Morgunblaðið - 13.01.2010, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
Skammdegi í Reykjavík Þó dag sé tekið að lengja nær sólin ekki almennilega að hita upp umhverfið. Hún hækkar
samt stöðugt á lofti og boðar þannig sumaryl, en Leifur heppni nýtir hvern geisla og baðar sig í vetrarsólinni.
Heiddi
Í KJÖLFAR bankahrunsins
svonefnda urðu raddir þeirra er
vilja endurskoða fulltrúa-
lýðræðið og stjórnarskrána
áberandi í þjóðfélagsumræðunni
og síðar hafa margir málsmet-
andi menn komist að þeirri nið-
urstöðu að efla beri beint lýðræði
og þátttöku almennings við
ákvörðun mikilvægra þjóðfélags-
mála. Umræðan um Icesave tók
mestan tíma Alþingis á síðasta
ári, enda hafa margir sagt þetta
eitt mikilvægasta þingmál í sögu lýðveldisins.
Fjölmargir vildu leyfa þjóðinni að tjá sig um
ábyrgð ríkisins á skuldum föllnu bankanna og
meðal annars stóð InDefence hópurinn fyrir
undirskriftasöfnun á netinu, þar sem forsetinn
var hvattur til að synja lögunum staðfestingar.
Við ofangreindar aðstæður fæddist hug-
myndin að kerfinu ÍslendingaVal, þ.e. að nýta
netið og almenna upplýsingatækni til þess að
leyfa öllum þeim sem hafa aðgang að einka-
banka að tjá sig á einfaldan, hraðvirkan og
öruggan hátt. Vefmiðillinn Eyjan varð fyrst til
að nýta sér ÍslendingaVal og stóð fyrir „Þjóð-
arkosningu“ um Icesave lögin. Öllum kjör-
gengum Íslendingum var sendur aðgangskóði
að ÍslendingaVali í heimabankann og búist var
við því að þátttakan endurspeglaði áhuga þjóð-
arinnar á beinu lýðræði. Þegar upp var staðið
skráðu 62.000 manns sig á lista InDefence en
þátttakendur í kosningu Eyjunnar voru tæp-
lega 7.500. Í ljósi þess verður þessi frumraun
beinna netkosninga að teljast vonbrigði. Í kjöl-
far þess að forseti Íslands synjaði
lögunum og vísaði til þjóðarinnar
þykir mér ástæða til að fjalla um
möguleikann á rafrænum þjóð-
aratkvæðagreiðslum. Þó svo að
Alþingi hafi sett sérstök lög um
komandi þjóðaratkvæðagreiðslu
er ljóst að setja þarf almenn lög
um þjóðaratkvæðagreiðslur,
hvort sem stjórnarskránni verður
breytt eður ei.
Hér verður sjónum beint að
framkvæmd netkosninga og raf-
rænna undirskriftasafnana. Við
margumrædda undirskriftasöfn-
un á vefsíðu InDefence var engin krafa gerð til
auðkenningar þátttakenda enda ku Mikki Mús
hafa tekið þátt í henni! Þar var því greinilega
minni krafa um trúverðuleika en í sambæri-
legum undirskriftasöfnunum þar sem stuðst er
við eiginhandaráritanir á pappír, þó svo að í
raun séu þær líklegast aldrei skoðaðar til að
sannreyna þátttöku. Í netkosningu Reykjavík-
urborgar um forgangsröðun verkefna í hverf-
um borgarinnar var sömuleiðis ekki farið fram
á auðkenningu kjósenda og kjósendum í sjálfs-
vald sett að gefa upp rétta kennitölu og ákveða
hversu oft þeir kysu. Þessum málum hefur þó
verið betur háttað í einstaka útfærslum, t.d. í
prófkjörum stjórnmálaflokkanna og hjá sum-
um stéttarfélögum þar sem auðkennum hefur
t.d. verið dreift í gegnum heimabanka. Án þess
að reyna að gera heildarúttekt á útfærslum ís-
lenskra netkosninga, leyfi ég mér að fullyrða
að í flestum tilfellum standist frágangur þeirra
ekki formlega öryggisúttekt á nafnleynd og
áreiðanleika. Oftar en ekki er svonefndum
kerfisstjórum treyst fyrir rekstri kerfanna og
erfitt er fyrir utanaðkomandi að sannreyna
vinnubrögð þeirra eða öllu heldur frávik frá
vinnuferlum þeirra.
Í kosningunni um staðsetningu Reykjavík-
urflugvallar var notast við blandaða lausn, þ.e.
auðkenning kjósenda var með hefðbundnum
hætti en þeim var úthlutað sérstöku kjörkorti
til þess að tryggja nafnleynd við talningu at-
kvæða sem framkvæmd var á rafrænan hátt.
Undirrituðum hefur ekki tekist að afla sér
upplýsinga um það hvernig staðið var að ör-
yggismálum við talningu atkvæða eða hversu
gagnsætt öryggið var.
Við uppsetningu á kosningu Eyjunnar, sem
framkvæmd var í gegnum ÍslendingaVal, var
hugað sérstaklega að öryggismálum og
gagnsæi kerfisins. Vefþjónn ÍslendingaVals
sér um auðkenningu þátttakenda fyrir sjálf-
stæðan kosningarvef, þar sem atkvæði eru
skráð. Nafnleyndin er hins vegar útfærð með
sérstöku nafnleyndarkerfi, svipuðu því sem Ís-
lensk erfðagreining hefur keyrt samfellt í yfir
10 ár fyrir nafnleyndarvinnuferli sitt. Nafn-
leyndarkerfið er sett upp með þeim hætti að
enginn stakur maður getur haft áhrif á virkni
þess. Til þess þarf samsæri fjölda einstaklinga.
Kerfið sér um að útbúa nafnlausa kjörseðla
sem veita kjósanda heimild til að greiða at-
kvæði á viðkomandi kosningarvef. Þannig
tryggir kerfið ekki einungis nafnleynd kjós-
andans heldur einnig að hver einstaklingur
geti aðeins kosið einu sinni þar sem að kerfið
varðveitir á öruggan hátt nokkurs konar nafn-
lausa kjörskrá. Fjöldi atkvæða sem skráð eru
á kosningarvefnum verður að stemma við
fjölda útgefinna kjörseðla í nafnlausu kjör-
skránni og engir kerfisstjórar geta haft áhrif á
þá afstemmingu. Þetta er fullkomlega sam-
bærilegt við afstemmingu á atkvæðaseðlum og
kjörskrám í núverandi fyrirkomulagi Alþing-
iskosninga. Rafrænu aðferðina tekur hins veg-
ar aðeins augnablik að framkvæma á meðan
hefðbundna leiðin er bæði mannfrek og tíma-
frek. Einn mikilvægasti kostur ÍslendingaVals
er að kerfið getur með einni uppsetningu á
nafnleyndarkerfinu afgreitt fjölda kosninga á
ólíkum kosningarvefþjónum. Í kosningu Eyj-
unnar var einnig sú leið farin að afhenda kjós-
endum rafræna kvittun með atkvæðinu sínu.
Þegar kosningu var lokað gátu kjósendur sjálf-
ir skoðað öll greidd atkvæði og staðfest að at-
kvæði með þeirra svarlykli væri rétt skráð.
Auðvelt er að sýna fram á að ef t.d. einungis
1% atkvæða er breytt, þá þarf ekki nema um
300 einstaklinga til að sannreyna atkvæði sitt
til þess að um 95% líkur séu á því að upp kom-
ist um slíkt kosningarsvindl. Svona töl-
fræðimat tekur hins vegar aðeins til réttilega
greiddra atkvæða og nær ekki að koma í veg
fyrir ólögmæt viðbótaratkvæði.
Í seinni hluta þessarar greinar verður sýnt
hvernig sníða má ofangreinda hnökra af raf-
rænum netkosningum, þær bornar saman við
hefðbundnar þingkosningar og fjallað um það
hvernig nýta megi netkosningar við þjóðar-
atkvæðagreiðslur.
Eftir Hákon Guðbjartsson »Rafrænu aðferðina tekur
hins vegar aðeins augna-
blik að framkvæma á meðan
hefðbundna leiðin er bæði
mannfrek og tímafrek.
Hákon Guðbjartsson
Rafrænar þjóðaratkvæðagreiðslur
Höfundur er frkvstj. upplýsingatæknisviðs
Íslenskrar erfðagreiningar ehf.
HINN 5. janúar sl.
var bein útsending í
ríkissjónvarpinu frá
blaðamannafundi á
Bessastöðum. Að hon-
um loknum hafði Bogi
Ágústsson fengið þá
Eirík Tómasson
lagaprófessor og
Gunnar Helga Krist-
insson stjórnmála-
fræðing til að túlka
áhrif ákvörðunar forsetans.
Beindist talið fljótt að hugs-
anlegri þjóðaratkvæðagreiðslu
þar sem Icesave-lögin voru við
ákvörðun forsetans sett í það
stjórnskipulega ferli. Það sem
vakti athygli mína var þetta: Ei-
ríkur Tómasson upplýsti að hann
hefði komið að málinu sem ráð-
gjafi ríkisstjórnarinnar og sem
slíkur fyndist honum skynsamleg-
ast að draga lögin til baka í stað
þess að láta þjóðina kjósa um
þau. Taldi Eiríkur að ef lögin
yrðu samþykkt í kosningu meðal
þjóðarinnar myndi staða Hollend-
inga og Breta styrkjast til muna,
því vonir stæðu til að tíminn
myndi vinna með okkur og taka
upp samninginn við bresk og hol-
lensk stjórnvöld með milligöngu
Evrópusambandsins. Því væri sá
naumi meirihluti sem varð á þingi
hagfelldari íslensku þjóðinni.
Þegar þarna var komið í viðtal-
inu gekk spyrill á Eirík og vildi fá
skilmerkari útskýringar. Eiríkur
svarar: Bretar og Hollendingar
„… gætu þá t.d. vísað til þess að
meirihluti þjóðarinnar, t.d. ef ein-
hver framtíðarríkisstjórn sneri
sér til þeirra og vildi nú fá þess-
um skilmálum breytt, og þá gætu
Bretar og Hollendingar einfald-
lega sagt, ja íslenska þjóðin hefur
talað, hún hefur sætt sig við
þessa skilmála, vegna þess að í
þessu máli er – og það veit ég, þó
að ég sé bundinn trúnaði, að
verulegu leyti að því er þau atriði
varðar, að í þessu máli eins og
öllum milliríkjadeilum
gerast hlutir, og eru
hlutir undir sem ekki
er hægt að draga
fram í dagsljósið. Og
ég þykist alveg vita,
og ég er ekki að
ljóstra upp neinu
leyndarmáli, að ef að
tíminn hefur unnið
með okkur, vegna
þess að þetta mál er
ekki bara lagalegs eðl-
is heldur ekki síður
pólitísks eðlis, að þá
er möguleiki þrátt fyrir þessa stífu
skilmála að taka þá upp og menn
geta alltaf samið upp á nýtt ef báð-
ir aðilar samþykkja og það getur
verið að það yrði þrýstingur á
Breta og Hollendinga að gera það
þannig.“
Óskiljanlegt er að fjölmiðlar
skuli ekki hafa tekið þessi ummæli
upp og spurt fjármálaráðherra
hvaða samkomulag er undirliggj-
andi og út á hvað það samkomulag
gengur. Er búið að lofa upptöku
Icesave-samninganna ef við göng-
um í Evrópusambandið? Ef svo er
– þá ber stjórnvöldum að greina
frá því opinberlega. Ef verið er að
vísa í eitthvert annað undirliggj-
andi samkomulag er ekki síður
mikilvægt að stjórnvöld greini frá
því út á hvað það gengur.
Hvað er undirliggj-
andi að mati Eiríks
Tómassonar?
Eftir Vigdísi
Hauksdóttur
Vigdís Hauksdóttir
»Eiríkur Tómasson
upplýsti að hann
hefði komið að málinu
sem ráðgjafi ríkisstjórn-
arinnar og sem slíkur
fyndist honum skyn-
samlegast að draga lög-
in til baka í stað þess að
láta þjóðina kjósa um
þau.
Höfundur er lögfræðingur og
þingmaður Framsóknarflokksins
í Reykjavík.