Morgunblaðið - 13.01.2010, Síða 13

Morgunblaðið - 13.01.2010, Síða 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010 Þetta helst ... ● HREIN eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris var 1.763 milljarðar króna í lok nóvember síðastliðins og hafði aukist um 18,8 milljarða í mán- uðinum. Var hrein eign lífeyrissjóðanna í lok nóvember 7,9 milljörðum lægri en hún var í lok september 2008 sem jafngildir 0,4% lækkun að nafnvirði. Lækkunin að raunvirði á tímabilinu er þó meiri, eða 11,8%. bjarni@mbl.is Eign sjóða eykst ÍSLENDINGAR standa frammi fyrir vali milli tveggja kosta. Annars vegar að verja stórt og umfangs- mikið ríki og velferðarkerfi, fjár- magnað með hærri sköttum. Hins vegar að draga úr opinberum út- gjöldum og minnka velferðarkerfið. Fyrri kosturinn þýðir auknar líkur á langvarandi kreppu og greiðslufalli ríkisins, en sá síðari meiri hagvöxt og minni kreppu. „Velferð Íslands og sjálfsvirðing þjóðarinnar kalla á seinni kostinn, þótt hann sé ekki sársaukalaus,“ sagði Ragnar Árnason, hagfræðipró- fessor á skattadegi Deloitte í gær. Ragnar sagði stöðu þjóðarbúsins og ríkissjóðs slíka að eigi Íslend- ingar að komast upp úr þeirri lægð sem við erum í nú, er þörf á hraust- legum hagvexti næstu ár. Sagði Ragnar að nú stæði yfir dýpsta kreppa frá stofnun lýðveld- isins, hér hefðu brunnið upp miklar eignir, heill geiri atvinnulífsins væri nánast horfinn, skuldir þjóðarbúsins gríðarháar og aðgengi að erlendu lánsfé væri nær ekkert. Talsverð hætta á greiðsluþroti Á meðan einstaklingar og fyr- irtæki aðlöguðu sig að þessari breyttu stöðu myndi eftirspurn eftir vörum og þjónustu dragast mjög saman og umsvif í hagkerfinu sömu- leiðis. Vextir og afborganir ríkisins næstu fimmtán ár yrðu á bilinu 50- 100 milljarðar króna og þetta fé yrði ekki notað í annað á meðan. Eft- irspurn ríkisins eftir vörum og þjón- ustu myndi því dragast saman. Þessir þættir, ónóg innlend eft- irspurn og takmörkuð fram- kvæmdageta, væru efniviður í lang- varandi kreppu á Íslandi. Það þýddi aftur að æ erfiðara yrði fyrir ríkið að afla tekna og því talsverð hætta á greiðsluþroti ríkisins. Til að nægilegur hagvöxtur verði á næstu árum segir Ragnar að fjár- festa þurfi í fjármunum og mann- auði. Þá verði að nýta fram- leiðsluþætti, eins og vinnuafl, eins og unnt er. Til að hægt sé að ná þessu markmiði þurfa fjárfestingar að verða arðvænlegri og vinna fólks ábatasamari. Þetta verði aðeins gert með því að lækka skatta og vexti. Ragnar segir að staða ríkissjóðs sé svo slæm að ef til vill sé ekki svig- rúm til skattalækkana, en óráð sé við núverandi aðstæður að hækka skatta. Hallarekstur verði að brúa með niðurskurði útgjalda. Undan- farin ár hafi útgjöld hins opinbera aukist mjög hratt og því ætti að vera svigrúm til niðurskurðar þar. En einnig verði því miður að skera niður í velferðarmálum. „Óhjákvæmilegt er að minnka velferðarkerfið. Við höfum einfaldlega ekki efni á því lengur að reka það kerfi sem til stað- ar er. Slíkan niðurskurð verður að fara í á eins mannúðlegan og heiðar- legan hátt og unnt er, en hann er nauðsynlegur.“ bjarni@mbl.is Löng kreppa og greiðsluþrot Nauðsynlegt að skera niður hjá ríkinu Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is SAMKVÆMT heimildum Morg- unblaðsins mun Pálmi Haraldsson leggja 800 milljónir inn í rekstur Ferðaskrifstofu Íslands (FÍ) í kjölfar endurskipulagningar félagsins. FÍ lenti í miklum rekstrarvandræðum í september 2008 og fékk tæplega hálf- an milljarð króna lánaðan hjá Lands- bankanum, sem varð NBI eftir bankahrun, fram að áramótum til að halda rekstrinum áfram. Skuldir FÍ gagnvart NBI í ársbyrjun 2009 eru taldar hafa numið um 1,3 milljörðum króna. Ríflega þriðjungi þeirrar skuldar var síðar breytt yfir í hlutafé, sem verður fært niður í end- urskipulagningunni. Ávinningur bankans af endur- skipulagningunni verður því sá að einhver hluti eig- infjárframlags Pálma inn í FÍ mun renna til bankans, og tap af viðskiptum við ferðaskrifstofuna því einhverju minna. Haft var eftir Pálma Haraldssyni í Morgunblaðinu í gær að hann teldi sig njóta trausts og væri þar af leiðandi fær um að út- vega fé til að setja inn í rekstur FÍ. Það er þó ekki hluti af samkomulagi við Feng um endurskipulagningu að félagið fái lán frá NBI til að leggja inn í rekstur ferðaskrifstofunnar, heldur að féð komi annars staðar frá. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að verðmat Saga Capital á Ice- land Express og FÍ væri 800 millj- ónir. Það verðmat tók hins vegar mið af 600 milljóna hlutafjáraukningu til viðbótar þeirri aukningu sem varð í nóvember 2008. Eftir því sem næst verður komist hefur þó ekki orðið af þeirri hlutafjáraukningu. Í nóvember 2008 var hlutafé Iceland Express auk- ið um 300 milljónir, en þar að auki lán- aði Fengur félaginu 300 milljónir. Þriðjungur þess láns hefur verið borg- aður til baka, en samkvæmt verðmat- inu voru 200 milljóna króna vaxtaber- andi skuldir inni í Iceland Express á þeim tíma sem verðmatið var unnið. Var þar tekið mið af ársreikningi fé- lagsins fyrir árið 2008, sem hefur þó ekki borist Ársreikningaskrá. Í þeim ársreikningnum kemur fram að Ice- land Express tapaði hundruðum millj- óna á árinu. Setur tæplega 800 milljónir inn í Ferðaskrifstofu Íslands Pálmi Haraldsson Í HNOTSKURN »Pálmi Haraldsson munsetja 800 milljónir króna í rekstur Ferðaskrifstofu Ís- lands. »Ferðaskrifstofan skuldaðiLandsbankanum 1,3 millj- arða króna í ársbyrjun 2009. »Nú er verið að endur-skipuleggja rekstur fyrir- tækisins. Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is KÍNVERSKI seðlabankinn hækkar bindi- skyldu banka þar í landi frá og með næsta mánudegi. Um er að ræða 50 punkta hækkun og verður því bindiskyldan 16% fyrir stærstu banka landsins. Er gripið til þessara aðgerða til að sporna gegn ofþenslu hagkerfisins en mikil útlánaaukning hefur verið í Kína að undanförnu, meðal annars vegna stjórnvaldsaðgerða í efna- hagsmálum. Ennfremur segir Bloomberg-fréttaveitan frá því að sérfræðingar búi sig undir að seðla- bankinn hækki stýrivexti á fyrsta fjórðungi. Dow Jones-fréttaveitan leiðir líkum að því að hækkun bindi- skyldu, ásamt hækkun stýrivaxta, kunni að vera undanfari þess að stjórnvöld leyfi gengi júansins að styrkjast gagnvart Bandaríkjadal. Stjórnvöld í Washington hafa lagt hart að þeim að gera einmitt það þannig að viðskipti á milli landanna færist nær því að teljast í jafnvægi. Sem kunnugt er hefur gríðarlega mikill útflutningur kínverska hag- kerfisins á móti viðvarandi við- skiptahalla Bandaríkjanna verið talinn helsta rót þess hnattræna ójafnvægis sem ríkt hefur í alþjóða- viðskiptum frá og með aldamótum. Umskiptin á hlutabréfamörk- uðum frá því í mars hafa meðal ann- ars byggst á væntingum um að slag- kraftur kínverska hagkerfisins megni að smita út frá sér. Hagvöxt- urinn í Kína virðist nú meiri en stjórnvöld telja sig ráða við vegna ótta við að verðbólga brjótist fram líkt og hún gerði fyrir tveimur ár- um. Þannig má gera ráð fyrir því að aðhaldsaðgerðir ráðamanna í Pek- ing hafi umtalsverð áhrif á þær væntingar sem hafa ríkt á mörk- uðum að undanförnu. Bindiskylda hækkuð Kínversk stjórnvöld bregðast við þenslu NÝIR eigendur hafa tekið við rekstri Rýmis-Ofnasmiðjunnar, en þeir eru Thomas Möller og Haukur Þór Hauksson. Thomas hefur tekið við sem framkvæmdastjóri fyrir- tækisins og Haukur sem stjórnar- formaður. Thomas er hagverkfræð- ingur að mennt og Haukur Þór rekstrarhagfræðingur, en báðir eru þeir með MBA-gráður. Rými-Ofnasmiðjan hefur fram- leitt og selt lagerkerfi og verslunar- innréttingar fyrir íslensk fyrirtæki í hálfa öld. Í tilkynningu segir að núverandi starfsemi félagsins verði efld og áhersla aukin á faglega ráð- gjöf, hátt þjónustustig og heildar- lausnir fyrir viðskiptavini. Nýir eigend- ur að Rými Tryggingafyrirtækið Sjóvá verður sett í opið söluferli á næstu dögum samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Fyrirtækjasvið Íslands- banka annast sölu fyrirtækisins og auglýsing vegna sölunnar verður birt innan tíðar. Íslandsbanki gerir ráð fyrir að taka við tilboðum í fyrirtækið um miðjan mánuðinn. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins verða engar takmarkanir á sölunni. Þannig hyggst íslenska rík- ið ekki halda eftir hluta í fyrirtæk- inu. Aðalmarkmið sölunnar er að hámarka virði fyrirtækisins og ná til baka þeim fjármunum sem ríkið lagði inn í Sjóvá þegar það lenti í alvarlegum vandræðum vegna veðsetn- ingar bótasjóðs fyrirtækisins. Ríkið lagði Sjóvá á annan tug milljarða til að styrkja eigin- fjárstöðu þess. Eftir því sem næst verður komist var um að ræða skuldabréf með ríkisábyrgð, auk skuldabréfa útgefinna af sveit- arfélögum. thg@mbl.is Sjóvá sett í opið söluferli á næstunni VELDU RÉTTA UMBOÐSMANNINN Fræðslufundur og viðtöl 15. janúar PI PA R\ TB W A • SÍ A • 1 0 0 1 0 0 Útflutningsráð stendur fyrir fræðslufundi um val og stjórnun umboðsmanna og dreifingaraðila á útflutningsmörkuðum, á Hilton Reykjavík Nordica, föstudaginn 15. janúar, kl. 8.30–12.00. Leiðbeinandi er Mark Dodsworth, framkvæmdastjóri Europartnerships ltd., sem hefur verið ráðgjafi íslenskra fyrirtækja síðastliðin 7 ár. Skilgreining og mikilvægi umboðsmanna og dreifingaraðila Að finna og velja umboðsmenn og dreifingaraðila Mikilvægi löglegra samninga Hvatning, eftirlit og mat á frammistöðu umboðsmanna og dreifingaraðila Fundurinn er ætlaður fulltrúum fyrirtækja sem eru að leita að eða hefja samstarf við umboðsmenn og dreifingaraðila eða vilja styrkja og efla samstarf sitt við núverandi aðila. Viðtöl Mark verður einnig með viðtöl eftir hádegi 15. janúar. Þar geta lítil og meðalstór fyrirtæki fengið upplýsingar um möguleg tækifæri og aðstoð við að finna og hefja samstarf við umboðsmenn og dreifingaraðila í Evrópu og Bandaríkjunum. Skráning á fræðslufund og í viðtöl fer fram í síma 511 4000 eða með tölvupósti, utflutningsrad@utflutningsrad.is. Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson, bjorn@utflutningsrad.is, og Hermann Ottósson, hermann@utflutningsrad.is. Helstu atriði fundarins eru: Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.