Morgunblaðið - 13.01.2010, Síða 22

Morgunblaðið - 13.01.2010, Síða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010 Þitt sæti er autt, það fyllir enginn framar, finn ég nú best, hvað átt ég hef og misst. Minningar gleðja mig þá sorgin lamar, því margt hefur gerst frá því við sáumst fyrst. (Guðmundína Sigurrós Guðmundsdóttir.) Mér kemur í huga saknaðarljóð ömmu minnar, Sigurrósar Guð- mundsdóttur, sem hún orti til minn- ingar um afa minn, Þórarin Ólafs- son, fyrir röskum fimmtíu árum, er ég nú kveð mína elskulegu mág- konu Ástu Gísladóttur ljósmóður, sem lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarð- ar 22. desember sl. Báðar voru þær einstakar manneskjur, áttu það sameiginlegt að vera fæddar í eyj- um Breiðafjarðar og voru eyjarnar þeim afar kærar. Ástu kynntist ég fyrst fyrir fjörutíu og átta árum er hún bast fjölskyldu minni böndum sem kærasta og síðar eiginkona bróður míns, móðir fimm bræðra- barna minna og einn af mínum tryggustu vinum. Fyrir það ber nú að þakka. Það var mikið lífslán að eiga hana Ástu að, hún hafði þannig nærveru í hógværð sinni og lítillæti, sem voru hennar aðalsmerki í gegnum lífið. Hún var slíkur gleðigjafi allra þeirra sem hana umgengust, innan heimilis og utan, enda ljósmóðir 700 barna á sínum farsæla ferli í því starfi. Að eiga stund með Ástu yfir kaffibolla og hlusta á hana segja frá var oft eftirminnilegt, svo vel sagði hún frá því sem fyrir augu og eyru bar er hún og Sverrir voru að koma úr ferðalagi um landið eftir vel heppnað sumarleyfi. Þar fékk hið smæsta stóran sess svo eftirminni- legt var, það var hennar háttur. Ásta mín gat verið hnyttin og gamansöm í tilsvörum ef tilefni gafst og er mér minnisstætt þegar faðir minn spurði hvernig væri með þennan nýja sið, sem þá var að verða til, að feður væru viðstaddir fæðingu barna sinna. Tíu tækifæri hafði hann fengið til að upplifa slíkt, en það einfaldlega tíðkaðist ekki þegar móðir mín var að koma okkur systkinunum í heiminn. Svar- aði þá Ásta eitthvað á þessa leið: „Þeir eru ekki fyrir mér, blessaðir mennirnir. Ég vinn mín störf eins og ég er vön. En ég held að ég brjóti engan trúnað þó að ég segi að það megi ætla að þeim finnist Hafnarmúlinn fallegur.“ Þig kveðja og þakka, ástvinirnir allir, umhyggja þín, hún var svo dásamleg. Nú er þín leið um himins dýrðar hallir, hjartkærir synir fara um sama veg. (Guðmundína Sigurrós Guðmundsdóttir.) Ég og fjölskylda mín vottum börnum Ástu, fjölskyldum þeirra, sem og öðrum ástvinum, einlæga samúð. Og megi minning um ein- staka manneskju vera ljós á lífsins vegi. Hjörleifur. Ég stend við stofugluggann í Hliðskjálf, horfi á konu ganga inn götuna. Hún er smávaxin, gengur hratt, klædd kápu, í háhæluðum skóm, ber brúna leðurtösku. Þetta mun vera nýja ljósmóðirin. Hún er á leið inn á Björg til Aðalheiðar frænku sinnar þar sem hún er til húsa. Sverrir bróðir minn kom líka auga á þessa léttstígu konu, hún varð eiginkona hans. Þeirra fyrsta heimili var í risíbúð í Merkisteini. Þar fæddist fyrsta barn þeirra, Guðmundur Lúther. Ásta Sigríður Gísladóttir ✝ Ásta SigríðurGísladóttir fædd- ist í Skáleyjum á Breiðafirði 17. des- ember 1935. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Pat- reksfirði 22. desem- ber sl. Útför Ástu fór fram frá Patreks- fjarðarkirkju 9. jan- úar sl. Taugatrekktir verð- andi feður sem áttu erindi við ljósmóður- ina hentu smásteinum í svefnherbergis- gluggann til að vekja, ljósmóðirin hafði ekki síma, það þurfti ekki þá. Sumarið 1963 gengu þau í hjóna- band útí Skáleyjum, á æskustöðvum Ástu. Það var glaðasólskin, ekki skýhnoðri á himni. Gömul speki segir að hjónaband verði í samræmi við veður á brúðkaupsdag, það gekk eftir hjá þeim Ástu og Sverri. Ári seinna fluttu þau að Stekkum 9, keyptu þar neðri hæð. Það var hag- anleg, snotur íbúð. Sverrir smíðaði og málaði og Ásta saumaði gard- ínur, saman gerðu þau fallegt heim- ili. Staðsetningin var sérlega hent- ug fyrir þá sem þurftu að ræsa ljósmóðurina. Þeir gátu einfaldlega staðið við svefnherbergisgluggann og kallað „Ásta, getur þú komið, hún er orðin veik!“ Hún var ekki svifasein ljósmóðirin, klæddist í snatri, greip brúnu leðurtöskuna, smástíg, en gekk mjög hratt, það var hennar einkenni. Þær höfðu orð á því stúlkurnar á sjúkrahúsinu að það færi ekkert á milli mála hve- nær Ásta væri komin í hús, það var ekki hávaði og fyrirferð heldur göngulagið hennar, þær þekktu það allar. Á Stekkum 9 fæddust svo Sigurborg, Eyjólfur Breiðfjörð og Heiður Þórunn. Húsnæðið var sprungið utan af fjölskyldunni, það varð að stækka. Hafist var handa við byggingu einbýlishúss að Brunnum 25. Þar fæddist yngsta barnið, Gísli Einar. Húsið byggði Sverrir að langmestu leyti einn með fullri vinnu. Hann var atorkusamur, hann bróðir minn, og aldrei neitt hangs við þau verkefni sem biðu. Í nýja húsið fluttu þau svo, það varð heimili þeirra hjóna til æviloka. Ég var sjálfskipuð barnapía hjá þeim, átti rúmið mitt hjá þeim því eins og gefur að skilja þá vinnur ljósmóðir ekki frá 9 til 5. Fyrir utan það að hafa eignast þessa ljómandi mágkonu þá var það ómældur kost- ur að hún var svo fótsmá að ég passaði í alla hælaháu skóna henn- ar, þeir voru mikið mátaðir og spásserað í þeim um alla íbúð í mömmu- og dúkkuleik þar sem meðal annars var notast við dúkku- húsgögn sem Ásta átti frá því að hún var barn. Þetta voru húsgögn sem bræður hennar bjuggu til m. a. úr eldspýtnastokkum og smástokk- um, klædd með litskrúðugum papp- ír. Þetta voru mublur. Frásagnarhæfileiki Ástu var ein- stakur. Hún gat sett upp heilu leik- þættina í frásögnum sínum og allir viðstaddir velst um af hlátri. Gott geðslag hafði hún, kom sér vel þeg- ar eldfjallið bróðir minn gaus á stundum. Hún var miklum mann- kostum búin, hún Ásta. Ef mann- kostir mældust í hæð þá hefði hún verið mjög hávaxin. Börnum Ástu og Sverris og fjöl- skyldum þeirra votta ég innilega samúð. Sigríður Guðmundsdóttir (Siddý). Ásta Gísla frænka mín er látin, líkaminn orðinn lasburða og megn- aði ekki lengur að vera til. Við vor- um systkinadætur en kynntumst ekki að ráði fyrr en í ljósmæðra- námi fyrir 50 árum. Þá deildum við saman herbergi í heimavistinni og betri herbergisfélaga hefði ég ekki getað fengið. Ásta var skynsöm, glaðvær, skemmtileg og þægileg í allri um- gengni. Einnig mjög umburðarlynd. Hún var fáeinum árum eldri en ég og þroskaðri. Margoft fjasaði ég um eitt og annað – yfirleitt ekki af neinni rökvísi. Ásta tók stundum undir í þessu fjasi mínu en það kom líka fyrir að hún fékk nóg af þessari málóðu frænku sinni og lallaði yfir til annarra skólasystra. Þetta voru mjög skýr skilaboð sem ég hafði lúmskt gaman af þó ég hafi ekki bætt mig hót. Þegar Ásta var á 17. ári var hún viðstödd fæðingu systurdóttur sinn- ar og þetta var henni slík opinber- un á lífsundri að hún ákvað að verða ljósmóðir. Þá kynntist hún líka þeirri natni sem sængurkona þarfnast og fellur vel að þeirri góðu nærveru sem Ástu var svo eiginleg. Um þessa hugsjón hennar vissi ég ekki fyrr en löngu síðar, hún var ekki að flíka mörgu úr sínu hug- skoti og ég svo sjálfmiðuð að ég var ekkert að grennslast um sjónarmið annarra. Ásta var ljósmóðir af lífi og sál. Sjálf hafði hún fæst orð um það, en orðsporið sagði sitt. Hún bar með sér traust, æðruleysi og umhyggju fyrir sínum skjólstæðingum. Lækn- um, öðru samstarfsfólki og fjöl- skyldum í Patreksfjarðarumdæmi var þetta ljóst. Það var æðruleysið sem hjálpaði Ástu gegnum áföll, því hún slapp ekki við þau á lífsleiðinni. Sonur hennar lézt í bílslysi rúmlega tví- tugur að aldri og eiginmann sinn missti hún langt um aldur fram eft- ir hörð veikindi. Sjálfsagt hefur þessi hlýja tilfinninganæma kona átt bágt, en hún bugaðist ekki. Áfram hélt hún sínu lífsstarfi við að hlúa að öðrum. Sjálfri sér sinnti hún ekki af þeirri kostgæfni. Eitt sem mörgum er minnisstætt við Ástu var hennar frásagnar- færni. Hún hafði gott vald á máli eins og sú fjölskylda sem hún ólst upp í og fór á kostum þegar hún sagði frá. Þarna hjálpaðist að góð- viljað skopskyn, góð eftirtekt á um- hverfi og mannlega hegðun. Það var hrein unun að hlusta á hana segja frá. Blæbrigðin í röddinni gerðu sitt. Stundum hljómuðu eins atkvæðis orð eins og heil setning. Og svo fylgdi stuttur, hlýr og glað- ur hlátur með öðru hverju. Mikið lifandis ósköp er ég þakk- lát fyrir það sem Ásta fænka mín gaf mér með tilveru sinni. Útgeisl- andi notaleg nærveru hennar færði mér vellíðan. Minningarnar skjótast oft upp úr hugskotinu – stundum þegar minnst varir – ylja mér alltaf og gjarnan fylgir ómur af þessum stutta hlýja hlátri. Þetta er fjár- sjóður í mínum „Minninganna akri“. Ég og fjölskylda mín sendum börnum Ástu, barnabörnum, barna- barnabörnum og öllum nákomnum ættingjum hennar innilegustu sam- úðarkveðjur og biðjum þeim allrar blessunar um ókomin ár. María Björnsdóttir. Mig langar í fáum orðum að minnast merkrar konu sem borin er til hinstu hvílu í dag, Ástu Sigríðar Gísladóttur. Ljósmóðir, fallegra starfsheiti er ekki til í okkar tungu og þá nafnbót bar Ásta með sóma. Það var bjarta júnínótt vestur á Patreksfirði sem ég kom í heiminn, sú sem tók á móti mér var Ásta. Hún var ósérhlífin dugnaðarkona en jafnframt svo nærgætin og ljúf. Leiðir okkar Ástu áttu eftir að liggja samhliða fram á fullorðinsár mín. Ásta var starfandi ljósmóðir á Patreksfirði í liðlega 44 ár og tók á móti um 700 börnum á sínum far- sæla ferli og eiga því margir Ástu að þakka hennar óeigingjarna starf. Ásta var gift Sverri B. Guð- mundssyni vélgæslumanni og eign- uðust þau fimm börn. Heimili þeirra Sverris fyrstu árin var á Stekkum 9 en ég og fjölskylda mín bjuggum í næsta húsi, Stekkum 7. Samgangur var mikill á milli fjöl- skyldnanna og við krakkarnir lék- um okkur mikið saman. Eyjólfur Breiðfjörð var sonur þeirra, tveim- ur árum yngri en ég, með okkur Eyja tókst mikil vinátta og vorum við heimagangar hvor hjá öðrum. Sú vinátta hélst allt þar til Eyjólfur lést í bílslysi aðeins 21 árs gamall árið 1989. Margs er að minnast og það var alltaf notalegt heima hjá Ástu og ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, HAUKUR BJARMI ÓSKARSSON rafvirki, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hring- braut mánudaginn 11. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður Sigurðardóttir, Óskar Baldvin Hauksson, Inga Jóna Friðgeirsdóttir, Sigurður Ferdinandsson, Guðrún Matthíasdóttir, Reynir Jóhannsson, Inga Rún Garðarsdóttir, börn og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, SIGRÍÐUR SÆMUNDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skjóli, Reykjavík, lést miðvikudaginn 23. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 3. hæðar hjúkrunarheimilinu Skjóli, fyrir hlýju og góða umönnun. Sæmundur Árnason, Guðríður Árnadóttir, Elísabet Árnadóttir, Svava Árnadóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, LÁRUS ÞÓRARINSSON fyrrv. flugumferðarstjóri, Hverafold 19, Reykjavík, andaðist á heimili sínu laugardaginn 9. janúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 15. janúar kl. 15.00. Kristín Lárusdóttir, Ásthildur Lárusdóttir, Erna Lárusdóttir, Einar Þór Lárusson, Álfheiður K. Lárusdóttir, Kristín Rúna Lárusdóttir, tengdabörn, afabörn, langafabörn og langalangafabarn. Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, KRISTINN FREYR ARASON, Stekkjarhvammi 12, Hafnarfirði, lést af slysförum fimmtudaginn 7. janúar. Ari Óskar Jóhannesson, Ólöf Sigurlín Kristinsdóttir, Steinunn Aradóttir, Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÚRSÚLA HERMANNSSON, andaðist á Droplaugarstöðum sunnudaginn 27. desember. Laugardaginn 9. janúar var sálumessa sungin í Kristskirkju, Landakoti og samdægurs var hún jarð- sett á Hvammi í Norðurárdal, Borgarfirði, við hliðina á eiginmanni sínum Svavari Hermannssyni, efnaverkfræðingi. Að ósk hinnar látnu fór útförin fram í kyrrþey. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug. Ennfremur þökkum við starfsfólki Droplaugarstaða fyrir einstaka umönnun. Þeim sem vilja minnast Úrsúlu er bent á Minningarsjóð Droplaugarstaða í síma 414 9500. Sólveig. A. Svavarsdóttir, Bernhard Svavarsson, Ólöf Unnur Sigurðardóttir, Friðrik Elí Bernhardsson, Tómas Karl Bernhardsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.