Morgunblaðið - 13.01.2010, Síða 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
Við reynum að fara
yfir allan skalann, í
boði eru bæði vel listrænar
myndir og svo fjölskyldu-
og afþreyingarmyndir 32
»
LJÁÐU okkur eyra“ er heiti
raðar hádegistónleika sem
haldnir verða næstu 13 mið-
vikudaga í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Fyrstu tónleikar
raðarinnar verða í hádeginu í
dag. Tónleikarnir hefjast kl.
12.15 og standa í 30 mínútur.
Uphafsmaður þessarar tón-
leikaraðar er Gerrit Schuil,
píanóleikari og hljómsveitar-
stjóri, og fær hann til sín gest á hverjum tón-
leikum sem er einskonar leynigestur, þ.e. enginn
fær að vita fyrirfram hver gesturinn verður. Allir
gestirnir sem koma fram eru í fremstu röð ís-
lenskra tónlistarmanna.
Aðgangseyrir er enginn en frjáls framlög þegin.
Tónlist
„Ljáðu okkur eyra“
í Fríkirkjunni
Fríkirkjan
NÚ fer hver að verða síðastur
til að sjá sýningu á ljósmyndum
André Kertész í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, en
hann var óumdeilanlega einn
mesti meistari ljósmyndasög-
unnar. Sýningunni lýkur næst-
komandi sunnudag, 17. janúar.
Sýningin nefnist André Kert-
ész: Frakkland – landið mitt og
kemur frá hinu virta Jeu de
Paume safni í París. Á sýning-
unni eru myndir sem hinn ungverski Kertész tók í
Frakklandi áratugina fyrir síðari heimsstyrjöld.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur er að Tryggvagötu
15, á 6. hæð. Opið er virka daga frá 12-19 og frá kl
13-17 um helgar. Aðgangur er ókeypis.
Ljósmyndun
Sýningu á verkum
Kertész lýkur senn
Ein heimskunnra
ljósmynda Kertész.
Í TILRAUNASTOFU þeirra
Halls Ingólfssonar, Jóns Páls
Eyjólfssonar og Jóns Atla
Jónassonar í Borgarleikhúsinu
er nýtt leikrit þeirra, Góðir Ís-
lendingar óðum að taka á sig
mynd. Það verður frumsýnt 22.
janúar. Í verkinu er glímt við
hrunið og áhrifin á samfélagið.
Höfundarnir biðla til fólks að
taka gluggaumslögin sín með
sér í Kringluna og skilja þau eftir í leikhúsinu, en
þannig getur fólk veitt gluggaumslögunum fram-
haldslíf á fjölum Borgarleikhússins. Í andyrinu
hefur verið komið fyrir póstkassa merktum Góð-
um Íslendingum og er fólk beðið um að leggja um-
slögin sín þar í.
Leikhús
Óska eftir að fá
gluggaumslög
Borgarleikhúsið
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞAÐ var mjög góð tilfinning og mjög gaman að hafa alla
Sinfóníuhljómsveitina á bak við sig á æfingu í morgun,“
segir Matthías Sigurðsson klarínettuleikari. Hann er
annar tveggja ungra einleikara sem koma fram með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands, undir stjórn Bernharðs Wilk-
insons, á tónleikum annað kvöld. Í einleikarakeppni
hljómsveitarinnar og Listaháskólans í nóvember voru
þau Matthías og Helga Svala Sigurðardóttir flautuleik-
ari úrskurðuð hæf til að koma fram með hljómsveitinni.
Þau eru nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík.
Matthías leikur Klarínettukonsert nr. 2 eftir Weber.
„Ég er búinn að vinna með hann í eitt og hálft ár, þannig
að það fer varla mikið úrskeiðis,“ segir hann. „Ég spilaði
hann líka í nóvember með hljómsveit Tónlistarskólans.“
Helga Svala mun leika flautukonsert eftir Jacques
Ibert og segist ekki vitund stressuð, heldur njóti hún sín
á sviðinu með hljómsveitinni.
„Ég hef verið að leika konsertinn síðan í maí og lék
hann allan í keppninni í nóvember,“ segir hún. „Hann
hefur breyst nokkuð hjá mér síðan, enda er ég búin að
vinna mikið í honum.“
Samið upp úr prjónauppskrift
Á tónleikunum verða einnig leikin ný verk eftir ung
tónskáld, Þórdísarhyrna, 1.-12. umferð, eftir Þórdísi
Bjarnadóttur og Dreymi eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur.
„Þórdísarhyrna, 1.-12. umferð, er samið upp úr
prjónauppskrift, fyrstu 12 umferðunum í sjali sem er í
bókinni „Þríhyrnur og langsjöl“ eftir Sigríði Halldórs-
dóttur,“ segir Hafdís. „Verkið hljómar eins og Sinfón-
íuhljómsveitin sé að prjóna þetta sjal. Áheyrandinn fær á
tilfinninguna að eitthvað sé að myndast. Það eru efni,
áferð og mynstur.“
Anna segir að verk sitt, Dreymi, sé innblásið af nátt-
úru og flæði. „Stór hluti verksins er byggður á öðrum
hljóðum en hefðbundnum tónum, hljóðheimurinn flæðir
saman við einskonar stef.
Það er mér ástríða að vinna með þennan stóra hljóð-
heim sinfóníuhljómsveitarinnar,“ segir hún.
Hannyrðir og náttúra
Ný verk eftir ung íslensk tónskáld flutt á tónleikum Sinfóníunnar á morgun
Ungir hljóðfæraleikarar, sem stóðu sig vel í einleikarakeppni, fá að spreyta sig
Morgunblaðið/Heiddi
Einleikarar og tónskáld Helga Svala Sigurðardóttir flautuleikari, tónskáldin Hafdís Bjarna-
dóttir og Anna S. Þorvaldsdóttir, og Matthías Sigurðsson klarínettuleikari.
MYNDLISTARMENN hafa síðustu áratugi
unnið mikið með innsetningar, en fyrir mér er
þetta fagurfræðileg upplifun sem er gömul
hugsun. Að listin eigi að vera hvíld frá hvers-
dagsleikanum,“ sagði Ingunn Fjóla Ingþórs-
dóttir myndlistarmaður í gær. Hún var þá
önnum kafin við að strengja garn og girni í
viðamikið myndlistarverk sitt, Ljósbrot, í
Sverrissal Hafnarborgar en sýning á því verð-
ur opnuð á laugardaginn.
„Í þessu verki er verið að skynja og skoða.
Þetta snýst um upplifun hvers og eins,“ segir
hún.
Þegar Ingunn Fjóla er beðin um að lýsa
verki sínu segir hún það vera einskonar völ-
undarhús úr girni og garni. „Þetta eru tíu
veggir sem mætast, tveir og tveir, og mynda
leið gegnum rýmið. Girnið og garnið eru
þrædd lárétt á álstaura sem ná alveg upp í loft.
Efnin eru í mismunandi litum þannig að þegar
gengið er um rýmið þá blandast litirnir.
Garnið sést vel og hefur nærveru en girnið
er nánast gegnsætt; það verður skynbrenglun
og áreiti á augað.“
Ferðalag um völundarhús
Ingunn Fjóla lauk námi við Listaháskóla Ís-
lands árið 2007 en hafði áður numið málaralist
og listasögu í Árósum. Hún hefur áður skapað
skynvilluheima í myndverkum sínum.
„Ég gerði svipað verk í Þýskalandi fyrir
nokkrum árum, úr girni og garni, en rýmið var
allt öðruvísi. Þetta verk er stílhreinna að öllu
leyti. Ég hef líka gert rýmisverk með mál-
verkum á uppreistum spónarplötum; lokaverk-
ið mitt úr Listaháskólanum var völundarhús-
armálverk sem gengið var inní.“
Völundarhúsið heillar því sýnilega.
„Já, völundarhús eru oft geómetrísk og leið-
in afmörkuð. Það finnst mér áhugavert. Þá
hefur völundarhús táknræna merkingu: ferða-
lag að einhverju sem leitað er að í lífinu. Ég er
ekki endilega að vinna með það heldur einfald-
lega að búa til leið.“
Verkið er flókið í uppsetningu.
„Það eru um 1.000-1.200 metrar af efni í
hverjum vegg og þeir eru tíu, þannig að þetta
eru á milli 10 og 12.000 metrar af girni og
garni. Búið er að bora 6000 göt í prófílana og
setja í þau 6.000 nagla.
Verkið er unnið sérstaklega inn í þetta rými,
miðað við hlutföllin í salnum, þannig að það fer
aldrei upp nákvæmlega eins annarsstaðar.
Ég er að vinna með upplifun hér og nú.
Þetta er ekki varanlegt verk sem hægt er að
taka með sér og hengja upp fyrir ofan sófa.“
10 til 12.000 metrar
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir skapar umfangsmikla
innsetningu úr girni og garni í Hafnarborg
Morgunblaðið/RAX
Vefur settur upp „Verkið er flókið í uppsetningu,“ segir Ingunn Fjóla. 6.000 göt voru boruð.
HIN stóra sýning
á verkum Ólafs
Elíassonar, Take
Your Time, sem
hefur á síðustu
misserum verið
sett upp í Lund-
únum og New
York, var í des-
ember opnuð í
samtímalistasafn-
inu í Sydney í Ástralíu, Museum of
Contemporary Art.
Fjölmiðlar þar syðra hafa tekið
sýningunni fagnandi og hefur ítrek-
að verið talað um hana sem „sam-
tímalistviðburð ársins“ í safnalífinu
þar í landi.
Gagnrýnendur hafa vísað í að
Ólafur sé að hluta alinn upp hér á
landi og að dramatísk íslensk nátt-
úra og margbreytilegt veðurfarið
hafi ómæld áhrif á listina.
Gagnrýnandinn John Matthews
segir að þessa dagana sé safnið bað-
að fágætri birtu og töfrum. Sýningin
hreyfi við gestum, hún sé greindar-
leg en um leið skemmtileg og að-
gengileg. „Verkin eru raunveruleg
og traust, þau eru ekki um brögð eða
sjónrænar blekkingar, heldur raun-
verulegar upplifanir og tilfinningar,“
skrifar hann.
Fágæt birta
og töfrar
Sýning Ólafs vekur
athygli í Sydney
Ólafur Elíasson
FRANSKI kvikmyndaleikstjórinn
Eric Rohmer er látinn, 89 ára að
aldri. Hann var í framlínu frönsku
nýbylgjunnar svokölluðu, ásamt
skólabræðrum sínum Truffaut og
Godard, og frægur fyrir kvik-
myndir á borð við „Ma nuit chez
Maud“ og „Le genou de Claire“,
myndir sem iðulega fjalla um
flækjurnar í samböndum fólks í
nútímanum.
Árið 2001 hlaut Rohmer Gullna
ljónið á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum, fyrir afrek sín á fimm ára-
tuga ferli.
Síðasta kvikmynd Rohmers,
„Romance of Astree and Cela-
don“, var frumsýnd árið 2007.
Eric Rohm-
er látinn
Sigurvegarar úr einleikarakeppni Sin-
fóníuhljómsveitarinnar og Listaháskóla Ís-
lands koma fram á Sinfóníutónleikum ann-
að kvöld, fimmtudagskvöldið 14. janúar.
Einleikarakeppnin fór fram í Háskóla-
bíói í nóvember síðastliðnum. Ellefu nem-
endur tóku þátt og dómnefn úrskurðaði
tvo hæfa til að koma fram á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveitinni. Það eru þau Helga
Svala Sigurðardóttir flautuleikari, sem
leikur flautukonsert eftir Jacques Ibert, og
Matthías Sigurðsson klarínettuleikari, sem
flytur klarínettukonsert nr. 2 eftir Carl
Maria von Weber. Bæði eru nemendur við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Þá munu tvö ný verk ungra tónskálda
hljóma á tónleikunum annað kvöld.
Þórdísarhyrna, 1. - 12. umferð, sem er eftir
Hafdísi Bjarnadóttur og Dreymi eftir
Önnu Þorvaldsdóttur.
Ungir einleikarar og tónskáld