Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010 Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „VIÐ gerum ráð fyrir að á þessu ári verði gert átak í því að vinna gegn kynbundnu ofbeldi á og við skemmti- staði í samvinnu við m.a. veitinga- húsaeigendur, lögregluna og Lýð- heilsustöð,“ segir Anna Kristins- dóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar. Bendir hún á að forsenda þess að hægt sé að fara í slíkt átak sé að til sé fjármagn, en borgin, ásamt fleirum hérlendis, hlaut nýverið styrk úr Progress eða Jafnréttis- og vinnumálaáætlun Evr- ópusambandsins. Samkvæmt upplýsingum frá Lindu Rós Alfreðs- dóttur, verkefnisstjóra í félags- og tryggingamálaráðuneytinu, koma tæplega 2,5 milljónir króna í hlut borgarinnar, en alls fengu íslensk verkefni 43 milljónir úr Progress. Úrbætur kynntar í júní 2008 Forsaga málsins er sú að í lok árs 2007 skipaði mannréttindaráð starfs- hóp sem ætlað var að kynna sér ör- yggismál á og við skemmtistaði borgarinnar og koma með tillögur sem spornað gætu við kynferðisof- beldi á og við skemmtistaði. Hóp- urinn skilaði niðurstöðum í júní 2008 og í sama mánuði var skýrslan kynnt í borgarráði. Ákveðið var að starfs- hópurinn héldi áfram að útfæra nán- ar þær tillögur og verkefni sem lagt var til í skýrslunni. Meðal þess sem lagt var til í skýrslunni var að hugað væri betur að öryggi gesta á skemmtistöðum með auknu eftirlit á salernum, auk þess sem komið væri fyrir öryggis- hnöppum og öryggismyndavélum á salernum, bætt yrði úr lýsingu í húsasundum og öðrum svæðum sem talist geta hættuleg. Einnig var lagt til að borgaryfirvöld ynnu námsefni til kennslu á námskeiðum fyrir dyra- verði þar sem áhersla væri lögð á forvarnir vegna kynferðisbrota á og við skemmtistaði og að eigendur veitinga- og skemmtistaða, starfsfólk og almenningur allur yrði fræddur um kynferðisafbrot og ofbeldi á og við skemmtistaði með það að mark- miði að vekja fólk til vitundar um slíkt brot, koma í veg fyrir brot og efla öryggistilfinningu almennings í miðborginni. „Skýrslan sýndi að það var úrbóta þörf,“ segir Anna og tekur fram að hún vonist til þess að verkefnið verði komið á fullt skrið með vorinu en ráðgert sé að átakið standi út 2010. Seinagangur vonbrigði „Það er auðvitað ánægjulegt ef loksins á að hrinda einhverju af þess- um ábendingum í framkvæmd,“ seg- ir Eyrún Jónsdóttir, deildarstjóri Neyðarmóttöku nauðgana í Fossvogi sem átti sæti í starfshópnum á sínum tíma. Hún segir vonbrigði að lítið sem ekkert hafi gerst síðan starfs- hópurinn skilaði af sér skýrslu um mitt ár 2008, sérstaklega í ljósi þess að úrbæturnar þurfi ekki að vera kostnaðarsamar, t.d. við að bæta læsingar á salernum og auka fræðslu meðal starfsfólks um þessi brot, svo það sé t.d. vakandi fyrir ölvunar- ástandi gesta. Spurð hvort hún kunni skýringar á því hversu lítið hafi gerst segir Eyrún ljóst að málið hafi fallið í skuggann af þeim pólitísku hrær- ingum sem ríktu í borginni í fram- haldinu af REI-málinu. Innt eftir því hvaða úrbætur séu mikilvægastar að hennar mati segir Eyrún allar ábendingar skýrslunnar jafngildar. „Það hefði alveg verið hægt að bregðast skjótt við með því t.d. að skipuleggja námskeið fyrir starfs- fólk og koma upp áberandi skiltum um að gæsla væri á salernum stað- anna og kaupa örfáar öryggismynda- vélar, ef vilji hefði verið fyrir hendi.“ Loks í framkvæmd Borgin hyggst nýta nýfenginn styrk til þess að auka öryggis- mál og sporna við kynferðisofbeldi á og við skemmtistaði Morgunblaðið/Ásdís Bættar læsingar á salernum Síðla árs 2006 réðust fjórir karlmenn á hjón á skemmtistaðnum Café Victor í mið- borginni. Tildrög málsins voru þau að mennirnir gengu inn á konuna á salerni staðarins, en læsingin var biluð. Kynferðisofbeldi á og við skemmtistaði 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 Upplýsingar úr ársskýrslum Stígamóta 10 7 4 8 6 14 5 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is FORSTÖÐUMENN stærstu hjúkr- unarheimilanna í landinu, Hrafnistu og Grundar, telja afar brýnt að vist- unarmat fyrir aldraða verði endur- skoðað og fagna því að sú vinna eigi að hefjast. Jafnframt bendir forstjóri Hrafnistu á að kostnaður geti í mörg- um tilvikum verið meiri í heima- hjúkrun en að viðkomandi einstak- lingur fái inni á hjúkrunarheimili. Getur þar munað nokkur þúsund krónum á dag. Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri Grundar, segir brýnt að endurskoða vistunarmatið. „Þegar fólk fer í vist- unarmat fær það vistun í dvöl eða hjúkrun eftir því hvernig fólkið er á sig komið. Við fáum oft hingað til okkar roskið fólk sem hefur ekki fengið mat í hjúkrun heldur dvöl, fólk sem jafnvel er komið á níræðis- eða tíræðisaldur. Það fær ekki mat í hjúkrun því það getur hugsað um sig að einhverju leyti sjálft eins og klætt sig og matast en það er kannski eðli málsins samkvæmt orðið óöruggt heima og þreytt, jafnvel einmana og vill komast í öryggi og ekki síður fé- lagsskap. Oft er það mat okkar að þeir sem fá mat í dvöl hefðu í raun þurft mat í hjúkrun,“ segir Guðrún en Grund er með 187 hjúkrunarrými á meðan dvalarrýmisplássin eru 26. Úrræðum fyrir fólk sem er með mat í dvalarrými fer fækkandi. Dvalar- rýmisplássin eru nú 117 í Reykjavík en hjúkrunarplássin eru um 1.000. Boginn spenntur of hátt Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, segir tveggja ára reynslu vera komna af breyttu vistunarmati. Þó að margt hafi gengið vel þá sé mikilvægt að ráða bót á ýmsum þátt- um. „Boginn var spenntur of hátt og það er réttlætismál að draga þetta eitthvað til baka,“ segir Pétur en með breyttu vistunarmati var m.a. lögð áhersla á að gefa öldruðum kost á að dvelja eins lengi heima og mögulegt er, með möguleika á heimahjúkrun eða -þjónustu. Í fyrsta lagi bendir Pétur á að að- eins þeir einstaklingar sem þurfa mikla umönnun fái vistunarmat í dag. Öldruðum sé að fjölga og veikum öldruðum ekki að fækka þó að bið- listar styttist. Þessi hópur hefði feng- ið vistun áður en matinu var breytt. „Þeir sem fá vistunarmat verða veik- ari og veikari og við verðum vör við að þeim fækkar verulega sem bíða eftir rými,“ segir Pétur og bendir jafn- framt á að fjármunir til rekstrar hjúkrunarheimila hafi á sama tíma minnkað. Það sé ekki í samræmi við þá þróun að stöðugt veikari einstak- lingar fái inni á hjúkrunarheimilun- um. Meiri kröfur séu gerðar á hjúkr- unarheimilin og ráða þurfi fleiri í umönnunarstörf. „Sú stefna er sjálfsögð að gefa fólki kost á að vera heima eins lengi og það getur og vill. En sumir eru félagslega einangraðir heima hjá sér, eiga fáa ættingja og vilja fá inni á hjúkrunar- heimili. Þann rétt skortir í heildar- myndina eins og hún er í dag. Við verðum oft vör við að fólk sem flytur til okkar hreinlega lifnar við og öðlast nýtt líf við að komast innan um annað fólk,“ segir Pétur. Hann dregur einnig útreikninga stórlega í efa um að dýrara sé að hafa aldraða á hjúkrunarheimilum en heima hjá sér. Hrafnista hafi reiknað það út að í mörgum tilvikum sé ódýr- ara að vera á hjúkrunarheimili, sé tekið tillit til kostnaðar við heima- hjúkrun og heimaþjónustu hjá fólki sem þarf mikla umönnun, ekki síst til langs tíma. Fagna boðaðri endurskoðun á vistunarmati Heimahjúkrun getur verið dýrari leið Í HNOTSKURN »Á Hrafnistuheimilunumdvelja um 600 manns og öll rými eru jafnan fullnýtt. »Á heimilunum létust um150 manns árið 2008. »Langur biðlisti er eftirhvíldarinnlögnum, en um 70 manns geta komið á Hrafn- istu til hvíldar í sex vikur. »Á biðlista eftir hjúkr-unarrými á höfuðborg- arsvæðinu eru um 100 manns. Pétur Magnússon Guðrún Birna Gísladóttir ÁGÚST Hilmar Þor- björnsson, fv. útgerðar- maður og skipstjóri á Höfn lést á heimili sínu þann 10. janúar sl., 57 ára að aldri. Ágúst var fæddur á Höfn í Horna- firði 17. október 1952 og bjó þar æ síðan. Foreldrar hans voru Þorbjörn Sigurðsson, umboðsmaður Flug- félags Íslands og vita- vörður og kona hans Ágústa M. Vignisdóttir húsmóðir og síðar vita- vörður. Ágúst lauk skipstjórnarprófi frá Stýrimanna- skóla Íslands 1973. Hann var einn af eigendum og stofnendum útgerðar- félagsins Garðeyjar, sem hann vann við til ársins 2003, en þá var útgerðin seld. Félagið gerði út vélbátinn Garðey SF 22 og um tíma frystiskipið And- ey. Ágúst lagði stund á ýmis konar veiðiskap og má m.a. eigna hon- um heiðurinn af því að viðhalda aldagamalli þekkingu um veiðar og vinnslu á lúru á Horna- firði. Einnig var hann áhugamaður og frum- kvöðull um veiðar og nýtingu á ál. Ágúst kvæntist árið 1977 Halldóru Berg- ljótu Jónsdóttur. Þau eignuðust fjög- ur börn, Jón Þorbjörn, Gísla Karl, Ólaf Pétur og Bergþóru Ólafíu. Barnabörnin eru orðin fimm. Útför Ágústs verður gerð frá Hafn- arkirkju laugardaginn 16. janúar kl. 14. Andlát Ágúst H. Þorbjörnsson Kjartan Magnússon borgarfulltrúi efnir til málefnafundar um íþrótta- og æskulýðsmál í aðdraganda prófkjörs sjálfstæðismanna hinn 23. janúar. Fundurinn verður haldinn í dag, miðvikudaginn 12. janúar, kl. 17:00 á kosningaskrifstofu Kjartans að Ármúla 18. ● Til hvaða aðgerða hefur borgarstjórn gripið til að tryggja að kreppan komi ekki niður á æskulýðsstarfi? ● Hvar verður hagrætt til að bregðast við ástandinu? ● Hvað hefur áunnist og hver eru verkefnin framundan? Allir velkomnir! Kjartan Magnússon Íþróttir og æska í kreppu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.