Morgunblaðið - 13.01.2010, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2010
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
HHHH
„Persónusköpun og
leikur eru framúrskarandi,
sjónræn umgjörð frábær og
sagan áhugaverð.”
- Hjördís Stefánsdóttir, Morgunblaðið
HHHH
„Vel heppnuð og grábros-
leg, frábærlega leikin og
mjög „Friðriks Þórsleg”.
- Dr. Gunni, Fréttablaðið
HHHH
„Hárfínn húmorinn
kemst vel til skila.”
- Hilmar Karlsson, Frjáls verslun
HHHHH
„Kristbjörg sýnir stjörnu-
leik og myndin er fyndin og
hlý. Ég gef henni fullt hús,
fimm stjörnur.“
-Hulda G. Geirsdóttir,
Poppland/Rás 2
FRÁ HÖFUNDI „NO COUNTRY FOR OLD MEN”
KEMUR ÞESSI MAGNAÐA MYND
Á einu augnabliki breyttist heimurinn að eilífu
Did you hear about the Morgans kl. 4:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára Avatar 3D kl. 4:40 - 7 - 8 - 10:20 B.i.10 ára
Alvin og Íkornarnir kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ Avatar 2D kl. 4:40 - 8 Lúxus
Mamma Gógó kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
Sýnd kl. 6, 9 (POWER SÝNING) og 10:20
Sýnd kl. 6 og 10:10
Sýnd kl. 8
ÍSLENSKT TAL
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 9
Sýnd kl. 6
YFIR
78.000
MANNS
SÝND Í REGNBOGANUM
HHHH
-S.V., MBL
HHH
„Myndin er mann-
leg og fyndin“
-S.V., MBL
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.isKreditkorti tengdu Aukakrónum!
LEIKARINN Jude Law undirbýr
nú að biðja Siennu Miller í annað
sinn. Law og Miller voru trúlof-
uð árið 2004 en hættu saman
tveimur árum síðar eftir
framhjáhald Law. Þau byrjuðu
saman aftur fyrir stuttu og er
Law nú tilbúinn að gera hana að
opinberri unnustu sinni aftur.
„Sienna hefur alltaf verið sú
eina rétta og núna, þegar hún er
komin aftur inn í líf hans, vill
hann aldrei aftur láta hana fara.
Jude hugsaði málið alvarlega
um jólin þar sem hann var
staddur í Bretlandi með fyrrver-
andi konu sinni og börnum
þeirra þremur, og komst að því
hversu mikilvægt fjölskyldulífið
er honum. Hann þarf góða konu
og Sienna er orðin hundleið á
því að vera einhleyp og vill vera
með Jude það sem eftir er,“
sagði heimildarmaður Daily Mir-
ror.
Fjölskylda Miller væntir þess
að fá stóra tilkynningu á kom-
andi vikum. „Jude mun spyrja
stóru spurningarinnar bráðlega,
hann og Sienna hafa aldrei verið
hamingjusamari saman,“ bætti
heimildarmaðurinn við.
Law og Miller eyddu dögunum
í kringum jólin saman á Barba-
dos ásamt þremur börnum Law,
Rafferty, Iris og Rudy.
Jude Law Sienna Miller
Bónorð í
uppsiglingu?
HIN árlega hljómsveitakeppni
Global Battle of the Bands hefst á
föstudaginn kemur. Tvö undan-
úrslitakvöld verða haldin, þ.e.
föstudaginn næsta og laugardag-
inn þar á eftir, en svo fara úrslit
fram laugardaginn 23. janúar.
Keppnin er haldin í Sódómu
Reykjavík og mun sigursveitin
tryggja sér þátttökurétt í að-
alkeppninni sem fram fer á tón-
leikastaðnum Scala í Lundúnum í
apríl komandi. Í verðlaun þar eru
tíu þúsund dollarar, vikudvöl í
hljóðveri með upptökumanni í
London og tíu daga tónleikaferð
um England.
Fyrirkomulag keppninnar er af-
ar opið, allar sveitir sem áhuga
hafa á að taka þátt í henni geta
það, að því tilskildu að þær leiki
tvö frumsamin lög.
Í fyrra (2008 þ.e.) vann hljóm-
sveitin Agent Fresco undankeppn-
ina hér á landi en fyrri sigurveg-
arar eru Lights on the Highway
(2004), Finnigan (2005), Perla
(2006) og Cliff Clavin (2007).
Heillavænleg þróun
Franz Gunnarsson talar fyrir
hönd hérlendra skipuleggjara.
„Þetta er semsagt GBOB 2009,
en framkvæmdir drógust á lang-
inn þar sem höfuðstöðvarnar í
London eru komnar með nýjan
framkvæmdastjóra og nýir fjár-
festar eru auk þess komnir að
málum.“
Úrslitin hafa færst fram til apríl
af þessum sökum en nýir stjórar
hafa hug á að koma keppninni í
sjónvarpið og auka veg hennar á
alla lund.
„Mér líst afskaplega vel á þessa
þróun mála,“ segir Franz. „Við
ætluðum á tímabili að hætta við
en vorum hvattir áfram af hljóm-
sveitum að halda þetta. Ég lít á
þetta fyrst og fremst sem leið til
að halda tækifærum fyrir íslensk-
ar sveitir opnum, því flesta
dreymir jú um að koma tónlist
sinni á framfæri víðar en bara
hér.“
Franz segir að löndin sem halda
undanúrslitakeppni séu vel yfir
þrjátíu og nú standi yfir vinna
sem miði að því að löndin hafi
meira samráð sín á milli hvað
framkvæmdir varðar en áður hef-
ur verið.
Góður skóli
„Úti eru t.d. keyrðir einhverjir
Global Battle-túrar og það væri
frábært ef íslensk sveit ætti kost á
að komast inn í einn slíkan,“ segir
Franz. „Þá hefur verðlaunaféð
verið lækkað niður í 10.000 dollara
en á móti kemur að sveitin á kost
á að dvelja vikutíma í hljóðveri og
fara svo í tónleikaferðalag um
Bretland þar sem allur kostnaður
er greiddur. Bara upp í rútu og af
stað! Að mínu viti er þetta mun
sniðugra og meiri skóli en að
moka bara peningum í liðið. Yngri
böndin sérstaklega græða á svona
löguðu, fá reynslu og undirbúning
í tengslum við það sem drífur þau
áfram – sjálfa tónlistina.“
Dómnefnd á kvöldunum er skip-
uð þeim Arnari Eggerti Thorodd-
sen, Ómari Eyþórssyni og Atla
Fannari Bjarkasyni. Fjölgað verð-
ur í dómnefnd á úrslitakvöldinu.
Baráttan byrjar
Hljómsveitakeppnin Global Battle of
the Bands hefst á föstudaginn á Sódómu
Reykjavík Fimmtán sveitir keppa
Morgunblaðið/Kristinn
Aftur Bárujárn hafnaði í þriðja sæti GBOB í fyrra. Spurning hvað gerist nú?
Sigur? Bróðir Svartúlfs, sigurvegarar Músíktilrauna, ætla að freista þess
að leika sama leik og Agent Fresco en sú sveit sigraði í Tilraununum 2008
og síðan í Global Battle.
Ferskt Ein þeirra nýsveita sem þátt tekur í keppninni er Draumhvörf.
www.gbob.com