóginn undan ströndum Norðvestur- Afríku en nálægt Grænhöfðaeyjum gerðist nokkuð sem ekki var vitað áður. Í stað þess að halda áfram suður undan ströndum Afríku sveigði um helmingur fuglanna vestur yfir Atlantshaf og hélt áfram suður með ströndum Suður- Ameríku. Þegar fuglarnir voru komnir suður undir Argentínu fóru sumir þeirra beina leið til vetrar- stöðvanna í Weddellhafi en vísinda- mönnum til undrunar héldu aðrar kríur með staðvindum beint austur til Suður-Afríku. Þaðan héldu fugl- arnir til vetrarstöðvanna eftir mis- munandi leiðum. Sumar kríur, þeirra á meðal ein íslensk, fóru langleiðina austur til Ástralíu áður en þær sneru aftur vestur á bóginn til Weddellhafsins. Þar voru fugl- arnir í þrjá til fjóra mánuði meðan vetur var á norðurslóðum. Fara ekki stystu leið Rannsóknin leiddi ennfremur í ljós að kríur velja aðra leið norður á bóginn en í suðurferðinni og fara ekki stystu leið. Þær fljúga í norður eftir S-laga ferli sem er nokkur þúsund kílómetrum lengri en bein- asta leið sem þær gætu farið. Þannig nýta kríurnar sér ríkjandi veðurkerfi, sem stjórnast af snúningi jarðar, og spara mikla orku, að því er fram kemur á vef náttúrufræðistofnunar. Fljúga yfir 70.000 km á ári  Hulunni svipt af farflugi kríunnar milli varpstöðvanna á norðurslóðum og vetrarheimkynna  Sumar fljúga sem samsvarar þremur tunglferðum á ævinni Farflug Gulu línurnar sýna leiðir kríunnar suður á bóginn með viðkomu á Atlantshafi (lítill hringur). Hvíta línan sýnir leið kríunnar norður á bóginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.